Dimman hreinsar hugann og mun um helmingur sumarsins fara fram handan hafsins, á öðrum stað, og get ég ekki sagt annað en að ég gleðst. Enda er sumarið tími gleðinnar og samvistar við þá sem skipta máli.
50/50.
Ég er þó hrædd um að dröglast með í för söknuð í hjarta þar sem ég er, þessa dagana, full ástfangin af herberginu mínu.
Ég gæti talið upp hluti sem ýta undir gleði mína en þess í stað skal ég viðurkenna; ég hlakka til.
Ég uggi mér um leið og ég fyllist hamingju/spennu yfir því öllu sem gæti gerst. <- // ->
Undan fæstu er að kvarta nema prófum, og peningaleysi. Og kvölum.
En svoleiðis er þetta bara...
Við hverju er svo sem að búast við af okkur enda ekkert nema ómenni. Að hálfu.
Og þó?
Músík: Ray Charles að eilífu, í kvöld
Ég bið þá afsökunar sem gætu fundist færslan vera óþægileg. Mér þykir það leitt.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli