Síðasti dagur minn sem 19 ára táningur er nær lokið. Tvítugsaldurinn tekur við eftir rúman hálftíma.
Tíminn sem táningur hefur verið ágætur. Verstu stundirnar eru sennilega tengdar Árbæjarskóla og gelgjunni og þær bestu tengdar MH, ástinni og fjölskyldunni.
Ég man eftir því þegar ég var andvaka nærri miðnætti tólf ára, að verða þrettán, af því mér fannst það svo stórt stökk að verða táningur. Ætli ég verði ekki andvaka í kvöld líka. Það að komast á þrítugsaldurinn finnst mér vera heldur ógnvænlegt stökk.
Mér datt í hug að gera eitthvað mjög táningslegt í dag að þessu tilefni og leitaði ráða um hvað gert skyldi. Hugmynd Ole var sérlega góð og eftirfarandi: Að ég skyldi fara á fyllerí og deyja áfengisdauða, helst úti við, og vera þá týnd. Þegar faðir minn myndi svo finna mig liggjandi, og vekja, myndi ég æla á hann og deyja aftur. Svo þegar ég myndi loks að fullu ranka við mér myndi ég kenna honum um að ég hafi ælt á hann.
Ég var að dansa afró í Kramhúsinu og er ekki enn byrjuð á að láta þetta plan rætast en ég þarf svei mér þá að skerpa mig þar sem ég hef ekki drukkið einn einasta sopa.