sunnudagur, desember 25

Ur sol ad sunnan

Tratt fyrir rok er eg komin ur hudlitnum -15 og er ad nalgast nullid, t.e. edlilegan hudlit a Islandi.

Egyptaland er gott land, verdlagid er lagt og eg kom ur jolainnkaupunum med tvaer hendur fullar en adeins faum hundradkollum fataekari. Agaett. Eg hef eignast flotta bongotrommu med ulfaldaskinni, handskreittri smaum skeljum. Svo a eg eftir ad versla mer sishju(vatsnpipu) med ollu tilheyrandi a 800 ISK, taer eru to mun fallegri her en taer sem eg sa i Frankfurt a milljon.
Vid forum ut i bae ad borda a Thorlaksmessu a egypskt veitingahus. Maltidin min kostadi 200 ISK. Mamma var svo orlat ad splaesa og eg verd henni aevinlega thakklat.

Karlkynid laetur ekki a sinu standa og i okkur systurnar er buid ad bjoda marga ulfaldana. Eg er ekki fra tvi ad eg fari fljotlega ad trua tvi ad eg se ein su fegursta, svona vinnur tetta a manni, madur fer ad trua.
To eg se ad sjalfsogdu glaesikvendi.

Hotelid mitt er engu likt. Lysingin a kvoldin er eins og i paradis, og margt herna er eins og sett ur einhverri biomynd, eda Beverly Hills sem var synt a Islandi fordum daga. Svo er lika haegt ad setjast ut og fa ser sishju a kvoldin.

I gaer drukkum vid hibiskis-te med nybokudum afa, sem vinnur i ilmvatnsbud her a hotelinu, barnabarninu til heidurs. Tad var indaelt.

þriðjudagur, desember 20

Undir tilhlökkun

Í sigurvímu eftir afskaplega álitleg prófskor og spennu hugsa ég til morgunkvöldsins. Þar sem ég mun sitja í Parísarhjóli jólatívolísins í Kóngsins Köbenhavn, sem er víst sérlega glæsilegt rétt fyrir jólin. Horfa yfir borgina við undirleik meðmælts jazzbands, vitandi af því, að eftir sólarhring muni hvítur sandur Egyptalands leika um tærnar á strönd Rauðahafsins, fyrir framan lúxushótelið.

Gleði? Óneitanleg og endalaus.



Yljið ykkur um hjartarætur við hugsanir tengdar mínum aðstæðum næstu tvær vikurnar.
Gleðileg jól, kæru vinir.

fimmtudagur, desember 8

Galdur

Þegar ég er við það að bugast á þriðjudagskvöldi eftir svefnlausar nætur og Þjóðarbókhlöðu kemur hann mér til hjálpar, bjargvættur minn.
Magic.
Við fyrstu snertingu tungu minnar kveikir hann í mér nýja von. Orka flæðir um æðar mínar og heilabroddurinn verður beittari. Ég er tilbúin í allt og tek nokkur dansspor á stofugólfinu áður en ég sest við borðið, til frekari lærdóms.
Hitt veit ég ekki hvort það sé drykkurinn sjálfur eða ofurtrú mín á hann sem hefur þessi áhrif.

Ég er ekki fyrr byrjuð að læra en gáfaðasti einstaklingur heimilsins, kötturinn Branda, mætir til leiks og skallar mig létt þar sem ég sit, niðursokkin í bækurnar.
Það þarf ekki meira til, hún hefur brætt hjarta mitt og er ég nú á hennar valdi þar sem ég sit og klóra henni og klappa eins og henni sýnist.
Við mennirnir þykjumst klár. En erum í raun ekkert nema leikfang í höndum kisanna okkar, sem komast upp með að sofa allan daginn, láta vinna fyrir sér, láta klóra sér og gæla við sig. Þeir móta okkur að vild.

sunnudagur, desember 4

Þankagangur

Í gær kláraði ég mína fyrstu Sudoku á sudoku.is.
Líkt og syndaaflausn. Alveg þangað til ég les setninguna sem stendur undir hinni fullkomnu lausn;
Gátan er ekki rétt leyst.
Málið endar á sjálfsmorði lausnarinnar sem hverfur mér fyrir fullt og allt. Mikið farið fyrir lítið.

Ég kann vel að meta vinina sem ég eignast í vinnunni minni. Í raunheiminum á ég fáa, en góða vini, en á í sérstökum samböndum við þá fjölmörgu sem ég eignast hér.
Í dag heilsa ég mörgum viðskiptavinum Hreyfigreiningar eins og nánum vinum og ræði mál líðandi stundar og lífsins. Það er gott. Og fátt opnar sálina eins og börnin sem fara framhjá móttökunni í lest á laugardagsmorgnum. Ég tek auðvitað þátt og kem með eitt gott tjútjú, í takt við hina.

Í kringum síðastliðna aðalsumarvinnu hef ég tengst fólki ágætlega, og helst honum Sigga. Hann hefur líka trú á mér, hann Siggi.
Núna er þar að vinna maður frá Lundúnum og ég held ég elski hann, dálítið. Ekki aðeins fallegu augun hans, húmorinn og alþjóðlega yfirbragðið. Heldur mikið, og kannski mest af öllu, krullaða hárið hans og heillandi ljúfbreska hreiminn.
Gleym mér ei, aldrei.

Ef einhver man eftir gamalli færslu um langanir mínar í sambandi við lagið Alone in Kyoto og fósturgjörning, gleður þetta líklega þann sama; nýlega framkvæmdi ég hann.

þriðjudagur, nóvember 29

Að vera eða ekki vera

Einn helsti sigur minn er unninn. Eftir dramatískar umræður og rifrildi sem og lýðræðislega kosningu með álitaskiptum og öðru næ ég orðinu "Ofursmáís" fram á Scrabble spilaborðið. Stolt, ég get ekki neitað því. Og ég sit með tvær rauðhærðar vinkonur báðum meginn við mig, á annarri sýður. Hin brosir krúttlega og er hæstánægð, enda með mér í liði. Um hömlurnar losnar og áður en við vitum af eru nokkur úrhrök mætt á borðið til viðbótar, úr öllum áttum. Alnördóðasaxaði, þorpað og ásbeð. Ég er sátt og dreg mig í hálfgert hlé, enda veit ég það jafnvel og aðrir meðspilendur. Sigur er löngu unninn.

Annað í hávegum. Tilhlökkunin sem fyllir andann og landann vegna þáverðandi tónleikahalds Sigur Rósar og Aminu í Laugardagshöll. Ég mæti, enda ekki annað hægt að gera eftir upplifun sumarsins. Við pabbi göngum að Laugardagshöll og búumst við einhverju stóru, enda eru þetta miklir menn sem á sviði munu standa.

Umgjörðin er svolítið skrítin. Troðningur, virðingarleysi, ósiðmenntun Íslendinga sem kunna sig ekki. Köll og hróp. Fólk sem er þarna aðeins upp á "kúlið," en vill sækja félagslega atburði og nýtir hvert tækifæri til að detta í það. Óprúðleiki. Sorglegar tilfinningar stúlku sem skilur ekki hversvegna fólk kann ekki að haga sér, og kann ekki að meta. Kann ekki að vera þegar maður þarf að vera. Og hafa hljótt.

föstudagur, nóvember 25

Græðgi

Ég er orðin háð kvennablöðum; Nýju lífi, en þó mest Vikunni. Að sjálfsögðu hef ég ekkert betra að gera í vinnunni en að gægjast í nýjasta blaðið og taka persónuleikapróf eða skoða hverskonar bikiní verða í tísku í sumar. Mjög mikilvægt, viðheldur kvennleikanum og blæs lífi í sjálfsmynd mína. Því auðvitað er ég alltaf það besta og frábærasta sem hægt er að vera í persónuleikaprófunum.

Prófin nálgast og ég stressast. Enda mun ég eyða prófhelgum mínum í vinnunni. Peningagráðuga ég. Ég get ekki hætt, verð að eignast peninga þó ég hafi í raun allt af öllu til alls. Græðgi græðgi græðgi. Svona gerði velmegunin mig.

Mikið langar mig til að skreppa eitthvert út, í eina önn eða svo. Eða þá að fara sem skiptinemi til Asíu eða Afríku. En þá er ein önn víst eiginlega of stutt og yrði dvölin helst að vera ár til þess að njóta hennar sem best og mest.
Ég vildi að ég ætti ættingja úti í heimi sem ég gæti verið hjá.

þriðjudagur, nóvember 22

Kuldi. Ég sit í eldhúsinu og horfi út um gluggann. Pabbi eldar matinn og dimman liggur yfir klakanum. Yfir mig hellast æskuminningar frá fornum jólamánuðum og föndurtímum. Ég hugsa til Þorláksmessunnar og dangla fótunum lauslega í stólinn minn. Ég sakna löngu bráðnaðra snjókarla. Kvöldrölt í bænum með mömmu og pabba. Hönd í hönd, ég flýg á milli. Og kakó. Jólatilfinningin er besta tilfinningin.
Allt í einu hlakka ég mest af öllu til jólanna. Mig langar mest af öllu til að fara út að ganga í myrkrinu og sjá glaðleg andlit og vera glaðlegt andlit, með jólatónlist í heyrnatólunum mínum.
Nema það að ég á engin heyrnatól. Og svo verð ég í Egyptalandi um jólin.

þriðjudagur, nóvember 15

Gilli, Gilli

Olga kítlaði mig. Kítli kítl.

Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið:
- Sterk rödd
- Rétt klipping
- Sjálfsöryggi
- Falleg augu
- Krúttleg feimni
- Hressleiki
- Fallegar tennur

Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:
* Fara í fallhlífastökk
* Upplifa mig sem heimsborgara
* Fara í teygjustökk
* Þroskast í eitthvað stórfenglegra
* Lifa drauminn, hver sem hann verður eða er
* Eignast barn
* Finna hæfileika mína og rækta þá


Sjö hlutir sem ég get gert:
- Geislað, á réttum stundum
- Skrifað ágætis texta og ljóð
- Fundið innri frið
- Spúað eldi
- Dansað afró dansa
- Á mongólskum stundum, sagt, "ef ég væri þú myndi ég hata mig einmitt núna."
- Bætt mig

Sjö hlutir sem ég get ekki gert:
* Farið í splitt
* Spilað allmennilega á hljóðfæri
* Synt skriðsund hraðar en bringusund
* Hatað
* Verið ég sjálf í kringum fólk sem mér líður ekki vel í kringum
* Mætt alltaf á réttum tíma
* Dansað nakin úti á götu, það viðmót mitt breytist vonandi

Sjö frægir karlmenn sem heilla mig(á mismunandi vegu):
- Ingvar E. Sigurðsson
- Sean Connery
- Davíð Oddson á yngri árum
- Guðjón Davíð Karlsson
- Hilmir Snær Guðnason
- John Lennon
- Ryan Philippe (ég hef ekki séð hann með eigin augum, Cruel Intensions)


Sjö orð/orðasambönd sem ég segi oftast:
* Ókei
* Allright!
* Halló
* Jújú, svo mikið er víst
* Oui
* og svo bara eitthvað
* Elsku stelpa/drengur
* Þetta var nú ekki fallegt

Sjö sem ég ætla að kitla:
- Sigrún
- Gunnar
- Inga
- Fróði
- mamman
- pabbinn
- og börnin

Tilgáta: Grænmeti er gott brennsulefni.
Niðurstaða: Mun koma í ljós.
Ég elska þig. Þú ert svo sannarlega hverrar sekúndu af tíma mínum virði. Það að vera í kringum þig lætur mig verða sáttari við lífið og sjálfa mig sem manneskju. Þú kveikir í löngunum mínum og hjálpar mér að snerta allan heiminn. Þú bætir mig upp, gerir mig að betri og heilstæðari einstaklingi með heilstæðan karakter. Með þér líkar vinum mínum jafnvel betur við mig af því að með þér er ég betri. Með þér elska mig allir af því að með þér er ég alvöru. Þú bætir líf mitt á allan hátt sem skiptir máli. Þú býrð ekki bara yfir skínandi fegurð heldur heldur einnig stöðugleika, nema kannski þegar hiti færist í leikinn og þú getur ekki gert annað en að bráðna. Takk fyrir að vera til.

Elsku peningur.

sunnudagur, nóvember 13

laugardagur, nóvember 12

Á MSN hittumst við
tölum saman um tilfinningar og þrár.
Skot, ástir, vini, pælingar um lífið. Við tölum um hversu sárt það er að finna engann sem elskar okkur
nægilega mikið. Að hafa ekkert nógu gott, vera ekki nógu góð. Eða vera of góð?
Við segjum leyndarmál. Og greinum það sem skiptir máli í lífinu, og ákveðum hvort það skipti í alvörunni máli.

En á meðan
segjum við ekki orð, heyrum við ekki neitt nema takkaniðinn á lyklaborðinu, mætum engum augum né augngotum, sjáum við engin svipbrigði, sýnum við engar augljósar tilfinningar. Og í raun tengjumst við eingöngu í gegnum hugsanir okkar, okkur finnst við vera að tala saman, en skrifum hugsanirnar niður með kassastöfum.

Hvers á ég að gjalda?
Og þú
Og við
Í gær vann MH tvöfaldan sigur á tveim, ekki svo óskildum vettvöngum; í Leiktu Betur, spunakeppni framhaldsskólanna og í Morfís, ræðukeppni framhaldsskólanna gegn liði MS.
Eftir það tóku menntaskólanemar sér stall í Brokey niðri við sjó, og drukku áfengi og voru hressir. Það var nú ágætt, þangað til biturleikinn rann yfir okkur flest(mig) og vinir okkar allra(mínir) voru komnir á annan stað í lífinu og við vorum öll(ég) ein. Þá ákváðum við(ég) að hringja í góðan vin sem bjargaði lífi okkar(mínu) og kom okkur(mér) heillega heim.

