Nú er romm í aðsigi. Allir í felur. Á morgun verða það Samar og fjárhættuspil og svo kofi og snjósleðaferðir á gamlársdag í Karasjok.
Annars allt gott að frétta. Ég gaf Ole rakhníf í jólagjöf án þess að vita það að tveir af ættingjum hans hafi drepið sig á slíku. Hefði kannski átt að hugsa það betur.
Bið að heilsa.
Kyssi kyss
föstudagur, desember 28
fimmtudagur, desember 13
Jól
Ég elska jól. Jólatíðin er sú besta og ég er svo óendanlegt jólabarn. Flestar af mínum ljúfustu minningum tengjast þessum árstíma.
Á morgun fer ég til Noregs og verð þar með Ole fram yfir áramót. Ég er eitthvað svo viðkvæm núna, viðkvæmt blóm. Mig langar til að grenja.
Ég vil fá mömmu með...

sunnudagur, desember 9
Niðurskor
Nú er ég búin að setja linkalistann minn í gegnum harðsvírað skönnunarprósess þar sem ég var vægðarlaus og henti bloggleysingjum og letingjum út án þess svo mikið sem að blikka! Já, svo hörð get ég verið ef ég neiðist til og þá helst ef velferð bloggsins míns og útlit er í húfi. Ég er svo nýaldar og vil ekki festast í því gamla.
Svo ofsalega nýaldar.
Til hamingju þið sem komust í gegn um síuna, og einnig þið nýju bloggandi vinir. Ef þið hin hafið eitthvað við niðurskor á bloggum yðar að athuga getum við háð einvíg í kommentakerfinu. Og ef þið eruð einfaldlega komin með ný bloggsetur vil ég endilega fá af því að heyra.
Kyss kyss og bang bang

laugardagur, desember 8
fimmtudagur, desember 6
Hár og flickr
Eftir að ég lærði að setja inn myndir finnst mér það skemmtilegra en að skrifa.
Ég er orðin stutthærð og búin að búa til flickr síðu.
Svona lítur hárið út krullað:

Svona lítur hárið út krullað þegar ég blikka:

Svona lítur flickr síðan út:
www.flickr.com/dorabjort
P.s. auglýsi eftir einhverjum til að kenna mér að búa til beina linka í færslum.
Þangað til: Ímyndið ykkur að þið hafið ýtt á "hérna" til að komast inn á flickr síðuna.
Bless.

miðvikudagur, desember 5
Afmæliskrakkabolla
Ole minn á afmæli í dag(eða fyrir klukkan tólf, 5. desember). Hann er orðinn 26 ára og því enginn drengur lengur. Eða jú fyrir mér sosum.
Kyssi kyss Ole minn.
Ég sendi honum súkkulaði-marsipanköku í tilefni dagsins.

Við Ole mús eftir berjatínslu. Við vorum ekkert að spara berin.

Ole með glæsilega pósu í sólarhnignun.

Ole að pissa við þjóðveginn.

Við Ole í Noregi, gríðarlega falleg og dökkhærð.

mánudagur, nóvember 12
Gilli gill
Hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:
1. læra fallhlífastökk
2. eignast börn
3. búa í stórborg
4. vera tilnefnd til einhverra merkilegra verðlauna(takk fyrir að orða hugmyndina Olga)
5. finna það sem ég hef mesta ástríðu fyrir og vinna í því
Hlutir sem ég get ekki gert:
1. verið í höfðustöðu sjálfstandandi
2. gert tvær beyglurákir í tunguna
3. farið í spígatt
4. rennt mér á snjóbretti án þess að detta
5. hatað rigningu
Hlutir sem ég get gert:
1. tárast þegar ég hlæ(mjög oft meira að segja)
2. skíðað
3. verið flippuð (æl)
4. skrifað ágætis ritgerðir
5. þvegið þvott
Það sem heillar mig við hitt kynið:
1. dulúð
2. gáfur
3. fallegt hár
4. reisn
5. sjálfstraust
Frægir karlmenn/kvennmenn sem heilla mig:
1. Ingvar E. Sigurðsson
2. Hilmir Snær
3. Hilmir Snær
4. Ingvar E. Sigurðsson
5. Ingvar E. Sigurðsson
(eitt í viðbót fyrir Ingvar E. Sigurðsson)
Orð sem ég segi oft:
1. akkúrat
2. hæææj
3. kyssi kyssi
4. jájá
5. sumsé
Hlutir sem ég sé núna:
1. stúdentsmynd af systur minni
2. pennaveskið mitt(á að vera að læra)
3. skjaldbökulampi
4. fiskamynd
5. græn planta
Ég kitla
1. Ole
2. Sigrúnu
3. Atla Sig
4. Ingu
5. Katrínu

