þriðjudagur, maí 27

Stúdent Dóra Björt Guðjónsdóttir

Nú er ég stúdent og veitir það mér mikla innsýn í líf hina fullorðnu og æðri. Ég fékk meira að segja verðlaun!
Dagurinn var dásemd og ég skemmti mér vel í góðra vina- og ættingjahópi.

Freyðivín var drukkið. Svo og rauðvín. Og svo bleikt freyðivín. Og hvítvín. Og að lokum allt sem að vörum kom eins og tequila með ormi í. Það var alvöru stöff.
Og svo var farið í bæinn með húfuna.
Þessi húfa dregur að sér mikla athygli og léttir stemninguna hvar sem komið er. Jafnvel í svitanum og kremjunni inni á Ellefunni sveipaði hún stemninguna hátíðlegum ljóma þegar ótal -vel ölvað- ókunnugt fólk stoppaði mig á förnum vegi og óskaði mér til hamingju. Það var gaman. Það er gaman þegar fólk gefur sér tíma og sýnir sín mennsku augu. Ekki bara hann djamm-Geir.

Ástmaður minn frá Noregi kom að þessu tilefni og það gladdi mig. Ástarloginn brann sem aldrei fyrr. Nærri mætti segja að eldhjarta hafi umlukið okkur. Og það yljaði.

Fokk. Djöfull er ég væmin. Oj.
Mér fannst þetta með eldhjartað bara fyndið.

þriðjudagur, maí 20

Eg og deg og alle vi kjenner

Nú nálgast útskrift. Gleðitíð. Ég er tímabundið stödd erlendis eins og klassískt er orðið.
Ég er búin að kaupa bæði kjól og skó og sokkabuxur(fleiri pör, bæði röndóttar og glimmeraðar) svo að hlutirnir eru að gerast. Svo er það bara skál í freyðivíni og fullorðinsár sem tekur við.
Virkilega spennandi allt saman.

Það er Eurovision í kvöld. Noregur er í undanúrslitum. Lagið er svona týpískt væl um það hversu einmannaleikinn er hræðilegur samið af 15 ára smápíku. En við ætlum að gera okkur kvöldstund, drekka vín og borða salsaréttinn minn. Og svo fáum við heimsókn, ef til vill í fleirtölu.

Ég hef lengi átt erfitt með að halda í friðinn innra með mér þegar ég kem til Noregs. En þróunin er jákvæð og mér líður vel. Með hjálp kerta, íslenskrar spiladósar sem spilar Vísur Vatnsenda-Rósu og Ole. Það væri gott að geta liðið eins og heima á fleiri en einum stað. Ég er svo heimakær. En ég er einnig fjölskyldukær. Og Olekær. Vandamálið er margþætt.

Í gær wokkaði ég án allrar hjálpar og það heppnaðist snilldarlega. Wok er gott. Wok er snilld. Nei, wok er scnilld. Schnilld!

Kos og klem, í fleirtölu.