Ég er ekki lengur skotin í strák, fyrir þá sem vilja vita. En að sjálfsögðu er ég opin fyrir skotum af ykkar hálfu, aðrir. Endilega hafið samband ef ykkur vantar skot, ég er mjög efnileg.

þriðjudagur, nóvember 8

Hæ.

Síðustu bloggfærslur hafa verið með öfgum leiðinlegar.
Þær hafa sprottið af augnablikum án innblásturs, eins og mér finnst svo ljóðrænt og fínt að segja.

Ég er skotin í strák. En ég ætla ekki að segja hver það er.
Ég elska að vera skotin í strák. Eða meira svona, ég elska að hata það. Og ég elska líka forvitið fólk.
Sérstaklega þegar ég kjafta hlutunum og fæ viðbrögð. En ég kjafta samt ekki því sem ég má ekki kjafta, þannig þið getið alveg treyst mér, en svona, þegar ég kjafta einhverju sem viðkemur mér. Það er gaman. En ég ætla samt ekki að kjafta þessu.

Gott á ykkur, hahaha. Jibbí.
En ókei bless.

fimmtudagur, nóvember 3

Já, Takk...

Rétt í þessu komst ég að því að ég á sex sinnum meiri pening en ég hélt, sem þýðir að ég mun geta bætt líf mitt talsvert á næstu dögum.

Rétt í þessu var ég í aukatíma í stærðfræði, ég fylltist von og fékk jákvæðari sýn á eina hlutinn sem hefur hrammatök á því að gera líf mitt slæmt.

Rétt í þessu festum við faðir minn okkur tvo miða á tónleika með Sigur Rós.
Á Sigur Rós, bestu hljómsveit í heimi. Þú hefur ekki upplifað tónlistina fyrr en þú kemst í návígi við hana á tónleikum. Tónlistin á geisladiskunum er ótrúleg, en tónlistinni sem lifnar við á tónleikum er ekki hægt að lýsa með öðru en tárum.

Í augnablikinu er lífið töfrandi.

Núna ætla ég að fara inn í herbergi og slökkva ljósin, leggjast upp í rúm og láta töfrana leika um blóð mitt og eyru. Ég er hamingjusöm.
Og hamingjusöm.

mánudagur, október 31

Sóða MH-ingar

Ég efast um að það séu mikið af orgíum í öðrum en MH partíum. Ekkert nema subbu- og ofur hresst fólk.


Og allir eru sammála um að hafa þetta sem fasta venju. Jújú, ókei þá.



Annars er farið að viðrina mig of mörgum sóða orgíum. Slæmt orð fer að setjast á annars hina hlíðnu mig. Ég skil þetta ekki. Hvaðan kemur þetta allt saman?


Ógeðslegt. Þetta er ekkert nema ógeðslegt.
Skemmtilegt.

föstudagur, október 28

Jólagleði

Ég er farin að fá kítl í tásurnar við tilhugsunina um jólin. Þó svo að jólin sjálf séu í sjálfu sér ekki miðpunkturinn í spennunni heldur jólaundirbúningurinn. Rökkrið, bækurnar, jólatónlist, jólamyndir, teiknimyndir, hlý teppi, hlæjandi börn, súkkulaði, jólatré, jólaljós, hamingjusamt fólk, gleði, Laugarvegurinn, kósíheitin og allt sem þessu fylgir. Hamingjan er svo mikil.
Fyrir jólin líður mér best.

Reyndar mun ég fljúga til Egyptalands ásamt fjölskyldunni og vera þar yfir sjálfa hátíðina. En desember er mánuðurinn. Desember er ást.

Áðan gaf ég systur minni snjókúlu sem innihélt fallegt par á skautum. Mikið var hún jólaleg og falleg. Keypt í Tiger á kostakjörum, en auðvitað er það hugurinn sem gildir. Og hann er í augnablikinu mjög góður.

fimmtudagur, október 27

Oui, du es sehr bon, oh yes, þú ert það svo sannarlega.

Það er kalt. Mér er kalt. Ég er köld. Ég er dáin.
Nei, veik.
Ég hósta og hósta og hósta og hósta, í þögn, í íslenskuverkefnum, í samræðum við leiksjórann Dag Kára. Og fleira.

Súkkulaði. Mig langar í súkkulaði. Ég er að drekka eitt slíkt og fékk mér eitt áðan. En ég er alveg til í meir.

Núna ætla ég að fjalla um tilgang lífsins.
Ég ætla að hafa þetta mjög langt.

Tilgang lífsins er hægt að greina niður í deildir eftir áhugsaviði hvers og eins, eða foreldra hvers og eins. Tilgangur veru minnar er ekki endilega tilgangur veru þinnar hér á jörðinni.
Eins og til dæmis bróðir Baldurs í Völuspá, Váli, hann fæddist nær eingöngu til þess að hefna bróður síns eins dags gamall eftir að hinn blindi Höður drepur Baldur óvart fyrir tilstilli Loka.
Djöfuls Loki. Hann er svo vondur.

Völuspá er skemmtileg, ég hlustaði á hana sungna af norskum kór um daginn. Það tók klukkutíma. Það var skemmtilegt.

Ég vil ekki að hafa þessa hræðilegu færslu lengri.

fimmtudagur, október 13

Sweet is the melody

Ég elska að njóta rólegra daga þar sem ég get einbeitt mér að hlutum sem skipta mig máli og láta mér að einhverju leyti, líða aðeins betur.
Slíka daga vil ég eiga sem flesta því þeir auka verðgildi alls sem ég geri og fá mig til að vilja halda áfram. Á þessum dögum sé ég hvað allt er dásamlegt og ef ég geng niður Laugarveginn með yndislega tónlist í eyrum, brosandi fram í heiminn án alls þess sem gæti bugað mig, verð ég ekki hamingjusamari.

Platan Takk... gleður mig.
Lífið gleður mig.

Og núna eru jólin strax farin að gleðja mig með nálægð sinni.

sunnudagur, október 2

Plús og mínus, mínus, mínus.

Ég hefði betur sleppt stórfélagsferðinni á föstudaginn sem einkenndist af mis ömurlegum hlutum;

°Fólki í sleik.
°Þessu sama fólki í sleik við aðra.
°Og þessum öðrum í sleik við hina.
°Jú og allt öðru fólki að skvetta vatni á sofandi fólk, þ.á.m. mig sem svaf í sakleysi mínu/biturleika í sófa.
°Og ekki má gleyma allt öðrum einstaklingi(sem reyndist áður vinur) sem fór að koma illa fram við ákveðna einstaklinga(tjah, mig). Hrinda og nöldra.
°Óþægilegum svefni.
°Frekum og leiðinlegum busum.
°Mun skárri busum.
°Hórubusum.
°Áfengisdauðu fólki.
°Eigingjörnu fólki sem getur ekki einu sinni tekið til eftir rassgatið á sjálfu sér.
°Pressu.
°Einmannaleika.
°Sora.

Áfram mætti telja.
Ljósu punktarnir voru ekki margir en nokkrir sem nefna má;
°Mjög dugleg og ábyrg stjórn, sem betur fer.
°Snotur húsakynni.
°Ágætis tónlist.
°Falleg dimma.
°Ástin virtist kvikna hjá einhverjum. Og þá er ég ekki að tala um fulla fólkið sem var í sleik.

Já, ég hef aldrei verið jafn bitur eftir stórfélagsferð.
Tímaeyðsla og peningaeyðsla.

fimmtudagur, september 29

Ég sinnum fimm

Nú þegar þrjár manneskjur hafa þegar "klukkað" mig finn ég mig knúna til þess að deila fimm staðreyndum um sjálfa mig, af einhverri ástæðu. Ekki lofa ég skemmtun né fyndni.
Ekki það að ég reynist einhvern tímann vera skemmtileg eða fyndin.

Eitt.
Gæludýrið mitt er aðeins tveimur árum yngra en ég.
Hún Branda mín, köttur, eignaðist ég aðeins tveggja ára að aldri. Systir mín, þá átta ára gömul, fór út í dýrabúð í óvitneskju foreldra minna, og keypti sér kettling sem hún geymdi niðri í geymslu í nokkra daga og fæddi hana þar, aðallega á kattarsúkkulaði. Móðir mín, þegar hún komst að þessu, skipaði henni að skila kisunni en hafði harðneskjuna ekki í sér lengi. Sem er eins gott því að ég á Bröndu enn. Og hef þróað með mér ofnæmi gegn henni og öðrum dýrum. Því miður.

Tvö.
Ég á heima úti í skógi.
Þegar ég fæddist bjó fjölskyldan mín á Ásvallargötunni í Reykjavík 101. En þegar ég var fjögurra ára fluttumst við hingað, í Elliðaárdalinn, þar sem ég hef setið í sæmd minni síðan. Hús mitt hefur lengi vel verið mjög sérkennilegt á litinn eins og þeir sem þekkja til vita, en nú er verið að leggja lokahönd á nýja litinn.

Þrjú.
Ég er kaþólsk.
Langafi minn sem móðir mín ólst að mestu upp hjá, Anton Schneider, var þýskur. Þar af leiðandi er amma mín hálfþýsk. Og móðir mín einn partur af fjórum þýsk. Með þessu þýska blóði fylgir trúin kaþólska, og ég var bæði skírð og fermd í kaþólsku kirkjunni Landakotskirkju. Og já, það að vera kaþólsk er að vera kristin. Og nei, þetta þýðir ekki að ég stundi trúna meira en aðrir Íslendingar.

Fjögur.
Ég má kallast náttúrubarn.
Hér í denn stundaði ég það mikið á sumrin að fara og baða mig í Elliðaránni sem og það að stökkva þar í ákveðinn foss. Ég var líka mikið í hellaskoðunum í Elliðaárdalnum og tróð mér einhverntímann í gegnum þröngan, en langan helli sem var með tveimur útgöngum. Ég tók líka a.m.k. tvisvar sinnum sund í skítaskurðum í sveitinni og hef verið svolítið í þessu löguðu.

Fimm.
Ég er sjúklega óstundvís. Sorrí þið sem lendið alvarlega í mér. Ég reyni þó að láta það ekki koma fyrir á þeim tímum sem það er einstaklega óæskilegt eins og t.d. á leið í vinnuna. En á hverri önn mæti ég kannski þrisvar til fjórum sinnum á réttum tíma í skólann á morgnanna. Kennararnir eiga, af einhverri óþekktri ástæðu, mjög auðvelt með að læra nafnið mitt.

Ég veit ekki hvort ég eigi að klukka einhvern þar sem svo margir hafa þegar verið klukkaðir en ég prófa og set þá bara meiri pressu á þegar klukkaða, og klukka;
Röggu frænku og Diljá.

Úff, þetta blogg var hundrað sinnum lengra en ég bjóst við af því.

laugardagur, september 24

Föt

Það að kaupa ný föt lætur manni líða vel, maður verður sáttari við lífið og við sjálfan sig. Svona eins og þegar einhver vinnur Íslandsmeistaratitilinn í áhugamálinu sínu, þannig er að kaupa mjög flott föt.
Íslandsmeistaratitlar eru óþarfir. Maður kaupir sér bara föt.
Útkoman eftir innkaup gærdagsins og dagsins í dag birtust mér áðan þegar ég dansaði um húsið í nýjum kjól og skóm syngjandi; Dóra sæta, Dóra sæta, Dóra sæta.

Sagt er að föt skapi manninn, ég segi að föt skapi lífið, og hamingjuna.

Útvarpsstöð dagsins: FM Latibær

þriðjudagur, september 20

Nöldur

Ómerkilegur gírafi og fleira ósæmilegt hefur ákveðið að taka sér veggfestu á Klamedíuklósettbásnum. Vegna þessa hef ég ákveðið að láta umfjallanir um framvindu fiskimálsins, með öllu, vera.

Mig langar:

-Að sjá Woyzeck í Borgarleikhúsinu.
-Að sjá Charlie and the Chocolate Factory. !.
-Að sjá gömlu Charlie and the Chocolate Factory.
-Að lesa aftur bækur sem ég elskaði fyrir löngu og elska enn; Kalli og súkkulaðiverksmiðjan, Nornirnar og fjólubláu bókina Vampírusögur.
-Að fara í klippingu.
-Að vera í kórnum.
-Að fara á Antony and the Johnsons í desember.
-Að hafa tíma og fé til að framkvæma áðurnefnt.


Kreisí.

laugardagur, september 10

Hreinleiki, gleði

í sanngjörnum heimi myndu samskipti kynjanna fara fram með glervegg á milli sín og takka til að velja besta gripinn eftir þyngd, stærð, hagkvæmni og snoturleika. En heimurinn er ekki sanngjarn og maður þarf að leita sér maka eftir eðlisávísun, mannþekkingu, sjarma og öðru einskisnýtu rusli. Tengingar milli einstaklinga endast ekki nema í sekúnda eða hálfa kvöldstund og allt verður flókið, erfitt, pirrandi.
Deila er hægt um í hvern er varið og hvað sé heillandi við hvern og einn. Vesen, rugl. Eitt skal yfir alla ganga og skrá verður við fæðingu og kynþroska hvað sé vert að hugsa um í fari hvers og eins.

En hinsvegar ætla ég að sökkva mér í lestur, gerast einsetjukona á fjallstindi með geit, sem heitir Nansí.

mánudagur, september 5

Gamalt og nýtt af ofan

Um helgina hitti ég strák sem heitir Benni. Hann hefur mikinn áhuga á leiklist. Hann er í Kvennó. Hann er fæddur árið 1986.
Þegar ég var í sjöunda bekk eða 12 ára gömul, þá sá ég hann í fyrstu sýningunni hans. Hún fór fram í Grunnskólanum í Grindavík og þá var hann í níunda bekk. Og svo hitti ég hann aftur, núna 5 árum seinna, og er hann sokkinn í líf leiklistar og svínarís. Við höfum aldrei fyrr verið formlega kynnt.
Svona er lífið sniðugt og heimurinn smár.

