Ég fór og sá Brotið, sem sýnt er í Hafnarfjarðarleikhúsinu, í gær ásamt Ástu, Katrínu og Ingu. Eftir sýninguna var ég orðlaus og eina sem komst út úr mér var vá. Ótrúlega áhrifamikið og átakanlegt lýsir þessu helst best. Sviðsmyndin skilaði sér rosalega vel og þetta var allt.. tjah, vá.
Eftir það var haldið á Tuttuguogtvo eða Club Twentytwo eins og norsarinn talaði um 22 um daginn. Þar var verið að halda upp á tvítugsafmæli Sigga Odds og átján ára afmæli Guðrúnar og var góður skari þar saman kominn. Ég var ofuredrú enda var ætlunin að eyða deginum í dag lærandi. Það á allt saman eftir að rætast um síðir.. jájá.
Á föstudaginn hélt Olga upp á afmælið sitt, Atli Sig líka, og Hólmfríður Helga. Allt að gerast, til hamingju krakkar. Ég samdi ljóð um Olgu handa Olgu, ég elska Olgu. Mhmm..
Núna ætla ég að taka mér tak, eftir daginn í dag verð ég sátt og ekki stressuð! Jebb jebb jebb.
Lærdómur, hér kem ég.
sunnudagur, febrúar 27
fimmtudagur, febrúar 24
Ský í kaffinu mínu
Að hafa Ísland sem heimastöð en heiminn allan að leikvelli. Gott múv. Þetta lærir maður af forsetanum sínum.
Um daginn var ég sofandi heima hjá mér í rúminu mínu að vanda en vaknaði svo um nóttina klukkan 03:50. Ég veit nákvæmlega hvað klukkan var því ég kíkti á klukkuna á símanum mínum. Ég vaknaði til að hugsa um Afródítu og fannst mér það ofur eðlilegt og hugsaði ég svolítið um hana í viðbót þangað til ég vaknaði alveg. Þá fannst mér þetta mjög skrítið. En jæja..
Muniði eftir Húsinu á sléttunni? Vá hvað ég elskaði þann þátt mikið, úff. Enda er ég og var mikið náttúrubarn. Mig langaði líka alveg rosalega til að vera Heiða og búa í Sviss uppi í fjalli hjá afa mínum og sofa í rúmi gerðu úr heyi. Mmmm, draumar. Ég á nú heima úti í skógi.. ekki svo langt frá.
Í dag í skólanum fór ég inn í hátíðarsal til að hvíla mig aðeins á sviðinu í einu hléinu.. Málið er að lætin frá miðgarðskrökkunum voru svo mikil að ég átti ekkert sérstaklega auðvelt með að hvíla mig. Svo segjast þau vera svo sniðug að forðast hávaðann í matgarði, djöfuls rugl. Þetta var eins og í dýragarði. Svei.
Æi, ég er farin á sullið, bullið?

miðvikudagur, febrúar 23
Boys don't cry
Aumingja Inga er fárveik, nýkomin af spítala sökum næringarskorts. Láttu þér batna Inga mín.
Hún er annaðhvort með streptacokka eða einkyrningssótt. Ef hún er með einkyrningssótt(stundum nefnd kossaveikin) má hugsa út í hver hafi smitað hana? Þá vil ég minnast árshátíðarinnar þar sem okkur Ingu var heitt í hamsi. En jæja..
Teenage wasteland.
Í mér hefur kviknað löngun í Hróaskeldu.. Mig langar mikið að fara. Ef ég fer ekki núna ætla ég á næsta ári. Og hana nú. Í mér er líka löngun í Devito's.. hvílíkt ljúfmeti. Mmmm..

þriðjudagur, febrúar 22
Þreyta, óvinur minn
Ég svaf í rétt 2 klukkutíma í nótt. Ég var að skrifa íslenskurannsóknarritgerð til að verða hálf fimm. Ég er búin að vera frekar hress í morgun, svefngalsi þið fattið.. En núna er sagan önnur. Ég er ónýt, úff.
Ritgerðin var ágæt, held ég.. sennilega mikil froða í henni líka þar sem ég var sóðalega sjúskuð í heilanum í nótt. Ójá.
Ég sakna rúmsins míns og ætla ég mér að fara beinustu leið heim eftir skóla og sofa í svona fimm tíma. Vera spræk í kvöld.. MH-sullið er að byrja, en ég á ekki pening.. Æji.
- Mamma, mamma.. Hótel mamma? Mig vantar pening!
- Já hérna er peningur handa þér elskan mín, enda ert þú svo ótrúlega fallegur og vel gefinn einstaklingur. Annað en ruslið hún systir þín!
Haha oj Dóra, þetta var ljótt. Sigrún, þú ert mjög falleg og gáfuð, þetta var bara smá flipp. Fyrirgefðu.
Hversu reykt í hausnum er ég akkurat núna?,

mánudagur, febrúar 21
Bókasafnið er staðurinn
Eru viðhorf til íslenskrar tungu að breytast með nýjum kynslóðum?
Það er spurning dagsins. Viva Las Vegas.
Hæbbsí er inn, ójá..