þriðjudagur, október 16
Inconvenient Love
Ég er búin að fara þrisvar til útlanda á einum mánuði. Það er met hjá mér.
Í ferðunum tók ég myndir með nýju Canon 350D myndavélinni sem ég keypti í sumar.
Einn góðan daginn ætla ég að setja einhverjar af þeim inn á nýju flickr síðuna mína.
Ég er búin að eyða öllum peningunum mínum og skulda.
Ég eyddi mikið af þeim á kvikmyndahátíð þar sem ég keypti aldrei passa heldur borgaði alltaf fullt verð.
Ég hef ekki efni á að fara á Airwaves.
Það er dauði.

fimmtudagur, september 6
Ísland
Hvað er að gerast hér á landi?
Slæmir hlutir, það get ég staðföst sagt. Slæmir og skítugir hlutir eru að gerast.
Hin íslenska tunga er á leiðinni í ræsið í stað alls súra liðsins sem á skilið að vera þar fyrir leti og aumingjaskap. Fólk er hætt að nenna að fallbeyjga nafnorð og hvað þá sérnöfn. Mér finnst skömm að þessu. Setningum eins og "Þetta fæst í Hagkaupum," og "Ég fíla Ólöfu Arnalds" hefur verið skipt út fyrir aðrar og sorglegri setningar eins og "Þetta fæst í Hagkaup" og "Ég fíla Ólöf Arnalds". ÉG FÍLA ÓLÖF ARNALDS? Arfi vex á meðal okkar í því sem fer okkar á milli. Fólk virðist einfaldlega hafa hætt að nenna að vanda mál sitt. Í íslenskutíma um daginn sagði kjánalegur strákur eftirfarandi við kennarann þegar við ræddum málvenjur Íslendinga: "Við munum hafa nægan tíma til að laga íslenskuna okkar eftir fimmtugt."
Ég ældi næstum því á staðnum. Ég get e.t.v. ekki sagt mikið um að ég tali sérlega fallega íslensku, en ég geri þó mitt besta.
Annað: HVAÐ ER AÐ GERAST MEÐ ÞÁ SEM SKIPULEGGJA BORGINA OKKAR?
Nú á að fara að rífa gamlar húsbyggingar þvers og kruss til að byggja einhverskonar risahýsi eða syndabæli til að seðja okkar gráðugu neyslugin.
Ekki það að Reykjavík hafi verið skipulögð af einhverju viti í upphafi. Hverfin eru umhverfis bæinn eins og tilviljunarkenndar klessur á striga.
Ég er við það að gefast upp á þessu landi.

mánudagur, ágúst 27
Rómantísk gamanmynd
Ég lauk rétt í þessu við að horfa á rómantíska gamanmynd. Ég leitaði uppi mynd á skjábíói Símans og valdi af einhverri ástæðu, eftir að hafa horft á treilera í svona einn og hálfan klukkutíma, að horfa á rómantísku gamanmyndina The Holiday.
Djöfull gerði hún mig þunglynda.
Þessa dagana geri ég mikið af því að horfa á treilera á skjábíói Símans tímunum saman og undirstrikar þetta athæfi mitt e.t.v. hversu hrædd ég er við að taka endanlegar ákvarðanir. Ég er farin að hafa dálitlar áhyggjur af því hvað skuli taka við eftir MH og er það kannski ekki skrítið þar sem ég á erftitt með að ákveða í hvaða mynd ég skuli eyða næstu 90 mínútunum.
Í áhyggjum mínum ákvað ég svo að framlengja dvöl minni í MH um önn svo ég hafi lengri tíma til að hugsa. Vandræðalegt. Eða svona.

fimmtudagur, ágúst 23
Hæ.
Ég er í vinnunni og augun mín eru súr eftir að hafa glápt of mikið á tölvuna.
Skólinn er byrjaður og ég fílaða. Ég sakna Ole en á enga peninga til þess að fara og heimsækja hann. Það er glatað.
En það eru skemmtilegir krakkar í skólanum.
Og bíódagar græna ljóssins eru skemmtilegir.
Síminn minn er bilaður(þ.e.a.s. síminn sem ég stal af mömmu) og iPodinn minn er bilaður og brúnu töskurnar mínar eru bilaðar en ég er samt alveg glöð.
Pabbi á líka afmæli. Pabbi er sætur.