Minnast má á nýjar upplýsingar sem staðfestar hafa verið af klamedíuklósettbásnum. Á hurðinni hefur lengi staðið eitt og sér: "It's ok to eat fish 'cos they don't have any feelings."
En svar hefur borist og andmælir nú fiskur þessari umsögn með setningunni: "I resent this statement!"

Ég bíð spennt frekari ummæla.

Í spilun: The Beatles - White Album

föstudagur, ágúst 26

Sökk hún djúpt?

Vá, það er ekkert sérstaklega skemmtilegt í skólanum. Útskrift og útlandafaríska sökkar. Ég hlakka til þess að NFMH verður virkt. Annars er ég alveg að fíla busana. Held ég. Allavega einn krullóttann og sætan strák sem á kærustu. Það sökkar líka. Kærustur sökka.

"Ég held ég skrifi bók," hugsaði Dóra á uppáhalds klamedíulímmiða-klósettinu sínu í MH. Bókin mun heita: Játníngar á klósettinu, með í-i eins og Halldór Laxness myndi hafa þetta. Og hún myndi innihalda þau mörgu skrif sem skreyta veggi klósettbása Reykjavíkurborgar. Allt frá, "Ég kúkaði hér 5. febrúar 2004 og það var gott," og til "Ég er hommi og stundaði kynmök á ÞESSU klósetti." Og auðvitað allt þar á milli.
Það væri frekar hresst.

Ég er að vinna. Það sökkar.

sunnudagur, ágúst 21

Gleði

Gausa litla leiddist. Hann sat einn á steininum fyrir utan gula og rauða klifrukastalann og var einmanna. Pétur, Geir og Óli voru allir á fótboltaæfingu en Gausi æfði ekki með þeim fótbolta. Hann var reiður og sár og vildi sko ekki fara heim og hitta mömmu. Mömmu leiðinlegu sem leyfði honum ekki að vaka eftir klukkan níu á kvöldin.

Sem betur fer líður mér ekki eins og Gausa. Mikið er ég fegin.

Gleði dagsins.


Ef ég raðaði bloggalistanum algjörlega eftir gæðum og virkni bloggenda væri Diljá neðst á listanum. Hún er samt ekki lággæða manneskja. Bara bloggari.


Fangari sögunnar:
Antony and the Johnsons - Cripple and Starfish

fimmtudagur, ágúst 18

Blóma- og bíóhamingja

Í dag er sumar, í dag er sól, í dag er frí. Í dag vinn ég í afleysingum. En þrátt fyrir alla galla fæ ég samt ágústkvöldsins ljúfa að njóta.

Það er gott.

Hvernig mun ég njóta þess? Í bíói, sennilega. Slæm staðreynd? Ég ætla kannski að breyta henni. En bara ef ég nenni og hef nóga löngun til þess, annars er ég bíósjúk og hugsa fyrst til þess að fara í bíó á kvöldin en til neins annars. Af hverju að sitja inni í tvær klukkustundir og horfa á kvikmynd þegar maður getur verið úti að njóta sín, njóta lífsins eða njóta ásta.

Af því bara. Bíó er bíó.

Mikil rosalega langar mig í blómavasann sem ég sá i dag. Hann er kallaður "íslenskur blómavasi" af því að í hann kemst bara eitt blóm. Þá þarf maður ekki að koma með neina afsökun fyriri því að hafa í honum aðeins eitt blóm, það komast ekki fleiri. Blóm á Íslandi eru náttúrulega svo dýr eins og flest.
Hagkvæmt og fallegt.

Í spilun: Sufjan Stevens - Come and feel the Illinoise

þriðjudagur, ágúst 16

Jafnvel ?

Undur og stórmerki hafa gerst. Fröken Regína Márusdóttir hefur hafið bloggstörf á lýðnetinu. WWW.regidolls.blogspot.com
Glæsilegt, já glæsilegt.
Óska ég henni velfarnaðar í færslunum sem og lífinu.


Minn helsti draumur byggist á fegurðinni. Bæði í því að verða falleg mannvera að innan sem og að utan en einnig í því að láta gott af mér leiða, gera fallega og stóra hluti. Eitthvað sem lætur æðarnar þrútna út, hárin á hnakkanum rísa og neglurnar þykkjast.
En þetta er bara draumur og gaman er að sjá hversu nálægt mér fegurðin fer, bæði í hugsunum og verki. Flest gengur út á hana og flest hlýst af henni. Það er hægt að segja í hógværni að hún sé sjálft lífið. Byggingarmynd þess og verknaður.

En þetta eru bara pælingar.

laugardagur, ágúst 13

Sumarylur og hið ljúfa líf

Í dag er laugardagur og ég er að vinna í vinnu númer 2 frá klukkan níu til klukkan þrjú. Ég er þunn, ég er þreytt.


Í gær var síðasti vinnudagurinn minn í vinnu númer 1. Ég verð sumsé í fríi þangað til skólinn byrjar. Mhm, yndislegt.


Ég verð að hrósa ákveðinni Erlu Elíasdóttur fyrir bloggið sitt. Ég hef mikið mikið gaman af því.


Af hverju skrifa ég allt í bútum allgjörlega ótengdum hinum hlutum færslunnar?

fimmtudagur, ágúst 11

Neðan úr djúpinu, ris!

Þrátt fyrir hina dramatísku færslu gærdagsins heldur Hin Bjarta hnarreist áfram til móts við líf bloggheimanna. Hún ákveður að láta axlir sínar ekki hníga fyrir efasemdum sínum sem skjóta kollinum helst upp þegar hún má minnst við því. Hún er stolt. Hún er bloggari.

Skvett, skvett,
burtu andi!
Svífið þér ei' yfir mér.
Haldið þér í fjarlægð,
fjandi!
Elle'r slít ég þig í mél.


Eða eitthvað..

miðvikudagur, ágúst 10

Ónauðsynlegt og ómerkilegt

Ég hef ekkert merkilegt að segja og skil eiginlega ekki af hverju ég er að tjá mig um mitt líf hérna á internetinu yfir höfuð. Fyrst ég hef engar góðar pælingar um það sem skiptir máli og góð rök máli mínu til stuðnings er ég ekki viss um hversvegna eða hvort einhver ætti að lesa þetta. Þetta er eitthvað svo, tilgangslaust. Meðan ég gæti verið úti að gera góða hluti og hjálpa til er ég inni að blogga um ómerkilega hluti sem eiga ekkert erindi við alheimsupplýsingamiðilinn.
Ég ætti að vera að fræðast og læra, þroskast, styrkjast og þróa sjálfið en í staðinn er ég inni, að blogga.

Og samt gera þetta svo margir..

mánudagur, ágúst 8

Líður senn að skóla og hausti

Ég hafði hugsað mér að koma með eins og eina frekar dramatíska færslu sem væri þá bæði yfirlit yfir sumarið og væntingarnar sem ég ber til vetursins en ég nenni því ekki. Lífið er ágætt og heldur því vonandi áfram.

Ég er örmagna af þreytu, ég er búin að vera eins og draugur í dag, ég get ekki meir..
Svefn.

Ljóð sem fangar stemminguna:

Nú andar suðrið sæla vindum þíðum.
Á sjónum allar bárur smáar rísa
og flykkjast heim að fögru landi ísa,
að fósturjarðar minnar strönd og hlíðum.

Ó, heilsið öllum heima rómi blíðum
um hæð og sund í drottins ást og friði.
Kyssið þið, bárur, bát á fiskimiði.
Blásið þið, vindar, blítt á kinnum fríðum.

miðvikudagur, ágúst 3

Tískan er sniðug

Hæ.

Í dag er í tísku að blogga um súmóglímu. Ég fíl'ana.
Súmóglímukapparnir hafa band fyrir rassinum vegna þess að þeir skíta víst á sig úr hræðslu. Fróðleikur af vörum Hildar vinnufélaga. Þetta heldur skítnum þá inni. Hagkvæmt og fallegt.

Feitir rassar sko, þeir eru ágætir.

G-strengir eru víst að fara úr tísku og stelpur viðukenna í massevís fyrir hvor annarri að þeim finnist g-strengir ekki vera sexí og vilji ekki ganga í svoleiðis. Svona breytir tískan áliti manns. Sniðugt.




Þessi litli er sennilega þakklátur fyrir bandabrókina sína.

þriðjudagur, ágúst 2

Heimkoma og helgin

Það var gott að koma heim, ég lýg ekki. Eftir níu daga ferðalag var ég þreytt. En þó neita ég því ekki að ferðin var mjög góð, og skemmtileg. En eins og stundum, þá var tíminn kominn. Heimferð.

París var falleg og spennandi þrátt fyrir fáeina galla. En auðvitað er ekkert fullkomið svo ég er sátt.
Frankfurt var skemmtileg þó að gróskan hafi aðallega átt sér stað í strippstöðunum og hóruhúsunum. En félagsskapurinn var góður og ég smakkaði líka Bratwurst. Mamma gerir það betur.

Frekari upplýsinga um ferðina má leita á bloggi Kapteinsins.

Innipúki helgarinnar var fínn. Elsku Blonde Redhead. Elsku Mugison. Elsku Hjálmar. Ég missti af The Reveonettes og Singapore Sling og sé eftir því. Svona er það að vera komin í ruglið. Maður missir af öllu.

Takk fyrir talið Olga. Takk fyrir París Katrín og takk fyrir Frankfurt Regína, Jónas, Guðrún, Jón, Haukur og Villi.

Tónar:
Antony and the Johnsons - Secretly Canadian
The Strokes - Is This It?
Coldplay - X&Y
Emiliana Torrini - Fisherman's Woman
Trabant - Emotional
Air - 10 000 Hz Legend

laugardagur, júlí 23

Eftir klukkutima..

..legg eg af stad med Katrinu og lest til Parisar. Ferdin mun taka sex klukkustundir og komum vid ekki a svaedid fyrr en um fimm leytid.

Svo verdur tessu agaeta laugardagskvoldi eytt i Paris, borg romatikarinnar. Mhm, eg geri mer nu ekki fyllilega grein fyrir tessu, enda lidur mer eins og eg se drukkin, a.m.k. svefndrukkin. Eg vaeri sennilega ekki okuhaef.

Eg vona ad frakkarnir verdi ekki jafn mikil fifl og eg hef heyrt ad teir seu. Jonas radlagdi okkur ad segja bara "sjumapell" a undan ollu sem vid segjum a ensku. Frakkarnir kunni ad meta tad betur en bara ensku, vid eigum vist frekar ad nota handahreyfingar og tessa "sjumapell" taekni heldur en ad tala bara ensku tvi hun gengur vist ekkert.

"Sjumapell water" vaeri tha tad sama og "eg aetla ad fa eina vatnsflosku, takk."
Eg veit ekki betur..

Auf Wiedersehen.

fimmtudagur, júlí 21

Frankfurt, der Stadt

Güten Tag.

I Frankfurt er skemmtilegt og kemur hopnum vel saman. Sigur Rosar tonleikarnir voru vaegast sagt otrulegir og efast eg um ad eg hafi eda muni nokkurntima upplifa adra eins. Jiminn.
Eftir tonleikana gerdumst vid supercool og nutum tess ad hafa fengid backshow passa og hofdum tad notalegt baksvids med Sigur Rosar felogum.

Mikid hefur verid reykt af sisju(avaxtatopaki) tar sem tveir ferdafelagar oss hafa keypt ser slika pipu.(Breytti i pipu ur piku, innslattarvilla.) En gengur flest vel fyrir utan solarleysi.

Ferdina hefur einkennt mikil bjordrykkja, hatur a lestarkerfinu, vinatta, sorg, biturleiki, olvun, Kina, Litlill svefn, mikill svefn ... en nu er verid ad reka a eftir mer tannig ad eg kved ad sinni.

Katrin bidur ad heilsa.
Tschuß.

laugardagur, júlí 16

... 2

Búið er að setja stefnuna á Thaíland næstu jól. Við förum sennilega a.m.k. níu saman.
Mamma, pabbi, ég, Sigrún systir mín, Reynir kærastinn hennar, hans tveir bræður og kærustur þeirra. Svo kannski systur hans tvær, mamman og pabbinn.

Jiminn, það er allt á hreyfingu.


Annars dreymir mig um að fara einhverntímann á námskeið hjá Fallhlífastökkskóla Íslands til að gerast fullhæfur stökkvari. www.skydive.is. Hvenær?
Þegar ég á 142.800 krónur í lausu.





...No I won't be afraid, no I won't be afraid. Just as long as you stand, stand by me...

...

Ein sætasta stelpa sem ég hef séð kom til mín áðan og spurði mig hvar ég ætti heima og hvort ég ætti kisu. Um daginn gaf ég henni blástur af því henni var illt í fætinum. Ég er 17 ára, hún er fjögra ára. Hún er með fléttu alveg eins og ég.

föstudagur, júlí 15

Óyggjandi tilhlökkun

Ég sit í vinnu númer tvö með nýju húfuna mína á hausnum þrátt fyrir hitann, hlusta á Yann Tiersen og hugsa um Frankfurt og París. Mikið hlakka ég til. Það eru aðeins þrír dagar þangað til við förum. Í dag er föstudagur og við fljúgum í loftið klukkan hálf átta á þriðjudagsmorgni.

Rétt í þessu hringdi Katrín og við erum, as we speak(eða ég skrifa), að bóka hostel í parís. Vei.

fimmtudagur, júlí 14

Veltingur

Ég hugsa...
um að selja Eyjamiðann minn, fara á Innipúkann um Verslunarmannahelgina og eiga þá auka 26 þúsund til útlanda eftir fjóra daga?
Auk mun meiri tilhlökkunar á næsta ári þegar Eyjaferðin kemur upp og án stressins í ár sem myndi fylgja því að koma heim á miðvikudagskvöldi úr átta daga útlandaferð og fara með Herjólfi til Eyja á fimmtudagskvöldi í 5 daga.


Hver styður?

Ég á miða með Herjólfi klukkan 19:30 á fimmtudeginum og heim kl. 8:15 á þriðjudeginum. (Hefur einhver áhuga?)

