Bless, kæru vinir.
Sjáumst þegar sumarið er hálfnað.
fimmtudagur, maí 25
þriðjudagur, maí 23
mánudagur, maí 22
Hæ
Jazz gleður mig og hef ég komist að niðurstöðu; gæða-tónlist er rjómi lífsins.
Sjálf elska ég rjóma.
Sérstaklega þeyttan.
Silvía Nótt fékk pú í hattinn við lok forkeppnar Evróvísjóns. Ótvíræður sigur, út af fyrir sig. Og þá hló ég, og kættist. Við tökum hröðum framförum á þessu sviði.
Þegar Evróvísjón-veg Íslendinga bar að sjó að þessu sinni hélt ég okkur skerast úr Evrópu að því leyti að við höfum húmor. En svo heyrði ég viðbrögð landsmanna við atriðinu og púinu og hvernig Silvía Nótt hefði átt að haga sér betur og þá sá ég það greinilega: Við höfum ekki heldur húmor.
Æ, æ.
Við hverju er svosem að búast? Bráðum munum við líka skipta yfir í ensku. Enda aumingjar.
Bless.
Edit: Forkeppnar Evróvísjóns? Forkeppni Evróvísjóns? Ég veit það ekki.

sunnudagur, maí 14
Blótsiðir Dóru
Í dag blótaði ég gömlu fólki, miðaldra fólki, börnum og unglingum en aðeins unglingunum óskaði ég kvalarfullum dauðdaga enda höfðu þeir stungið 18 ára strák í bakið í Hafnarfirði. Slíkt fólk á ekkert skilið nema eitthvað mjög, mjög slæmt.
Um hitt má skipta álitum hvort fólkið á eitthvað vont skilið fyrir syndir sínar eður ei.
Núna blóta ég mér, smá.
Enda á ég það skilið.

miðvikudagur, maí 3
Kannski/Gæti
Dimman hreinsar hugann og mun um helmingur sumarsins fara fram handan hafsins, á öðrum stað, og get ég ekki sagt annað en að ég gleðst. Enda er sumarið tími gleðinnar og samvistar við þá sem skipta máli.
50/50.
Ég er þó hrædd um að dröglast með í för söknuð í hjarta þar sem ég er, þessa dagana, full ástfangin af herberginu mínu.
Ég gæti talið upp hluti sem ýta undir gleði mína en þess í stað skal ég viðurkenna; ég hlakka til.
Ég uggi mér um leið og ég fyllist hamingju/spennu yfir því öllu sem gæti gerst. <- // ->
Undan fæstu er að kvarta nema prófum, og peningaleysi. Og kvölum.
En svoleiðis er þetta bara...
Við hverju er svo sem að búast við af okkur enda ekkert nema ómenni. Að hálfu.
Og þó?
Músík: Ray Charles að eilífu, í kvöld
Ég bið þá afsökunar sem gætu fundist færslan vera óþægileg. Mér þykir það leitt.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)