laugardagur, júlí 21
Sumarið 2007
Eftir að hafa stimplað inn þennan færslutitil kemur fátt annað upp í huga mér en ömurlegu geisladiskarnir í pottþétt þemanu með "vinsælustu lögum sumarsins". Mig minnir að kvenmannsbossi hafi prýtt þá báða sem gefnir voru út. En það er ekki það sem ég ætlaði upphaflega að blogga um.
Ég hef skrifað þessa færslu um 10 sinnum í huga mér og er pressan sem ég hef sett á mig um hina fullkomnu færslu orðin svo gríðarmikil, að í raun hefur mér þegar mistekist, og þá einna helst með þessari málsgrein.
Sumrinu 2007 hefur að stórum hluta verið varið hér í Ósló. Ég fékk vinnu sem frokostservitør á glæsilegu hóteli í drekastíl sem hvílir á hæð og gnæfir yfir borgina. Þetta þýðir að dagurinn byrjar á því að vakna klukkan 04:20, taka strætó, lest og svo aðra lest og vera komin í vinnuna klukkan hálf sjö. Þetta merkir einnig lestarferðir heim á leið þar sem ég ströggla við að missa ekki af stoppustöðinni minni á meðan ég sit og sef á rúðunni.
Í sumar hef ég einnig farið í ferð til Danmerkur og svo var afmælinu mínu fagnað heila helgi í höfuðstað Belgíu, Brussel, borg ölsins og súkkalaðisins.
Ég er semsagt orðin 19. Mér finnst það að verða 19 stórmerkilegt og mun merkilegra en að verða tvítug. Þegar ég var yngri hugsaði ég aldrei til þess að ég yrði nokkurn tíma 19 en hins vegar vissi ég alltaf að það að verða 20 væri þarna einhverstaðar, handan hornsins. Vegna þessa kom aldurinn 19 mér í opna skjöldu og mér líður eins og nýrri manneskju, svona 19. ára gamalli.
Mér líður eins og ég sé farin að fjarlægjast sjálfa mig örlítið og það er spennandi.
Í næstu viku verðum við Ole ferjuð til Íslands farsælda fróns og það er fín tilfinning. Þar er hugmyndin að ferðast eilítið um landið, fara til Vestmannaeyja yfir verslunarmannahelgina(í fyrsta sinn) og svo að funda með afgangnum af stjórn nemendafélags MH og halda áfram undirbúningi fyrir nýtt skólaár.
Mér líður eins og kaldur gustur læðist í gegnum hárið á mér og kæli upp höfuðleðrið.
Dásamlegt. Ég vil synda í sjónum.

föstudagur, júní 1
Bussterminalen
Her sit eg ein og bid. Eg vaknadi 6 og var komin hingad klukkan 7 til ad na rutu til København korter yfir, sem sidan var yfirbokud. Svo ad eg sit, og bid, og vona ad 9-rutan se ekki yfirbokud lika. Og ef svo er vona eg ad 10-rutan verdi ekki yfirbokud tegar eg loks kemst ad tvi ad 9-rutan se yfirbokud. Af tvi ad tad væri glatad.
I fyrradag for eg loks a hinn umtalada kajakkurs og er nu fullgildur medlimur i Oslo kajakklubbnum. A medan tækni hinna 10 kurstatttakenda var kommentud fekk eg tetta: "Du padler kjempebra!" Fleiri orda er ekki törf.
Svo er tad bara leiksyning hja divunum Siggu Eir og Maisol i Danmörku kvöld og svo GusGus tonleikar ef heppnin er med mer og ekki ordid uppselt.
Annars bara odyr bjor, eda eitthvad.
Til hamingju med afmælid Kata.