Hver styður?

þriðjudagur, júlí 12

Hugrenningar síðdegisins

Halló.

Það er ekki alltaf gott að vera reyndur því hættir maður að vera á verði.
Það er ekki alltaf gott að vinna mikið, því þá missir maður af öllu.
Það er ekki alltaf gott að sofa í tjaldi, því þá hættir manni að langa til Eyja.
Það er ekki alltaf gott að dansa drukkinn því þá týnir maður gemsum vina sinna og heyrnatólum.
Það er ekki alltaf gott að drekka appelsínusafa því þegar maður er aumur í hálsinum er það vont.
Það er ekki alltaf gott að eiga hulstur utan um iPod því þá nuddar það sandinum við hann og rispar.
Það er ekki alltaf gott að hafa lítið að gera í vinnunni því þá geymir maður fáu verkin til lokunar og þarf að vera þar í auka hálftíma.
Það er ekki alltaf gott að hafa viku til Frankfurtar því þá hefur maður bara viku til planlegginga.
Það er ekki alltaf gott að versla því þá klárast peningurinn.
Það er ekki alltaf gott að eiga vini,
eða jú.

miðvikudagur, júlí 6

Neyðin kennir naktri konu að spinna.

Ég er búin að vera í sveit á vestfjörðum er heitir Lambavatn í viku og hélt til heimkynna minna á mánudaginn.
Bloggleysið hefur fyllt tómið, af engu.

Nú sit ég hér vitandi að sumarið verður, þegar allt er liðið, gott.
Ég er bæði búin að festa mér átta daga ferð til feðranna þýska lands og ferð til Vestmannaeyja um verslunarmannahelgina. Ég er mikið útihátíðarbarn og hlakka því til.

Ég gæti bloggað talsvert um sveitina og það að
- ég er fjósakona í mér.
- ég er orðin sleip í malarakstri.
- ég gaf röndóttri kú nafnið Júlía.

Ég gæti líka bloggað um utanlandsferðina og það að
- ég og Katrín verðum fjórum dögum lengur en hinir og höfum hugsað okkur Parísarferð.
- á morgun verður fyrsti Frankfurtarfundurinn.
- við fáum kannski að fara baksviðs á Sigur Rós tónleikunum.
- ég er helvíti félaus.
- ég hlakka, ó, svo mikið til.

En ég held ég sleppi því.

Takk allir fyrir afmæliskveðjurnar.




Lifum heil og munum það að lífið gefur þér það sem þú gefur því.

miðvikudagur, júní 22

Yndislegt.

Þessi fyrsti sumarmánuður er ekki búinn að vera með þeim skemmtilegustu.
Á meðan venjulegt ungmenni situr á Austurvelli og nýtur sólar sit ég inni og vinn í annarri hvorri vinnunni minni, tek verklegt og bóklegt bílpróf eða er í sumarskólanum.

Þannig er mál með vexti að ég er búin að vera að taka bílprófið og hefur farið talsverður tími i það. Ég hef líka verið að vinna mikið og oft 12 tíma a dag. Svo er það skólinn þrisvar í viku.

Vegna vinnunnar og bílprófsins hef ég ekki haft tíma til að njóta lífsins né að sinna náminu neitt. Vegna þessa er ég ekki næstum því örugg með að ná blessuðu lokaprófinu sem ég þreyti á mánudaginn kemur.
Svo er ég búin að frétta að annað fyrirtækið sem ég vinn hjá stendur mjög tæpt og er kannski að verða gjaldþrota, sem þýðir að það er ekki víst að ég fái útborgað fyrir svita minn, blóð og tár sem urðu efir þar. Frábært. Svo hef ég líka þurft að beila nokkrum sinnum á yfirvinnu í vinnu eitt til að fara og vinna í vinnu tvö(sem svíkur mig). Æjii.

Ég sé fram á mjög litlar mánaðartekjur þennan mánuðinn og fall. Samt er ég eiginlega ekki búin að gera neitt nema að læra og vinna, læra og vinna. Og hef þess vegna ekki getað notið sumarsins neitt.

Nammi namm, júní.

þriðjudagur, júní 21

Skorpuhreyfingar

Margt hefur á dagana drifið og ber að nefna afmælið sem haldið var upp á með miklum látum og mörgum konum á Þingvöllum enda voru ásamt afmæli mínu 90 ár liðin frá því að "karlmenn veittu konum kosningarrétt". Frábært. Takk.

Hæst ber svo að nefna bílprófið sem ég landaði á mánudagsmorgun klukkan níu með pompi og prakt í verklegu bílprófi. Prófdómarinn sagði mig ágætan ökumann þrátt fyrir nokkrar villur. Takk.
Þegar ég keyri ein líður mér eins og svindlara en í rauninni er þetta ekkert svindl. Grúví.
Reyndar á ég að nota bráðabirgðaökuskírteinið (bréfsnifsið) með skilríkjunum mínum sem ég á ekki. Þau verða tilbúin á föstudaginn kemur og Þangað til er ég tæknilega séð ólögleg.
Með bílprófinu mínu uppgötvaði ég að úti í stóra heiminum eru margir lélegir bílstjórar þar sem mér er hleypt út með prófskírteini upp á arminn. Jeminn eini. Ég er hálfskellkuð.



Tileinkunnarorð dagsins: Flashfix forever.

miðvikudagur, júní 15

Að endingu naut það sín, og það naut sín vel.

Já. Þetta tókst.
Að lokum hefur sviti minn, blóð og tár skilað mér árangri. Og árangur skal sá vera góður og gildur. Og upplífgandi.
Ég náði skriflega ökuprófin með aðeins einni villu í A-hluta og einni villu í Bé-hluta. Ég er hetja, goð. Tignið mig.

Já. Mig, sko mig.







Og þá er það bara verklega.. og stærðfræði 203 lokapróf.

Lag: Björk - All Is Full Of Love

þriðjudagur, júní 14

Vinnustaðahugleiðing

Ég á afmæli eftir 5 daga. Þá verð ég sautján ára.

Þegar ég horfi í kringum mig, í kringum líf mitt og á fólkið sem tilheyrir því sé ég sjálfa mig alltaf betur og betur í því ljósi sem ég er miðað við aðra.
Ég held að ég hafi hæfileika en geri mér ekki grein fyrir á hvaða sviðum.
Ég á marga góða vini, en þegar ég verð einmanna á ég erfitt með að muna í hvern best er að hringja og hver er mér nánastur.
Ég held að ég hafi kynnst mörgum náið á síðastliðnu ári en stundum er ég alls ekki viss. Hvern þekkir maður í raun og veru? Um daginn fannst mér ég ekki þekkja neinn.
Ég er ágæt í flestu en ekki ein af þeim bestu í neinu.
Ég hef áhuga á mörgu en ekki gríðarlegan áhuga á fáu.
Mér finnst gaman að skrifa en veit ekki hvað eða hvernig eða hvort ég sé nógu góð.
Ég hef lært á þrjú hljóðfæri en kann í dag ekki að spila vel á neitt þeirra.
Ég hef nær alltaf æft íþróttir en er samt í raun ekki mikið betri en hver annar í íþróttum.
Ég elska listir og nýt þeirra en veit ekki hvort eða hvað ég get skapað.
Mig langar til þess að skapa.
Ég hef eiginlega ekkert á hreinu.
Einu sinni fannst mér ég hafa eitthvað haldgrip hvað sem á myndi dynja, nú hef ég ekkert. Ég get verið að gera hvað sem er og verið hver sem er.
Mér finnst ég hafa yfirsýn yfir lífið og hvernig mitt er, en oft veit ég ekki neitt um neitt.
Ég geri mér grein fyrir því hver ég er, en samt hef ég ekki hugmynd um það.
Ég hef mikinn áhuga á leiklist en veit ekkert hvort ég geti eitthvað leikið.
Ég hef mikinn áhuga á tónlist en skapa hana ekki sjálf og er langt út úr mjög mörgu í tónlistarheiminum.
Ég er mismunandi í kringum mismunandi fólk, stundum hress og opin, stundum lokuð og feimin. Hvernig þekkir þú mig?

Mér hefur verið sagt að ég sé ein af rugluðustu, skrítnuðustu og "flippuðustu" manneskjum sem einhver þekki, en aðrir hugsa, "Guð minn góður, áttu til orð?"




Úff. Ég er allt og ekkert.
Þessar pælingar maður..

föstudagur, júní 10

Einsemd

Ég sakna þess að lifa.
Undanfarna daga hef ég unnið frá morgni til kvölds í tveimur vinnum. Stundum hef ég fengið að sleppa fyrr úr vinnu eitt til að lesa í ökunámsbókinni minni og svara spurningalistum, í gær þurfti ég nefnilega að skila verkefnum úr henni til ökukennarans. Sá tími er afslöppun dagsins. Á mánudaginn tek ég skriflega ökuprófið. Á kvöldin þrisvar í viku fer ég svo niður Í HÍ og læri stærðfræði í tvær klukkustundir í sumarskólanum. Í þessari viku verða skiptin fjögur. Allir vinir mínir eru hættir að hafa samband, enda hef ég engan tíma til þess að sinna þeim. Ég spennist öll upp við að fá símtal frá ókunnugri manneskju sem hringir í skakkt númer.

..Enginn hringir nema rukkarar og lögreglan. Ég fæ engan tölvupóst nema fjölpóst frá fólki að reyna að selja mér steina. Einu bréfin sem ég fæ eru reikningar.
Vinalínan er alveg hætt að svara. Værir þú til í að hafa samband?

Mhm, það er svo gaman að vera til.





Ég er ein eins og rautt og bólgið kýli á rassinum.
Enginn vill hafa mig, enginn vill hitta mig og enginn vill vita af mér.

Matur vikunnar: Jakobs cream crackers

mánudagur, júní 6

Sjómenn gleðjast á landi

Um helgina var sjómannadagurinn. Ég fór til Grindavíkur á ball og gladdist mönnum sjávarins og fiskistofnsins til samlætis. Ég skemmti mér stórvel, enda margt um manninn og hamingja í lofti.

Óðfluga styttist í Frankfurtar ferðina. Dóra, Villi, Jónas, Katrín, Guðrún Stella, Regína, Jón og Haukur.
Munum við skemmta okkur vel, enginn vafi, á Sigur Rósar tónleikum og förum við út 19. júlí í fjögurra daga ferð. Ég hlakka til.

Lög:
Air - Mike Mills
Air - Alone In Kyoto
Air - Venus




Ef ég myndi gera gjörning um fóstur, þ.e. frá frjóvgun til fæðingar þá myndi ég nota lagið Alone In Kyoto sem undirspil.

laugardagur, júní 4

Nýja vinnan

Núna er ég stödd í Hreyfigreiningu, sjúkraþjálfunarstöð og heilsurækt. Já, ég lýg ekki, ég er orðin að stúlkunni í afgreiðslunni nokkur kvöld í viku.
Þessa dagana er því mikið að gera. Í gær var föstudagur en naut ég hans sem slíks? Ó nei.

Föstudagur, 3. júní 2005.
- Kl. 8:30 - 15:50. Vinna nr. 1, Tanni auglýsingavörur, lager og prentun.
- Kl. 16:00 - 19:00. Vinna nr. 2, Hreyfigreining, afgreiðsla.
- Kl. 19:45 - 21:50. Sumarskólinn, HÍ, Árnagarður, stofa 304.

Laugardagur, 4. júní 2005.
- Kl. 9:00 - 11:50. Vinna nr. 1, Tanni auglýsingavörur, lager og prentun.
- Kl. 12:00 - 15:00. Vinna nr. 2, Hreyfigreining, afgreiðsla.

Lífið er ljúft.


Lög:
Queen - Bohemian Rhapsody

The Prodigy - Spitfire

The Prodigy - Girls

fimmtudagur, júní 2

Vinnudagurinn er skemmtilegur

Ég er í vinnunni minni og hér er KissFM bLaStAð allan daginn. Eins og þið sjáið hefur það rosalega góð áhrif á mig, ég syng með flest öllum textum og er alvarlega farin að íhuga aflitun. Ég veit líka með hverjum sum laganna eru.
Rétt í þessu lak góður texti af vörum eins snillingsins.. "Babygirl you make me real, I love you more than sexappeal."
Ég fyllist lotningu, hvílík dýpt. Hún gerði hann raunverulegan.

Ég sé rosalega eftir að hafa ekki tekið þátt í KissFM leik sem var um daginn til að vinna ferð til Boston, ég hefði kannski fengið að fara í sleik við "Eikon" og eina "Pussycat" stelpu, geðveikt. Ég er leið inni í mér vegna þessa.


Lag: I like the way you move

P.s. Kári vinnufélagi minn biður að heilsa, hann er rosalega "American" og er svolítið "Yo niggas in the ching ching.." Kári er bestur.

þriðjudagur, maí 31

Sumar

Nú er komið sumar. Ég er byrjuð í sumarskólanum og sumarvinnunni, afmælið mitt nálgast sem og bílprófið. Flest gengur vel.

Í vinnunni syng ég Ísland ögrum skorið og Lofsönginn hástöfum. Ég ræði heimsmálin við Sigga og hugsa um lífið. Ég ræði við Lilju um giftingar og sambönd, eingöngu.

Vinnan mín er skemmtileg. Ég er búin að vinna við hana frá því að ég lærði allmennilega að telja, þá byrjaði ég að taka þátt í talningunni sem er milli jóla og nýárs. Síðan þá hef ég unnið hér. Ég kann allt. Ég er líka rosa dugleg. Vinnan mín er skemmtileg. Ég brýt upp föt, pressa, prenta, tek til í pantanir, þríf, tel, sendist, sprella og er snilld. Vinnan mín er skemmtileg.


