Mér þykir sárt að sjá það að sum af mínum áður-uppáhalds bloggum hafi runnið sitt skeið og úr mínum venjulega blogghring.
Klassísk blogg eins og Bang your head to your favourite song, Bekkpressa er mitt fag, Blogmouth strikes again og þar eftir götunum.
Staðreyndir lífsins er svo erfitt að sættast við.
Annars er það fólk eins og Máni með Tunglibloggið sitt sem bjargar mér með háum gæðum jafnt og tíðni á bloggfærslum.
Takk.
Annars var stofnfundur leikfélagsins í dag og ég fékk einnig að vita að ég er komin inn í NORsku103, sem er yndislegt.
Edit: Nei nei nei! Jafnvel Halastjarnan hefur komið Að leiðarlokum.
fimmtudagur, ágúst 31
mánudagur, ágúst 14
Sufjan Stevens
Mig vantar sárlega aukamiða á Sufjan Stevens í Fríkirkjunni þann 18. nóvember.
B-svæði, ekki á svölunum.
Samviskubit vegna hugsunaleysis og sjálfhverfu nagar mig að innan og mun gera áfram ef ekki verður úr bætt.
Hugsiði fallega til mín ef þið eruð í aðstöðu til að selja mér einn slíkan og létta af mér óþægindunum.
Ég er full sjálfshatri. Tár drjúpa af hjartanu.

fimmtudagur, ágúst 10
Draumar
Í nótt dreymdi mig að ég væri búin að missa hliðarframtönnina hægra meginn og að hægri framtönnin væri brotin að miðju. Ég finn mig knúna til að nudda tannholdið með tungunni um leið og ég skrifa þessi orð.
Klukkan 04:45 vakna allir í húsinu mínu við óhugnaleg læti fram á gangi sem stafar af óþokka sem hafði læðst inn um þvottahúsgluggann heima hjá mér og var að ráðast á köttinn minn. Ég er fyrst til að rífa mig úr svefni og mæti óþokkanum á ganginum aðeins í örfáar sekúndur þar sem hann óttaðist reiði mína og reiði heljar og hljóp sömu leið út. Ég er nokk klár á því að það var þessi sami, svarti og hvíti óþokkinn, sem áður hefur nauðgað kettinum mínum svo að greyið þurfti að gjóta kettlingum. Megi djöfullinn hirð'ann.
Mig dreymir um að verða fjallkonan. Ég yrði fullkomin fyrir hlutverkið. Ég er óneitanlega góð fyrirmynd fyrir annað ungt fólk; falleg og ung, sjálfstæð, dugleg og gáfuð kona með bjarta framtíð.
Ef einhver hefur áhugaverð sambönd og gæti komið mér í þetta stykki yrði ég þakklát.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)