laugardagur, febrúar 19
The finest polo range
Í dag vinn ég. Ekki mikið, frá klukkan 11 til 17. En samt sem áður, þá er ég vinnandi, ég. Tekjur, svona smá. Jeij.
Árshátíðin var hrógeðslega(hræðilega/ógeðslega) fín. Ég beilaði reyndar á matnum, en það er ekki svo.. ég efast um að hafa misst af miklu. Svo var árshátíðarmyndin víst ekki mjög góð.. Svei segi ég, já sveiattan.
Ég kynntist líka honum Atla! Hann var hress, og er það vonandi líka núna.
Atli, ertu hress?
Ég er ekki viss um að ég birti þessa færslu, ég hef nefnilega ekkert markvert að segja. Ég er svo þreytt, svo dofin.. Enda dugleg. Að vinna. Jeij.

fimmtudagur, febrúar 17
Mjög djúp færsla
Í þessari færslu ætla ég mér að fara svo illa niður í saumana á öllu sem þarf að vita. Eftir lesturinn munt þú, lesandi góður, ekki verða sama manneskjan sökum opnunar, já það sagði ég! Heimurinn mun, fyrst núna, opnast fyrir þér að fullu og ekkert annað. Ekkert annað skiptir máli. Ég ætla að ræða efni hjartans og trúnað lífins og verða pælingar mínar svo ótrúlega djúpar og artí að þú munt æla. Æl. Allir leyndardómar lífsins munu uppljóstrasts, eða a.m.k. þeir sem skipta mig máli, og öll mál verða leyst. Þessi færsla verður ólík öllum öðrum færslum, hún verður ótrúleg!
Because I am SPARTICUS!
Sjii hvað það var geðveikt að spúa eldi í dag.
Vá hvað það var gott að koma þessu frá mér. Nú get ég tekið upp fyrri störf og horft fram á veginn, á veg freistinganna?
Á veg hjúskapareiðanna? Það er ekki tilviljun að hjúskapareiður og eyðni skulu vera lík orð. Ónee.
Gott mál: Pabbi hans Fróða fann upp á íslenska orðinu eyðni, sem notað er yfir aids. Sweet.
sunnudagur, febrúar 13
Án titils
Eftir hverju á að dæma fólk? Eftir hverju fer það hver er frábær manneskja og hver er það ekki? Hvað af því sem manneskjan gerir vitlaust eru mistök, hvað af því felst einungis í karakternum?
Er ekki talað um að fólk skuli dæmast af verkum þess? Ég er hreint ekki viss.
Stundum gerir fólk hluti sem er ekki í líkingu við þann persónuleika sem manneskjan hefur að geyma. Eða er það aðeins blekking, er manneskjan kannski núna fyrst að koma fram eins og hún er? Kemur fram umbúðarlaust?
Og ef svo er, eru sumir þá í felum allt sitt líf og þykjast vera annað en þeir eru? Alltaf?
Ég veit það ekki. Ég veit ekki neitt, enda er ég bara kjáni.
Svo mikill kjáni.
Þegar ólgan í sjónum er mikil er ekki hægt að búast við að allt sé með kyrrum kjörum innan skipsins. Sama hversu stabílt það er venjulega.
Skiljiði hvað ég meina?

Nice backflip!
Úff. Ég mæli ekki með þessu: http://www.mousebreaker.net/games/bmxbackflips/play.php
Maður verður geggjaður.
Og já, ég verð að gera þetta svona af því að
ÉG KANN EKKI AÐ LINKA.
Ekki það að ég sé eitthvað verri manneskja fyrir vikið.. en þið vitið. Staðlanir samfélagsins og þetta rugl.. Crap Bag.
Í gær var ég hundapössunarpía uppi í sveitinni, Grafarholti, það var geðveikt. Guðrún Stella hélt mér félagsskap og var dansað við All By Myself úr myndinni Bridget Jones's Diary..
Kreisí.
Annars er ég hress en þarf endilega að hendast í far ó, svo margra..
Lag líðandi stundar: David Grey - It Will Last

laugardagur, febrúar 12
Ný ást, nýtt hjarta
Gleðitíðindi allir saman, fögnum!
Ég er ástfangin af nýja iPodinum mínum.
Loksins fór pabbi og skipti iPod mini, sem ég fékk í jólagjöf frá mömmu og pabba, í iPod 20GB.
Glamúr.
Hér eftir mun ég njóta lífsins mun betur og eiga ávallt einhvern að, sem stendur mér nærri.
Lífsfylling.