Nót: Vilja sem flestir muna eftir afmælinu mínu 19. júní því þá finnst mér ég vera sérstök. Ég á afmæli á kvennadeginum.

fimmtudagur, maí 26

Samskipti kynjanna

Samskipti kynjanna hér á Íslandi eru mjög sérstök.
Allmennt er að manneskja sem fellur hug til annarrar manneskju ljái viðkomandi manneskju ekki hug sinn heldur bíði eftir partýi þar sem áfengi er um hönd þangað til tekið er af skarið og farið að hafa samband. Svona verða flest pör á Íslandi til, feimnin er svo mikil. Af hverju er ekki hægt að fara öðruvísi að?

Svo ef eitthvað gerist án áfengis þá þarf það að vera mun meira mál heldur en ef það sama hefði gerst í partýi, því í partýum eru allir fullir og "vita auðvitað ekki hvað þeir eru að gera". Djöfulsins rugl.

Af hverju þurfa flest allir að vera fullir eða a.m.k. búnir að smakka áfengi til að "höstla" ?
Og svo er þetta í raun orðið eðlilegur hluti af samfélaginu. Skrítið, frekar fyndið.



Hvað er hægt að gera, einhverjar hugmyndir?



Lag: Franz Ferdinand - Take Me Out

þriðjudagur, maí 24

Í sól og sumaryl ?

Margir þeirra sem upplifað hafa ökuskólann tala um hann sem eða eitt af því leiðinlegasta sem þeir hafi gengið í gegnum á sinni ævi.

Ég fór í fyrsta tímann minn í ökuskóla I í gær og ég skemmti mér mjög vel.
Ég skyldi ekkert af hverju pásan kom svona snemma þar sem við vorum "nýkomin inn í stofuna" og svo var þetta búið, fljótlega eftir pásuna. Samt voru þetta þrír klukkutímar og ég hallaði mér fram a borðið með uppspennt eyrun allan tíma af, í rauninni, áhuga. Rosalega hlýt ég að enda sem ábyrgur og góður ökumaður.

En eitt sem ræða þarf. Hvað er í gangi með veðrið á Íslandi þessa dagana, sem alla daga reyndar. Hvílíkur skítakuldi er þetta eiginlega sem gengur nær fram að mér dauðri. Þetta mun ég ekki höndla lengi til viðbótar. Svo skín sólin eins og hún hafi ekkert betra að gera en að eyða vetni. Ég skil þetta ekki. Er skynsemin dauð?

Ég er að hugsa um stjórnmálafræði, bókmenntafræði eða læknisfræði. Svo og sumarskóla í HÍ.

Lag: Niður árinnar

sunnudagur, maí 22

Sunnudagsfærsla númer tvö

Ég er farin að meta klassíska tónlist mun betur en áður. Mér hefur reyndar alltaf fundist hún falleg en hef ekki komið mér til þess að hlusta á hana neitt af viti fyrr en nú. Ég, systir mín og faðir eyðum nú stundum saman inni í stofu við undirleik meistara Beethovens og Chopins. Ég kann þessum stundum afar vel og hef það í hyggju að hlusta meira á snillinga fyrri alda.

Í gær vann Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sigur í baráttu við Össur Skarphéðinsson um forustustöðu Samfylkingarinnar. Ekki veit ég hvort það sé eingöngu vegna þess að hún er kona en sennilega hefur það spilar stóran þátt í þessu máli. Þó efast ég ekki um að hún sé vel til þess fallin að gegna þessu embætti svo að ég gleðst, enda kaus ég hana. Hún er mjög hæfileikarík, ég kaus hana ekki vegna þess að hún er kona. Þó þykir mér slæmt mál ef konur eru ráðnar í stöður eingöngu vegna kynferðis þeirra, það er líka mismunun, en þó eigum við mikið inni þar sem á okkur hefur verið brotið í langan tíma. Margt er að breytast, kona er komin í embætti Háskólarektors og konur allmennt á uppleið en margt er enn ógert og er baráttan því nauðsynleg. En aumingja Össur, sama dag og hann tapar kosningum missir hann móður sína. Ég get ekki annað en vorkennt honum, nú samhryggist ég.

Það er samt sem áður slæm pólitík þegar fólk kemst áfram aðallega vegna kynferðis, litar eða þjóðernis. Ég varð t.d. rosalega pirruð þegar mamma gladdist yfir sigri Grikkja í Júróvísjón. "Grikkir eru svo skemmtileg þjóð með áhugaverða sögu." En mamma, hverju skiptir það í Júróvísjón?
Núna er það orðið svoleiðis að það skiptir ekki öllu máli þó að lög séu góð þegar þau eru kosin vegna stöðu og staðsetningar landanna í heiminum. Glatað. Einstaklingurinn á að komast áfram á dugnaði, krafti og hæfileikum sjálf síns, ekki vegna þess að hann er kona/karl, svartur/hvítur eða af einhverjum svipuðum ástæðum.. við verðum að geta treyst því að maður komist áfram á eigin ágætum og allir eigi sér von sem vilja og geta. Óréttlætið er svo mikið að mig svíður undan því.

Sunnudagur

Í dag er sunnudagsveður, í dag er líka sunnudagur sem er ágætt. Þetta tvennt passar ágætlega saman.

Ég hef komist að því að ég er afskaplega skiptur persónuleiki, klofinn?
Ég er t.d. alveg rosalega feimin í kringum nýtt fólk, oftast. Og svo á ég ekki sérlega auðvelt með að kynnast fólki. En þegar fólkið er loks komið "innan undir" hjá mér þá sleppur það ekki aftur út í nánd. Svo er ég stundum í svoleiðis skapi að þegar ég hitti nýtt fólk þá tengist ég því strax, ekkert mál.
Þetta fer í raun eftir því í hvernig skapi ég er, ég get nefnilega ekki verið í því að þykjast vera rosalega hress ef ég er leið, þreytt, pirruð o.s.frv.. Ég get bara verið í því skapi sem ég er og þetta fer oft út í öfgar. Annað hvort er ég alveg rosalega hress og til í allt eða ótrúlega róleg og innhverf. Svona er mannshugurinn skrítinn.
Svo að allir, ef segi mjög lítið þá er það sennilega af því að ég er þreytt, hugsi eða e-ð þvíumlíkt, eða mjög feimin. Ekki dæma mig sem manneskju vegna þessa. Takk fyrir.

Ég vona að ég verði ástfangin í sumar, það væri gaman. Ég er reyndar orðin ástfangin, af sumrinu.

fimmtudagur, maí 19

Tarfur sem telur sig mann, en maðurinn telur sig Drottinn.

Í nótt dreymdi mig að nasisminn væri snúinn aftur og væri núna hér á Íslandi. Og ég var fórnarlamb nasismans. Rosalega var ég hrædd í draumnum mínum.

Í gær fann ég pening. Ég hringdi í nokkra banka af þvi að ég hafi ekki hugmynd um hversu margir ónotaðir reikningar væru skráðir á mitt nafn og átti þá debitkortareikning í Landsbankanum sem ég hafði notað þegar ég var svona tíu ára og inni á honum voru hvorki meira né minna en 15.351 króna. Svona getur maður verið djöfulli heppinn. Ég á reyndar bara 4000 krónur eftir, went a little crazy á Laugarveginum. En jæja, svona er þetta.

Núna er kominn hádegismatur, hápunktur dagsins. Ég er öll uppspennt en mig verkjar þó talsvert í hælinn.

þriðjudagur, maí 17

Vinnan er strembin, en hún herðir, það gerir hún.

Hann Sigurður tölvukall kemur með ó fá gullkornin á vinnustundum og léttir mér þannig lundina. Ég þarf reyndar ekkert sérstaklega mikið til að gleðja mig þegar ég er að vinna, hádegispásan er t.d. hápunktur vinnudagsins og er hennar beðið með óþreyju allan morguninn.

* Hvernig er þúsundkall í fleirtölu? - Þið sundkallar.
Úff, of gott.

* Svo segir í þjóðsöngi Íslendinga:
Eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár, sem tilbiður Guð sinnn og deyr.
Hversu eilífur er maður þegar maður deyr. Slæmt.



Já, so that's how I spend my days and years, á sumrin. Vildi endilega nota gott tækifærið í að quota í hina yndislegu mynd Notting Hill. Maður reynir að ströggla, jújú.

Lag: Strange Brew - Cream

föstudagur, maí 13

Ég get verið hræðileg manneskja þegar kemur að mínum hagsmunum

Í dag varð ég hálfpartinn valdur að því að maður í vinnunni minni var rekinn. Já, ég veit hvað þið hugsið. Hún er syndsamleg manneskja sem er sama um aðra og vill aðeins fá sínu framgengt. Að sumu leyti stemmir þessi ályktun en í þessu tilfelli í raun ekki. Hér var um að ræða mann sem vann hjá foreldrum mínum í fjölskyldufyrirtækinu, sem ég mun að endingu sennilega eignast að hluta. Maðurinnvar aðvitað að fá laun, en laun fyrir lélegt verk. Þetta var ég ekki sátt við og sérstaklega vegna þess að þessi umtalaði maður var með hærri laun en ég, ég sem er búin að fórna mér fyrir fyrirtækið í mörg ár frá blautu barnsbeini. Nei, þetta læt ég ekki viðgangast.
Og nú er maðurinn farinn.

miðvikudagur, maí 11

Dóra litla var eitt sinn klár en svo sofnaði heilinn.

Góðar fréttir og slæmar fréttir.

Ég er búin í prófum(jeij), en það er næstum því vika þangað til allir hinir klára prófin sín.

Ég er ekki búin að fá aðra vinnu en hjá mömmu og pabba sem ég hef mikið ógeð á.

Ég er ekki lengi kusa inni á síðunni hennar Ingu. Hjartað er enn að jafna sig.

Ég fékk þó að vera kusa inni á síðunni hennar Ingu, það eru ekki allir svo sérstakir.

Ég er fallin í stærðfræði, Haffi svindlaðist inn á kerfið og athugaði það. Æji.


Ég sem hélt að ég myndi aldrei falla, ég sem var svo klár.
Ég myndi sigra heiminn og flytja til Belgíu, en nú er það allt farið.
Farið til Ríó? Farið til Spánar, spyrjið þið.
Nei!
Ekkert bíður mín nema opinn sorpgámurinn, jú sem og dauðinn.
Mig langar að æla og heilinn ætlar út.
Heilinn, hvaða heili?



Þessi finnur svo greinilega til með mér.
En reyndar, reyndar er ég að fara til Frankfurtar.

sunnudagur, maí 8

Færsla, er eigi er væmin

Í dag er sunnudagur. Á morgun er mánudagur, þá tek ég lokapróf í dönsku 203. Það verður nú gaman. Svo kemur þriðjudagur og þá þarf ég að læra mikið fyrir íslenskupróf. Það tek ég á miðvikudaginn. Svo er ég búin í prófum. Þá fer ég kannski að vinna við símasölu. Kannski. Og þá mála ég líka herbergið mitt. Jeij.



Mynd af mér, ég er svo spennt fyrir ævintýrum.

Þetta er einnig mynd af mér, hér er ég í nöktu ævintýri, og er ljóshærð.

Ég var í mjög góðu skapi þennan dag.

Það er svo gaman að leita af sér á Google.


Lag: The Prodigy - Spitfire
Líkamshluti: Rassinn á Katrínu

föstudagur, apríl 29

Skólalok

Ég er búin að vera hálf klökk í allan dag. Það er svo erfitt að kveðja þá sem manni þykir vænt um.

Dimmitering var í dag, í kvöld er dimmisjónball. Ég á eftir að sakna margra en fagna þó því að sennilega munu margir skemmtilegir krakkar koma nýir inn á næsta ári. Alltaf að líta á björtu hliðarnar, Haffi kann að peppa mann upp. En erfitt er að horfa á eftir þeim sem maður hefur aðeins átt eitt skólaár með, margir eru þó eftir, auðvitað.

Ég held að ég reyni að útskrifast á þremur árum. Ég get ekki lagt það á mig að fara svona oft í þetta kveðjuferli. Fyrst um jólin og svo núna, æji ég er hálf innantóm.

Farvel, kæru vinir. Við hittumst á nýjum stað.

miðvikudagur, apríl 27

Sumarið og sölumennska

Markaðssetningar eru frábærar.

- Yorkie er markaðssett á sniðugan hátt fyrir alla.
"Yorkie - ekki fyrir konur!"
Það verður til þess að stráklingar og menn kaupi þetta, einfaldlega til þess að sanna karlmennsku sína. Svo vilja konurnar auðvitað afsanna þetta slagorð með því að kaupa þetta og feisa þá sem selja Yorkie og þeir auðvitað fýla'ðetta því að þeir græða. Schnilld.

- 1944 réttirnir, "fyrir sjálfstæða Íslendinga!". En spurningin er, hversu sjálfstæður er maður þegar maður borðar endalaust pakkamat? Er það sjálfstæði að kunna ekki að elda staðgóðan kvöldverð?
Maður spyr sig.


Sumarið er loksins komið.
Menntaskólinn við Hamrahlíð tæmist í hádegishléum þegar bjartsýnir, oftast nær valhoppandi menntskælingar yfirgefa inniveruna fyrir sólina sem sleikir svo undurblítt. Grasið á hólnum er heillandi þessa dagana. Bráðum tekur Austurvöllur við.


Ég er farin í leikfimi, allt kvöldið mun fara í það að læra jarðfræði og að vera húsmóðir.
Próf eru svo skemmtileg. Hong Kong örugglega líka.



Austurvöllur er ekki svona útlítandi þessa dagana.

sunnudagur, apríl 24

Staup - Götuleikhús - Vorpróf - Hong Kong

Þessi helgi einkenndist af mörgum fullnægingum, Laugarveginum en engum námskbókum.

Staupið fullnæging skiptist í 50% beilís og 50% piparmintulíkjör. Mhm, mjög gott.
Einnig sagt til að fólk fari ekki að leggja nafn mitt við klámhunda og ódæðismenn. Stragedía.

Í dag ætla ég að læra.

Það er ekki búið að hringja í mig úr Götuleikhúsinu svo að ég býst ekki við að vera með, en það er í lagi. Ég reyni bara aftur síðar.
Jón og Hera komust inn, það er frábært og ég samgleðst þeim.

Á morgun er nákvæmlega vika í að prófin hefjist. Á þriðjudaginn fara móðir mín og faðir til Hong Kong. Ég verð ein heima í 9 daga sem þýðir að ásamt því að verða að læra mikið fyrir komandi vorpróf þarf ég einnig að þrífa, elda, taka strætó í skólann, sjá um köttinn o.s.fv..
Guð minn góður.


Platan: Beck - Guero

fimmtudagur, apríl 21

Lífið

Vá, það er svo gott að fá "raunveruleika tjekk" og vakna upp á ákveðinn hátt.

1. Ég held að ég hafi aldrei gert mér fyllilega grein fyrir hvað mér þykir ótrúlega vænt um stelpurnar sem eru búnar að vera með mér í leikfélagsstjórn í ár. Mér þykir vænt um þær á svo sértakan hátt og allar á sinn hátt, enda eru þær allar svo sérstakar og ólíkar. Inga, Hildur, Katrín og Ásta. Vá, ég elska ykkur. Verum alltaf vinkonur.

2. Ég vaknaði við að sjá hversu sterkum vinarböndum mér tókst að bindast í grunnskóla við ákveðna manneskju. Þrátt fyrir að við höfum farið í sitthvorn skólann og hittumst þar af leiðandi mun minna en áður erum við enn jafn nánar. Við eigum hvora aðra enn jafn mikið, það er æðislegt.

3. Það er skrítið að sjá hversu náinn maður getur orðið einhverjum á ótrúlega stuttum tíma. Á aðeins nokkrum mánuðum getur maður orðið jafn náinn eða nánari einhverjum sem maður hefur aðeins þekkt í stuttan tíma og maður er þeim sem maður hefur þekkt í 12 ár, ótrúlegt.

4. Líf foreldra manns snýst að stórum parti um að láta okkur ganga vel í okkar lífi. Að hjálpa okkur á öllum sviðum, að gera allt sem þau geta fyrir okkur svo að okkur farnist sem best. Það er skrítið að hafa tvær manneskjur sem að lifa fyrir að sjá mann vaxa, dafna og þroskast, að verða að sjálfstæðum einstaklingi. Skrítið.

Ég gæti ælt á sjálfa mig núna, hvílík subbuvæmni, vá.

Ég fór í prufu í götuleikhúsið um daginn. Það komust 12 manns í viðtal úr prufunum og ég var svo heppin að vera ein af þeim. Það eru bara 6 sem fá að komast í hópinn því að 3 þeirra sem voru í götuleikhúsinu í fyrra komust sjálfkrafa inn. Nú er bara að bíða og sjá, ég verð ekki fúl þó ég komist ekki inn. Nokkrir einstaklingar sem eru a.m.k. jafn hæfir og ég ef ekki hæfari komust ekki einusinni í viðtölin. Ég ætla mér ekki að kvarta yfir neinu.


Tónlist: úr myndinni "Amélie".

fimmtudagur, apríl 14

Gúrme

Ég er svo upphafin af spenningi, úff. Ég er heima með streptacocca. Á morgun fer ég aftur í skólann og ef mamma er ógeðslega góð í sér fæ ég að fara út í kvöld! Hugsið ykkur! Ég, úti, í stóra heiminum, ein! Svona getur þetta verið, eitthvað sem mann óraði ekki fyrir er allt í einu orðinn möguleiki. En ekki má gleyma að ekkert er enn staðfest, við bíðum úrskurðar.

Það sem ég er spenntust fyrir þessa stundina er hvenær mangóið mitt verði nógu þroskað og mjúkt að ég fái af mér að borða það. Maður er að eyða góðu mangói í rugl ef maður borðar það óþroskað, það er svo sem gott á bragðið en munurinn á því þroskuðu og óþroskuðu er "beyond your imagination" eins og alltaf er sagt í trailerunum. Talandi um trailera. Vá maður.

Að hugsa sér, allur þessi spenningur í einni færslu á fimmtudegi, og ég með streptacocca!
Svona er heimurinn sniðugur staður.


Hugsun: Ef maður fær sár meðfylgjandi sótt án þess að vera með sárasótt, af hverju heitir sárasótt þá sárasótt?


Ég vil nú ekki hafa mangóið mitt alveg svona þroskað.

miðvikudagur, apríl 13

Dýravíg og rútubílstjórar

Ætli kettir íhugi aldrei sjálfsvíg? Ætli dýr almennt missi aldrei viljann til að lifa?
Hafa mennirnir einhvern einkarétt á því að drepa sig?

Ég horfði á köttinn minn áðan standa við opinn gluggann í herberginu mínu á annarri hæð og hugsaði, hefur Branda sterka löngun til að lifa eða gerir hún það bara af því að þess er ætlast til af henni, að hún lifi?
Ég fékk engu svarað, enda sagði ég þetta ekki upphátt, og svo er hún Branda einungis köttur og kann ekki að tala íslensku.


Annars er þessi hugsun með rútubílstjórana.
Þegar þeir keyra með fullt af fólki í rútu langt út á land í einhverja ferð, eru þeir þá bara á launum kannski í 3 daga bara við að bíða eftir að fólkinu þóknist að fara heim? Svona þegar maður leigir sér rútu, ekki eyðir rútubílstjórinn bensíni heillar rútu báðar leiðir til þess eins að geta farið heim að sofa? Er það nokkuð?
En samt sem áður er þetta ekki góð tilhugsun, eyða þeir þremur dögum úr lífi sínu í að bíða eftir fólkinu til að fara heim?

þriðjudagur, apríl 12

Óréttlæti heimsins

Ég lærði allan daginn, allt kvöldið og allan morguninn undir sögupróf, las mjög þunga bók og lagði mikið á mig. Ég fékk 5 í einkunn.

Ég byrjaði að læra klukkan hálf tíu kvöldið fyrir sögupróf og las aðeins glósurnar. Ég fékk 8,1.

Sorgleg staðreynd, en kemur sér þó vel fyrir mig.



Um daginn var ég rosalega stressuð að læra fyrir stærðfræðipróf. Mjög dugleg en fékk 5 í einkunn.

Á morgun er ég að fara í stærðfræðipróf og er mest lítið byrjuð að læra. Hvernig ætli fari?

Lygar og ógeð

Gefum blóð!



Guð minn góður, á morgun mun ég láta lífið þegar blóðbíll Blóðbankans mætir í MH til að tappa af MH-ingum. Undirbúum okkur, látum blóðið fossa og nálarnar svamla í rauðu MH blóði. Blóðgjafir eru svo djúsí.


Kannski er þetta þó ekki jafn gott mál og áður var haldið?
Hvað hefur Blóðbankinn og varnarlausir blóðlitlir sjúklingar að gera við þetta blóð? Blóð skítkasts, lyga og ógeðs. Hvar er blóð jákvæðninnar og umburðalyndisins niðurkomið? Það er a.m.k. ekki nálægt Menntaskólanum við Hamrahlíð. Það er alveg á hreinu. MH-ingar skíta yfir aðra MH-inga, dæma fyrirfram og velta sér upp úr jafnvel minnstu göllum náungans. MH er orðinn jafnslæmur og Verzlunarskóli Íslands ef ekki verri, fólk á ekki séns. Allir verða að vera svo öðruvísi, allir eru eins.

Ef þú ert hress verður farið að skíta yfir sennilegar ástæður hressleika þíns.
Ef þú ert rólegur verðurðu ekki talinn nógu hress.
Ef þú ert artí eru of artí.
Ef þú ert ekki nógu artí ertu aumingi og skítapakk.
Ef þú ert ekki vinstri sinnaður ertu verra.

Í dag heyrði ég gott samtal. Þar skitu "1" og "2" svo illa yfir yfir manneskju, "X", að ég hef aldrei heyrt annað eins áður. Samtalið liggur kannski ekki alveg orðrétt í minni mínu en þó er hér smá hluti af því til sýningar á hroka í MH. Viðbjóður segi ég, ekkert nema. Sorglegt hvert heimurinn sem og álit ungs fólks stefna. Taki sá til sín sem veit upp á sig sökina. Ég var orðlaus og labbaði í burtu en sagði svo síðar skoðun mína.

Fyrst voru niðurrakkanir á persónuna X af hálfu 1 og 2 en svo var farið yfir í eitthvað sem mér finnst vera ekkert nema "cheap" og sorglegt. Það er í lagi að segja skoðun sína en þetta var hreinn viðbjóður.

1: ....Já, og X þykist oft vera svo mikið "kjútípæ" í tímum fyrir framan kennarana.

2: Hehe já, fáviti.. (segir eitthvað sem getur komið upp um hver X er, en hræðilega ljótt og niðrandi komment var það þó).

1: Það er svo fyndið miðað við hvað X er ógeðslega langt frá því að vera "kjútípæ" og er ljót manneskja.

2: Já, oj. Hehehehehehe.. (rosalega fyndið).

1: Og svo illa vaxin, X er bara ógeð, váá.

Fyrst töldu 1 og 2 eitthvað upp sem fer í taugarnar á 1 og 2 við X. Eitthvað sem getur svo sem alveg verið satt, en heyrir maður annað eins um manneskjur oft sagt. En svo er farið í það að rakka svo illilega niður útlit viðkomandi X að ég veit ekki hvað ég heiti. Ekki að það skipti máli, en persónulega finnst mér X frekar myndarleg manneskja og óþarfi að setja út á útlit X. Það að 1 og 2 skíti svo yfir líkamsvöxt X bendir til þess að 1 og 2 vilji hafa alla steypta í sama mót og nákvæmlega eins. Hér á ágætis frasi við, hversu lágt er hægt að leggjast?



Í MH eru allir meðteknir. Ég elska umburðarlyndi MH-inga margra hverja, allir fá að vera eins og þeir eru og í MH skiptir innihaldið mun meira máli heldur en annað, enda líkaminn bara hulstur um sálina. MH er svo rosalega líbó skóli.

Minn Guð hvað ég dái MH í dag. Þar er svo gott að vera, allir eru velkomnir.

laugardagur, apríl 9

Fáðu'ðér tvö svo þú piprir ekki

Í gær..
drakk ég bjór, tapaði ég, varð ég full, dó ég næstum því, leit ég á bjartar hliðar, kyssti ég, missti ég, söng ég, datt ég, hræddist ég, lá ég, splæsti ég, átti ég,..

Í dag..
hef ég enga framtíð, á ég enga vini og er lifandi dauð.

Nei, nei, nei. Ég er ekki bitur.

fimmtudagur, apríl 7

Kosningar á morgun? Nei nei.. Frankfurt

Allt í einu hverfa allar mínar pælingar. Allt er rólegt, þrátt fyrir komandi erfitt sögupróf og kosningar. Núna skiptir ekkert af því máli.. Það fer eins og það fer.

19. júlí verð ég stödd í Frankfurt ásamt góðu fólki á Sigur Rós tónleikum... óóó já

þriðjudagur, apríl 5

X-Zúúúber í listafélag MH

Góðan dag.

Ég heiti Dóra Björt Guðjónsdóttir og er nemandi í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Ég ásamt 5 öðrum duglegum og menntaðarfullum ungmennum er í framboði. Framboð í Listafélag MH.

1. Vilhjálmur Hilmar Sigurðarson eða Villi sem er núna á skólaárinu 2004-2005 starfandi í ráðinu Mímisbrunni sem sér Gettu Betur keppni framhaldsskólanna.
2. Tumi Karlsson sem er núna starfandi í Beneventumráði MH, skólablaðinu.
3. Sandra Ólafsdóttir sem starfar eins og er í Óðríki Algaula, ráðinu sem sér um lagasmíðakeppni og söngkeppni Í MH.
4. Zakarías Herman Gunnarsson.
5. Regína Mársudóttir.
6. Ég, Dóra Björt Guðjónsdóttir, sem starfa eins og er í stjórn Leikfélags Menntaskólans við Hamrahlíð.

Okkar helstu markmið byggjast á því að koma nýjum og ferskum anda í listalíf MH. Síðastliðið ár hefur verið starfandi virkt listafélag í MH en allt má bæta.

Við ætlum að halda uppi virkninni sem núverandi listafélag státar af. Við ætlum að einbeita okkar að því að framkvæma hugmyndir MH-inga og koma fleiri listgreinum að en hafa verið í hávegi undanfarið ár. Við ætlum að koma inn með fleiri gerðir af tónlist en metal og ætlum okkur t.d. að gefa út svokallaðan Listapésa sem mun innihalda umfjallanir um helstu menningar- og listaviðburði sem eru í gangi í Reykjavík og fá afslátt á þá viðburði fyrir MH-inga.

Við munum byrja á því að halda feita útitónleika fyrir utan MH, íssala, teppi, brekka og ljúft haustkvöld. Mhm, hlómar það ekki vel?
Við munum svo gefa út mánaðarlega Listapésa, eins og áður sagði.
Við munum halda 2 hiphop-kvöld á önn, enda hefur verið talsverð fyrirspurn eftir þeim þar sem þau hafa verið fá í ár.
Við munum halda Sull, Hairwawes og allt það sem okkur fannst heppnast vel á síðastliðnu ári ásamt því að koma með ferskleika og hlusta á og framkvæma góðar hugmyndir MH-inga með listakassanum.

Og fleira og fleira og fleira og fleira....


Við gefum ykkur hjartað okkar ef þið gefið okkur atkvæðið ykkar.
Með fyrirfram þökk, X-Zúúúber.

föstudagur, apríl 1

Verði ljós

Bjartsýnin og lífsþorstinn hafa yfirtekið hugann. Sólin skín og hjartað berst vegna tilhlökkunnar til lífsins. Já, lífið. Fingurgómarnir titra við og við og bros leikur um varirnar eins og fjallalækur dansar við smásteina.
Helstu ástæður munu vera frestun söguprófs um einn dag og frestun stærðfræðiprófs um heila viku. Ég get skrifað það og meinað, að í augnablikinu er lífið gott.

