Í dag gerðist ég formlegur listaverkakaupandi. Enn eitt skrefið nær heldri og virtari stéttum Íslands.
Listamaðurinn heitir Úlfar kallaður Úlli og er 5 ára. Hann býr við hliðina á mér og kom og dinglaði bjöllunni og þegar ég opnaði hurðina spurði hann hvort ég vildi kaupa mynd fyrir ekkert.
Myndin er af karakterunum úr Exkalibur og ég keypti hana fyrir tuttuguogeina norska krónu. Báðir aðilar högnuðust sumsé vel þar sem tuttuguogein norsk króna er miklu meira en ekkert.
Núna hangir myndin uppi á vegg í herberginu mínu fyrir ofan hvítu bókahilluna og ég er ánægð.