föstudagur, febrúar 11
Crashhh
hér kem ég galvösk, Regína Márusdóttir, og krassa þessa víðsfrægu heimasíðu Dóru Bjartar, já það er frá björt til bjartar, og þó að égi hafi ekkert margt skemmtilegt að segja þá vil ég samt lýsa því yfir að dagurinn í dag er yndislegur, ekki nóg með það að ég fæ loksins að blogga á síðunni hennar dóru, þá fékk ég að vita þema lagningadaganna, það veitti mér ánægju, það þarf ekki mikið til.
Af því að ég hef ekkert mikið að segja núna þá ætla ég bara seinna að fá að krassa síðunna hennar dóru og hafa þá eitthvað markvert og merkilegt að fortælle jer...
Og já ég mæli með Menningarbollanum á Te og Kaffi....
Takk fyrir þú göfugi lesandi að hafa þol og þrek að lesa þetta, þar sem þetta hafi engan tilgang what so ever (smá sletta)
kveðjur Regína
Dóra's Lover

fimmtudagur, febrúar 10
Þegar orð fá vængi...
Þegar orð fá vængi, lýsist heimurinn upp. Allar áhyggjur hverfa um stund og hjörtu fyllast af gleði og þrá, þrá í fleiri orð. Orð sem hafa áhrif, orð sem lifa... Því þetta snýst ekki allt um form, heldur mun frekar um innihald. Ef innihaldið stenst, þá hafa orðin tilgang...
Því þá, og aðeins þá, hafa orðin raunverulega fengið vængi...
Helvíti er ég ónýt.

miðvikudagur, febrúar 9
Tilgangur lífsins
Tilgangur lífsins? Rugl..
Ég ákvað að hafa mjög djúpan titil til þess að þú, kæri lesandi, myndir ekki láta að þér hvarfla að sleppa þessarri lesningu.
Í dag er ég í ágætu jafnvægi. Mér líður vel og er glöð. Ég er samt ekki enn komin í MH-elítuna, því miður. Vonandi síðar? Plís?!
Nú á dögum liggja fyrir mér vandaveltur um hver ég sé í alvörunni. Því eins og er, er ég ekki viss. Ég er oftast sátt við mig, finnst ég svosum ágæt sál. En mér finnst ég samt ekki vita alveg niður í sauma hver ég er, og er kannski ekki alveg búin að staðsetja mig í hinu nýja MH lífi. Það tekur eflaust bara tíma, en er þetta samt frekar óþægilegt og er ákveðið tóm í mér sem þarf að fylla, kannski með nýju áhugamáli? Hver veit?
Veist þú, kæri vin, hver þú ert í raun?

sunnudagur, febrúar 6
Hvíld
Ég er búin að hvílast í dag. Ég er enn í náttfötum og mun sennilega ekki fara að breyta því mikið upp úr þessu.
Gærkvöldið var skrítið.
Ég fór í matarboð til Katrínar, við vorum þar allar í leikfélagsráði og það var virkilega notalegt.. mmmm. Takk fyrir mig Katrín mín. Eftir það fórum við upp í Breiðholt í innflutningpartí til stelpu sem ég þekki ekki neitt, það var svosum ágætt. Eftir það var haldið niður í bæ.
Af hverju hafa bréfaskriptir lagst af með flest öllu? Einu sinni sendu ástfangin pör rómantísk bréf sín á milli í massevís. Það er mun rómantískara að lesa hálf gulnað bréf með fallegu letri og blekklessum skrifuðum með fjöður í tunglsljósi heldur en að fá send sms skilaboð.
Ég held að það væri óvitlaust að byrja að senda bréf og koma þessum sið aftur á. Fjandinn hirði tæknina..
Ég var að horfa á Forrest Gump áðan með Karen, ég elska Forrest Gump. Og Karen.

fimmtudagur, febrúar 3
Í dag er dagurinn
Í dag er dagur lærdómsins. Í dag mun ég læra af innlifun og munu hróp og köll fagnandi lýðsins fylgja og lifa með mér í sólskins ríki. Allt gert í þágu framtíðarinnar. Hmm, hvað skyldi framtíðin bera í skauti sér?
Áfengi, alkahólismi, dóp. Klám. Klám. Klám.
Nei! Það mun ég ekki láta gerast! Því ég stend hnarreist á móti slíkum ófögnuði, ég ætla ekki að láta draga mig í mykjuna! Ég ætla að halda áfram betra líferni. Læra, og stunda aðrar heilbrigðar skemmtanir, allt í kvöld, nema það eitt. Bjórkvöld.
Ég heiti Dóra, og ég er menntaskólanemandi. Ég ann lífinu!

miðvikudagur, febrúar 2
Nýtt upphaf
Verið þið hjartanlega velkomnir hingað í veisluna kæru gestir, á blogg Dóru Bjartar Guðjónsdóttur.
Hér eftir mun ég skrifa hér á blogspottinu eftir mikla pressu og mikinn áróður. Nei, nei þetta er nú mun betra tóbak heldur en blog.central og það er nú fremur skrítið að maður sé ekki löngu búinn að flytja sig hingað. En svona er þetta bara, lífið er oft mjög skrítið.
Ég kann nú ekki rass(kassarass?) í html og gæti þessi vist á bloggspottinu reynst talsvert brösótt.. En hvað gengur maður ekki í gegnum fyrir réttan málstað og bloggsnobb. Ég verð bara að reyna að læra.. Ég kann ekki einu sinni að gera tengla.
Slöpp, virkilega.
En eftir allt þá er ferðin aðeins rétt að hefjast..

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)