Í dag er föstudagur, ég er nýbúin að snæða ljúffenga víetnamska máltíð og aðeins einn skólatími skilur á milli mín og helgarinnar. Í kvöld mun ég njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða með vinum mínum, drekka gott öl og ræða mál hjartans. Ég get horft á það með blik í augum að ég hef heila viku til að vinna upp stærðfræðina og heila ævi til að njóta lífsins. Ef góður Guð leyfir mun ég nú í sumar eiga eitt besta sumar lífs míns, ef ég kemst inn í götuleikhúsið.






Lag: Nancy Sinatra - These Boots Are Made For Walkin'
Ástand: Gleði

fimmtudagur, mars 31

Herra Skrúdds og andi liðinna tíma

Ég er búin að gera tvær tilraunir til að blogga eftir þessa páska. Það seivaðist í hvorugt skiptið þökk sé interruslinu. Oj.

Matur er stærsti og versti óvinur minn. Ég hata að elska mat. Hata.

Það sem ég ætla að einbeita mér að í náinni framtíð:

- Námið.
- Vinir mínir.
- Andleg heilsa og það að losa um stress.
- Líkamleg vellíðan (æfingar og heilbrigt matarræði).
- Ég.

Draumórar? Ég held ekki.



Lag: Blur - Tender
Ástand: Þreytt, stressuð

fimmtudagur, mars 17

Lemon tree

Það er svo sniðugt að fara upp á bókasafn og fá lánaða geisladiska, setja þá inn í tölvuna, veltast með koverin í einhvern tíma og skila þeim svo. Mjög hentugt.

Fyrir hana Regínu þá skal ég tengja titilinn "Lemon tree" við þessa færslu. Ekki er ég aðeins að hlusta á lagið Lemon tree með Fool's Garden heldur passar textinn svo sem ágætlega við.
Jæja..

Á morgun er síðasti skóladagurinn fyrir páskafrí. Það er, ó svo yndislegt. Ég er komin með smá skólaleiða, leiðinlegt að vera alltaf að kafna úr verkefnum fyrir skólann. Skólinn er samt fínn, gott að hitta krakkana. En úff, þessi heimavinna..

Eftir páskana verður svo kosningavikan. Þá kemur í ljós hverjir munu halda starfsemi Nfmh uppi á næsta skólaári.. zzzzspennandi. Alveg Zúúber.

Hnje hnje.

mánudagur, mars 14

Helvítis..

Ógeðslega er ég súr í skapinu eitthvað.
Helvítis.. Drasl.. Fjandans..

Tenging

Ætti ég alltaf að láta titilinn tengjast efni bloggsins? Skiptir það máli?

Annars finnst Ómari Kjartani Yasin víst að blogg séu flest öll tilgangsleysa. Þá spyr maður sig hver tilgangurinn sé með því að vakna á morgnanna, drattast í skólann til að hlusta á marga hverja súra kennara og skrifa svo um það, og ofan á allt, pósta það á internetinu. Kreisí. En Ómar er kóngurinn og ég er farin að íhuga það alvarlega að leggja niður bloggið mitt. Eða blogið, eins og hann skrifar það.
Ómar, þessi gaur.

Annars er ég að hugsa um að fara að skipuleggja mig betur og byrja á því að skrifa niður drauma mína og þrár. Svona til að hafa þetta á svart/hvítu fyrir framan mig. Jæja, hér fer það..

Draumar og þrár Dóru:
1. Láta mér líða vel í flest öllum aðstæðum.
2. Allmenn velmegun.
3. Ást og hamingja.
4. Peningar.
5. Rokkstjörnuferill með(helst) Kurt Cobain endurholdguðum.
6. Endalaus páskaegg sem ég fitna ekki af.

Já, svona get ég verið djúp.



Afrek dagsins: Að flassa alheiminn óafvitandi og að labba á ljósastaur. Vel gert Dóra.

laugardagur, mars 12

Sexy boy

Ég fór í Bláa lónið í dag af því að Karen átti afmæli á þriðjudaginn. Það var rosa gaman. Hárið mitt er samt frekar ógeðslegt.

Í kvöld ætla ég að gerast svo villt að fara í bíó af því að ég sofnaði yfir Ídólinu í gær. Ég hef alveg rosalega mikinn áhuga á Ídólinu. Stelpan sem mér fannst sætust vann samt sagði pabbi mér. Eins gott, sæta fólkið á alltaf að vinna.

Það verður að vinna svona, hvað getur það annars unnið? Það er svo vitlaust.

fimmtudagur, mars 10

Ég elska..

Já, þetta tókst.

Hið göfuga ætlunarverk gærdagsins innsiglaðist klukkan 23:00 þegar ég var stödd í strætó, í Mjóddinni. Ég var samtals í 9 klukkutíma í strætó og las dönsku, eins og áætlað var, og hálftíma betur eða til klukkan 23:30. Þetta jaðrar við geðveiki, myndu sumir segja, en innst inni veit ég hvar heilbrigðið býr. Hvað er svo sem að smá geðveiki hér og þar?

Ég kláraði dönskubókina Drengene fra Sankt Petri og þreytti prófið í morgun. Mér gekk bara ágætlega. Jeij.

Ég elska nokkra. Ég innilega elska. Ég elska Olgu, ég elska Regínu, ég elska Katrínu, ég elska Ingu, ég elska Hildi, ég elska Karen, ég elska Jón, ég elska Ástu, ég elska.. ég elska marga. Það er kannski svolítið skrítið að elska svona marga, svo innilega.


Njýheð dagsins: Linkar í boði Olgu og fær hún auðvitað að vera þar efst á lista, enda frábær bloggari.

miðvikudagur, mars 9

Líðandi stund

Í gær átti Karen afmæli, hún er búin að vera besta vinkona mín frá því í 5ta bekk. Við kynntumst samt í 3ja bekk þegar hún kom í Ártúnsskóla. Þá sátum við saman og áttum eins pennaveski nema mitt var rautt með hestum en hennar fjólublátt með svönum. Þetta er líka munurinn á okkur, ég er hross en hún svanur. Hehe, grín. Eða hvað?

Hún fékk líka bílpróf í gær og við fórum á rúntinn eins og venjan er þegar einhver fær bílpróf, hún stóð sig vel. Ég elska Karen mjög heitt, þrátt fyrir að leiðir okkar sem bekkjarsystur hafi skilið þegar ég fór í MH en hún í MS. Jæja..

Í dag ákvað ég að eyða 9 klukkustundum í strætó, lesandi dönsku. Að mér var hlegið og fólk gerði létt grín, enginn hafði trú. Krakkar mínir, í dag er ég búin að sitja og lesa dönsku í strætó í 4 klukkutíma, aðeins 5 eftir. Mér mun takst ætlunarverk mitt, ég verð þar sitjandi þangað til klukkan 23:00 í kvöld só help mí god! Já!

Nú er ég, sem ég Dóra heiti, farin að kaupa strætómiða til að geta haldið ferð minni áfram. Metnaðurinn er gríðarlegur, blómkáls-brokkolíbollasúpan mín er búin.

Ekkert gæti staðið í vegi fyrir mér nema sjálfið.. Sjálfið er traust.

þriðjudagur, mars 8

Dóra Björt, hinn fullkomni valkostur..

You're Perfect ^^
-Perfect- You're the perfect girlfriend. Which
means you're rare or that you cheated :P You're
the kind of chick that can hang out with your
boyfriend's friends and be silly. You don't
care about presents or about going to fancy
placed. Hell, just hang out. You're just happy
being around your boyfriend.

What Kind of Girlfriend Are You?
brought to you by Quizilla


En.. af hverju er ég þá á lausu?

Danskelærerne du går i.. helvede!

Titill færslunar vitnar í eitt vel samið "danskt" lag fyrir framlag Árbæjarskóla í Skrekk nokkurn, hæfileikakeppni grunnskólanna, árið 2003. Djöfull var þetta súrt lag. Rappað af stelpum(ekki að stelpur séu verri rapparar, rapp er bara allmennt ömurlegt), slæm danska, mjög slæm. Boðskapurinn var samt kannski ekki út úr kú.. það finnast náttúrulega engir góðir dönskukennarar á Íslandi. Já! Ég leyfi mér að alhæfa. Þær leyfa sér samt margar hverjar, freðýsurnar, að vera með tíkarstæla við mann. Lovísa, LOVÍSA!

Ég er annars í dönsku-tölvutíma. Það var kveikja færslunnar. Ég er samt ekkert sérstaklega bitur. Hey vá, ég sagði orðið sérstakt tvisvar sinnum í síðustu færslu og núna víkka ég sjóndeildarhringinn og skrifa sérstaklega. Jee, Dóra í heimsklassaflokki. Reyndar er ég í klassaflokki hjá Jóni, jeij. Mér finnst ég vera rosalega sérstök. Nei vá, þarna kom orðið aftur!

Ég þarf að læra svo mikið. Æl. Ég þarf eiginlega líka smá að pissa. Ég nenni hvorugu.

Ég kann ekki að setja linka inn á bloggið, ekki heldur myndir í færslurnar. Ég er ömurleg.

sunnudagur, mars 6

Háfleyg

Í rökkri óttans hvíslar sálin, ég elska þig.

Jæja, helgin á enda. 1/3 af Mávahlátri lesin og dagur lesturs sem og reikandi hugsana framundan. Eins og ég sagði, jæja.. Mávahlátur er samt hress bók, ég er bara svo lengi að lesa. Mig er farið að langa talsvert á hraðlestrarnámskeið, það væri frekar gott.

Afmæli hjá Guffu og Ingu í gær. Fínt kvöld. Ég komst á netin, svona líka góð á'ðí, og fór að commenta. Yndishleght (sagt með mjög sérstakri röddu, með áherslu á há-in og þvöglumælt ess).

Það er sérstakt að segja frá því að maður hafi frá engu að segja, því þá er maður í rauninni að segja frá einhverju. Stundum þegar maður hittir einhvern sem maður hefur ekki hitt lengi, þá er maður spurður frétta. Og maður svarar "nei, það er eiginlega ekkert að frétta, bara skólinn og svona", þrátt fyrir að mikið hafi gerst í lífi manns það kannski hálfa ár sem maður hefur ekki hitt manneskjuna. En hvað er svo sem hægt að segja? -Já, ég er búin að mála herbergið mitt, frænka mín dó um daginn, systir mín svaf hjá tveimur strákum í janúarmánuði og ég er alvarlega að íhuga að láta skrá mig úr kirkjunni eða að hætta í skóla og ganga í friðarsveitirnar.

föstudagur, mars 4

Hár

iPod er gott mál, sálarlaus eða ekki. Maður verður að fylgja þróuninni, annars verður maður bara eftir. iPod er svo sannarlega framtíðin, en auðvitað má líka halda í annað sem margir telja innihalda meiri sál.. Það er sjálfsagt mál að textarnir, umslögin og hulstrin innihaldi sálina. En iPod er samt mjög þægilegur í notkun.

Oh Lord, won't you buy me a Mercedes Benz?

Ég er búin að taka 3 tíma hjá ökukennara, loksins byrjaði ég. Jeij. Það er gaman að hugsa um að í sumar verði ég keyrandi.. Mhmm. Það er oft mikið svekk að standa undir bílprófsleysi, sérstaklega á kvöldin á köldum strætóskýlum. Prrrr. Ég ætla að fá bílprófið á afmælinu mínu, og hana nú.

Hvað er eiginlega málið með mars og afmæli? Jesús. Ekki það að Jesús komi afmælum mikið við..

Hvernig beygir maður nafnið Jesús?

þriðjudagur, mars 1

Ágætis þriðjudagur

Þú færð auka kópíur að vild á hagstæðu verði. -Stór auglýsing fyrir passamynatökur á Hlemmi.

Hvað er að gerast fyrir íslenskuna spyr ég nú? Grey daman. Engin, alls engin virðing.

Mér finnst svo notalegt(ég hefði notað orðið kósí, en það er erfitt eftir síðustu yfirlýsingu) að fara í gömlu góðu hverfisbúðirnar og sjá þær á mörgum götuhornum í gömlu góðu Reykjavík. T.d. Sunnubúð og Háteigskjör. Meira að segja nöfnin eru svolítið sæt. Ég man vel eftir búðinni sem var á horninu á götunni minni þegar ég bjó í 101 fyrstu fjögur árin mín. Ég bjó á Ásvallargötunni, búðin er þar enn. Mér finnst svo gott að koma inn í hana, sem gerist reyndar sjaldan. Það minnir mig á eldri og ljúfari tíma. Þó að þessir tímar séu ekki alslæmir, alls ekki. Þeir eru bara öðruvísi, auðvitað.

Eftir að ég flutti hingað í heiðardalinn ætlaði ég mér alltaf að flytja aftur á Ásvallargötuna strax og ég gæti. Ég ætla mér ennþá að flytja í 101, en kannski ekki á Ásvallargötuna. Ætla að finna íbúð nær Laugarveginum. Mhmm.. Laugarvegurinn, 101. Það góða við Reykjavík...

sunnudagur, febrúar 27

Hvað er svo sem hægt að segja?

Ég fór og sá Brotið, sem sýnt er í Hafnarfjarðarleikhúsinu, í gær ásamt Ástu, Katrínu og Ingu. Eftir sýninguna var ég orðlaus og eina sem komst út úr mér var vá. Ótrúlega áhrifamikið og átakanlegt lýsir þessu helst best. Sviðsmyndin skilaði sér rosalega vel og þetta var allt.. tjah, vá.

Eftir það var haldið á Tuttuguogtvo eða Club Twentytwo eins og norsarinn talaði um 22 um daginn. Þar var verið að halda upp á tvítugsafmæli Sigga Odds og átján ára afmæli Guðrúnar og var góður skari þar saman kominn. Ég var ofuredrú enda var ætlunin að eyða deginum í dag lærandi. Það á allt saman eftir að rætast um síðir.. jájá.

