þriðjudagur, október 21

Lífið

Lífið er gott. Það er vel yfir meðallagi á mínum kvarða. Jafnvel enn betra.
Lífið eftir MH var þá ekki glatað eftir allt.

Ég flutti þó ekki til Noregs, heldur flutti Noregur til mín og við búum nú saman í bakhúsi í Hlíðunum. Ég fór sumsé ekki í nám í einhverju tilfallandi í útlöndum heldur starfa ég nú sem hópstjóri í hjallastefnuleikskólanum Laufásborg. Ég vinn með yngstu stúlkunum og ég elska þær.
Hvílíkur munur sem er á því að vera í skóla og að vinna.
Það að þurfa ekki að vera með samviskubit yfir því að njóta lífsins heldur hafa það eitt sem tilgang sinn. Dásamlegt. Frábært. Brillíanse.

Og svo eru þurr, gulnuð laufblöð á víð og dreif. Kuldinn er í loftinu og ég leik mér og er glöð. Mmm.