Á föstudaginn hélt Olga upp á afmælið sitt, Atli Sig líka, og Hólmfríður Helga. Allt að gerast, til hamingju krakkar. Ég samdi ljóð um Olgu handa Olgu, ég elska Olgu. Mhmm..

Núna ætla ég að taka mér tak, eftir daginn í dag verð ég sátt og ekki stressuð! Jebb jebb jebb.

Lærdómur, hér kem ég.

fimmtudagur, febrúar 24

Ský í kaffinu mínu

Að hafa Ísland sem heimastöð en heiminn allan að leikvelli. Gott múv. Þetta lærir maður af forsetanum sínum.

Um daginn var ég sofandi heima hjá mér í rúminu mínu að vanda en vaknaði svo um nóttina klukkan 03:50. Ég veit nákvæmlega hvað klukkan var því ég kíkti á klukkuna á símanum mínum. Ég vaknaði til að hugsa um Afródítu og fannst mér það ofur eðlilegt og hugsaði ég svolítið um hana í viðbót þangað til ég vaknaði alveg. Þá fannst mér þetta mjög skrítið. En jæja..

Muniði eftir Húsinu á sléttunni? Vá hvað ég elskaði þann þátt mikið, úff. Enda er ég og var mikið náttúrubarn. Mig langaði líka alveg rosalega til að vera Heiða og búa í Sviss uppi í fjalli hjá afa mínum og sofa í rúmi gerðu úr heyi. Mmmm, draumar. Ég á nú heima úti í skógi.. ekki svo langt frá.

Í dag í skólanum fór ég inn í hátíðarsal til að hvíla mig aðeins á sviðinu í einu hléinu.. Málið er að lætin frá miðgarðskrökkunum voru svo mikil að ég átti ekkert sérstaklega auðvelt með að hvíla mig. Svo segjast þau vera svo sniðug að forðast hávaðann í matgarði, djöfuls rugl. Þetta var eins og í dýragarði. Svei.

Æi, ég er farin á sullið, bullið?

miðvikudagur, febrúar 23

Boys don't cry

Aumingja Inga er fárveik, nýkomin af spítala sökum næringarskorts. Láttu þér batna Inga mín.

Hún er annaðhvort með streptacokka eða einkyrningssótt. Ef hún er með einkyrningssótt(stundum nefnd kossaveikin) má hugsa út í hver hafi smitað hana? Þá vil ég minnast árshátíðarinnar þar sem okkur Ingu var heitt í hamsi. En jæja..

Teenage wasteland.

Í mér hefur kviknað löngun í Hróaskeldu.. Mig langar mikið að fara. Ef ég fer ekki núna ætla ég á næsta ári. Og hana nú. Í mér er líka löngun í Devito's.. hvílíkt ljúfmeti. Mmmm..

þriðjudagur, febrúar 22

Þreyta, óvinur minn

Ég svaf í rétt 2 klukkutíma í nótt. Ég var að skrifa íslenskurannsóknarritgerð til að verða hálf fimm. Ég er búin að vera frekar hress í morgun, svefngalsi þið fattið.. En núna er sagan önnur. Ég er ónýt, úff.

Ritgerðin var ágæt, held ég.. sennilega mikil froða í henni líka þar sem ég var sóðalega sjúskuð í heilanum í nótt. Ójá.

Ég sakna rúmsins míns og ætla ég mér að fara beinustu leið heim eftir skóla og sofa í svona fimm tíma. Vera spræk í kvöld.. MH-sullið er að byrja, en ég á ekki pening.. Æji.

- Mamma, mamma.. Hótel mamma? Mig vantar pening!
- Já hérna er peningur handa þér elskan mín, enda ert þú svo ótrúlega fallegur og vel gefinn einstaklingur. Annað en ruslið hún systir þín!

Haha oj Dóra, þetta var ljótt. Sigrún, þú ert mjög falleg og gáfuð, þetta var bara smá flipp. Fyrirgefðu.

Hversu reykt í hausnum er ég akkurat núna?,

mánudagur, febrúar 21

Bókasafnið er staðurinn

Eru viðhorf til íslenskrar tungu að breytast með nýjum kynslóðum?

Það er spurning dagsins. Viva Las Vegas.

Hæbbsí er inn, ójá..

laugardagur, febrúar 19

The finest polo range

Í dag vinn ég. Ekki mikið, frá klukkan 11 til 17. En samt sem áður, þá er ég vinnandi, ég. Tekjur, svona smá. Jeij.

Árshátíðin var hrógeðslega(hræðilega/ógeðslega) fín. Ég beilaði reyndar á matnum, en það er ekki svo.. ég efast um að hafa misst af miklu. Svo var árshátíðarmyndin víst ekki mjög góð.. Svei segi ég, já sveiattan.
Ég kynntist líka honum Atla! Hann var hress, og er það vonandi líka núna.

Atli, ertu hress?

Ég er ekki viss um að ég birti þessa færslu, ég hef nefnilega ekkert markvert að segja. Ég er svo þreytt, svo dofin.. Enda dugleg. Að vinna. Jeij.

fimmtudagur, febrúar 17

Mjög djúp færsla

Í þessari færslu ætla ég mér að fara svo illa niður í saumana á öllu sem þarf að vita. Eftir lesturinn munt þú, lesandi góður, ekki verða sama manneskjan sökum opnunar, já það sagði ég! Heimurinn mun, fyrst núna, opnast fyrir þér að fullu og ekkert annað. Ekkert annað skiptir máli. Ég ætla að ræða efni hjartans og trúnað lífins og verða pælingar mínar svo ótrúlega djúpar og artí að þú munt æla. Æl. Allir leyndardómar lífsins munu uppljóstrasts, eða a.m.k. þeir sem skipta mig máli, og öll mál verða leyst. Þessi færsla verður ólík öllum öðrum færslum, hún verður ótrúleg!

Because I am SPARTICUS!
Sjii hvað það var geðveikt að spúa eldi í dag.
Vá hvað það var gott að koma þessu frá mér. Nú get ég tekið upp fyrri störf og horft fram á veginn, á veg freistinganna?
Á veg hjúskapareiðanna? Það er ekki tilviljun að hjúskapareiður og eyðni skulu vera lík orð. Ónee.
Gott mál: Pabbi hans Fróða fann upp á íslenska orðinu eyðni, sem notað er yfir aids. Sweet.

sunnudagur, febrúar 13

Án titils

Eftir hverju á að dæma fólk? Eftir hverju fer það hver er frábær manneskja og hver er það ekki? Hvað af því sem manneskjan gerir vitlaust eru mistök, hvað af því felst einungis í karakternum?

Er ekki talað um að fólk skuli dæmast af verkum þess? Ég er hreint ekki viss.

Stundum gerir fólk hluti sem er ekki í líkingu við þann persónuleika sem manneskjan hefur að geyma. Eða er það aðeins blekking, er manneskjan kannski núna fyrst að koma fram eins og hún er? Kemur fram umbúðarlaust?

Og ef svo er, eru sumir þá í felum allt sitt líf og þykjast vera annað en þeir eru? Alltaf?

Ég veit það ekki. Ég veit ekki neitt, enda er ég bara kjáni.
Svo mikill kjáni.

Þegar ólgan í sjónum er mikil er ekki hægt að búast við að allt sé með kyrrum kjörum innan skipsins. Sama hversu stabílt það er venjulega.

Skiljiði hvað ég meina?

Nice backflip!

Úff. Ég mæli ekki með þessu: http://www.mousebreaker.net/games/bmxbackflips/play.php
Maður verður geggjaður.
Og já, ég verð að gera þetta svona af því að
ÉG KANN EKKI AÐ LINKA.
Ekki það að ég sé eitthvað verri manneskja fyrir vikið.. en þið vitið. Staðlanir samfélagsins og þetta rugl.. Crap Bag.

Í gær var ég hundapössunarpía uppi í sveitinni, Grafarholti, það var geðveikt. Guðrún Stella hélt mér félagsskap og var dansað við All By Myself úr myndinni Bridget Jones's Diary..

Kreisí.

Annars er ég hress en þarf endilega að hendast í far ó, svo margra..


Lag líðandi stundar: David Grey - It Will Last

laugardagur, febrúar 12

Ný ást, nýtt hjarta

Gleðitíðindi allir saman, fögnum!

Ég er ástfangin af nýja iPodinum mínum.

Loksins fór pabbi og skipti iPod mini, sem ég fékk í jólagjöf frá mömmu og pabba, í iPod 20GB.
Glamúr.
Hér eftir mun ég njóta lífsins mun betur og eiga ávallt einhvern að, sem stendur mér nærri.
Lífsfylling.

föstudagur, febrúar 11

Crashhh

hér kem ég galvösk, Regína Márusdóttir, og krassa þessa víðsfrægu heimasíðu Dóru Bjartar, já það er frá björt til bjartar, og þó að égi hafi ekkert margt skemmtilegt að segja þá vil ég samt lýsa því yfir að dagurinn í dag er yndislegur, ekki nóg með það að ég fæ loksins að blogga á síðunni hennar dóru, þá fékk ég að vita þema lagningadaganna, það veitti mér ánægju, það þarf ekki mikið til.

Af því að ég hef ekkert mikið að segja núna þá ætla ég bara seinna að fá að krassa síðunna hennar dóru og hafa þá eitthvað markvert og merkilegt að fortælle jer...

Og já ég mæli með Menningarbollanum á Te og Kaffi....

Takk fyrir þú göfugi lesandi að hafa þol og þrek að lesa þetta, þar sem þetta hafi engan tilgang what so ever (smá sletta)

kveðjur Regína
Dóra's Lover

fimmtudagur, febrúar 10

Þegar orð fá vængi...

Þegar orð fá vængi, lýsist heimurinn upp. Allar áhyggjur hverfa um stund og hjörtu fyllast af gleði og þrá, þrá í fleiri orð. Orð sem hafa áhrif, orð sem lifa... Því þetta snýst ekki allt um form, heldur mun frekar um innihald. Ef innihaldið stenst, þá hafa orðin tilgang...

Því þá, og aðeins þá, hafa orðin raunverulega fengið vængi...



Helvíti er ég ónýt.

miðvikudagur, febrúar 9

Tilgangur lífsins

Tilgangur lífsins? Rugl..

Ég ákvað að hafa mjög djúpan titil til þess að þú, kæri lesandi, myndir ekki láta að þér hvarfla að sleppa þessarri lesningu.

Í dag er ég í ágætu jafnvægi. Mér líður vel og er glöð. Ég er samt ekki enn komin í MH-elítuna, því miður. Vonandi síðar? Plís?!

Nú á dögum liggja fyrir mér vandaveltur um hver ég sé í alvörunni. Því eins og er, er ég ekki viss. Ég er oftast sátt við mig, finnst ég svosum ágæt sál. En mér finnst ég samt ekki vita alveg niður í sauma hver ég er, og er kannski ekki alveg búin að staðsetja mig í hinu nýja MH lífi. Það tekur eflaust bara tíma, en er þetta samt frekar óþægilegt og er ákveðið tóm í mér sem þarf að fylla, kannski með nýju áhugamáli? Hver veit?

Veist þú, kæri vin, hver þú ert í raun?

sunnudagur, febrúar 6

Hvíld

Ég er búin að hvílast í dag. Ég er enn í náttfötum og mun sennilega ekki fara að breyta því mikið upp úr þessu.

Gærkvöldið var skrítið.

Ég fór í matarboð til Katrínar, við vorum þar allar í leikfélagsráði og það var virkilega notalegt.. mmmm. Takk fyrir mig Katrín mín. Eftir það fórum við upp í Breiðholt í innflutningpartí til stelpu sem ég þekki ekki neitt, það var svosum ágætt. Eftir það var haldið niður í bæ.

Af hverju hafa bréfaskriptir lagst af með flest öllu? Einu sinni sendu ástfangin pör rómantísk bréf sín á milli í massevís. Það er mun rómantískara að lesa hálf gulnað bréf með fallegu letri og blekklessum skrifuðum með fjöður í tunglsljósi heldur en að fá send sms skilaboð.
Ég held að það væri óvitlaust að byrja að senda bréf og koma þessum sið aftur á. Fjandinn hirði tæknina..

Ég var að horfa á Forrest Gump áðan með Karen, ég elska Forrest Gump. Og Karen.

fimmtudagur, febrúar 3

Í dag er dagurinn

Í dag er dagur lærdómsins. Í dag mun ég læra af innlifun og munu hróp og köll fagnandi lýðsins fylgja og lifa með mér í sólskins ríki. Allt gert í þágu framtíðarinnar. Hmm, hvað skyldi framtíðin bera í skauti sér?

Áfengi, alkahólismi, dóp. Klám. Klám. Klám.

Nei! Það mun ég ekki láta gerast! Því ég stend hnarreist á móti slíkum ófögnuði, ég ætla ekki að láta draga mig í mykjuna! Ég ætla að halda áfram betra líferni. Læra, og stunda aðrar heilbrigðar skemmtanir, allt í kvöld, nema það eitt. Bjórkvöld.

Ég heiti Dóra, og ég er menntaskólanemandi. Ég ann lífinu!

miðvikudagur, febrúar 2

Nýtt upphaf

Verið þið hjartanlega velkomnir hingað í veisluna kæru gestir, á blogg Dóru Bjartar Guðjónsdóttur.

Hér eftir mun ég skrifa hér á blogspottinu eftir mikla pressu og mikinn áróður. Nei, nei þetta er nú mun betra tóbak heldur en blog.central og það er nú fremur skrítið að maður sé ekki löngu búinn að flytja sig hingað. En svona er þetta bara, lífið er oft mjög skrítið.

Ég kann nú ekki rass(kassarass?) í­ html og gæti þessi vist á bloggspottinu reynst talsvert brösótt.. En hvað gengur maður ekki í­ gegnum fyrir réttan málstað og bloggsnobb. Ég verð bara að reyna að læra.. Ég kann ekki einu sinni að gera tengla.

Slöpp, virkilega.

En eftir allt þá er ferðin aðeins rétt að hefjast..