Tetta er eg eftir blautan sundsprett a kajaknamskeidinu. Endapunkturinn var sa ad vid turftum ad velta, og med hjalp felaga ad koma okkur upp i batinn aftur eftir ad felaginn var buinn ad tæma batinn. Einstaklega mannbætandi.

mánudagur, maí 21
Blogg um stelpur og sölumennsku
Um daginn fór ég á djammið og mér blöskraði. Hef ég haldið mig innan veggja hreinleikans svona lengi? Fram hjá mér hafa farið tugir þúsunda stúlkna sem stunda hálfgerða sölumennsku á djamminu. Sala á brjóstum, rössum og nöktum líkömum allmennt með góðum sýnidæmum. En hvar stend ég í þessu öllu saman? Einhver hefði átt að vara mig við þessari sjón því ég missti allt álit á íslenskum kvenmönnum. "Hér er ég, það eina sem er áhugavert við mig eru brjóstin mín, nú hefurðu séð þau svo þú getur bara snúið þér að næstu brjóstum hér inni."
Viðurstyggð.
Enda ekki við öðru að búast þar sem ég asnaðist inn á Sólon. Eftir sem leið á kvöldið fórum við á Q-bar þar sem mér var að mestu hlíft við þessari sorglegu sjón. Í stiganum á Sólon sá ég niður á nafla á nokkrum!
Lauslæti er viðurstyggilegt. Mér þykir erfitt að sitja undir sögum vinkvenna minna um lauslæti sitt og hin og þessi typpi sem þau hafa komið nálægt.
Gömul viðmið um að ekki skuli stunda kynlíf með öðrum en framtíðarmaka sínum, eða a.m.k. ekki með hverjum sem er, hafa fokið út um allar dyr. Lítið er gert úr ástinni og því sem hún stendur fyrir.
En kannski er ég bara svo barnaleg að trúa á ástina. En ömurlegt.

föstudagur, apríl 27
Rusl
Sama hversu ágætt þetta samfélag getur stundum verið er ótrúlegt hversu mikið af ömurlegu fólki leynist í því. Við erum öll mis-ófullkomnar verur, en við sum reynum að bjástra við að láta eitthvað gott af okkur leiða. Svo er það hitt fólkið sem vel hægt er að líkja við slímug skriðdýr. Það er fólkið sem nærist á því að koma óorði á aðra, niðurlægja fólk og telur sig yfir aðra hafið.
Sem það er og ekki. Auðvitað ekki. Enda er þetta fólk svo þunnt af gæðum að ef það væri vara í búð yrði það neytt upp á fólk, ókeypis.
Í ekki stærra samfélagi en Menntaskólanum við Hamrahlíð leynast nokkrar slíkar rottur. Þetta, sem mörgum þykir, fullkomna samfélag býr líka yfir dökkum blettum. Svörtum og skítugum doppum sem erfitt er að þrífa af.

Eigingjarnar, ógeðslegar doppur.

fimmtudagur, apríl 12
Páskarnir voru góðir. Ég fór á skíði og í dramatískar skíðagöngur upp á fjall. Og svo var mikið kúrt. Mamma og pabbi komu í heimsókn til okkar yfir páskahelgina, til Noregs. Því þar var ég.
Og er svo oft. Og verð í sumar. Kúri kúr.
Ég skil ekki af hverju kommentaðar eru meinigslausar hugleiðingar unglings á gelgjuskeiðinu á meðan sleppt er að kommenta vel teknar myndir af ástföngnu pari. Ég bara skil það ekki. Ég gerði tilraun til að láta myndirnar vera uppi sem efsta blogg nógu lengi, en engin viðbrögð. Hatið þið kannski ástina, bitra fólk?
Djók.
Ný stjórn var kosin í NFMH. Ég þurfti ekki að selja sálu mína fyrir atkvæði nemendafélaga til þess að halda áfram í stjórninni enda átti ég mitt pláss tryggt fram að næstu jólum. Ég hata líka kosningahösl, innihaldslaus loforð og hornahvísl.

laugardagur, mars 17
mánudagur, mars 5
Það er kominn nýr dagur.
Ég sit hér, og hef eytt löngum tíma í að lesa næstum tveggja ára gamlar bloggfærslur frá sjálfri mér.
Hvað ég var að gera, hvað ég var að hugsa.
Fyrir tveimur árum var ég skemmtileg.
Í dag lifi ég í einhverskonar millibilsástandi. Ég vil ekki vera kölluð naív, en neita þó að fullorðnast og halda áfram á þroskaskeiðinu.
Það er eins og ég haldi fast í það litla sem ég á eftir af barnæskunni með því að vera barnaleg. Eins barnaleg og ég get, og neita því að ég geti haft áhrif á hugsunarhátt minn og þroska.
Ég er eins og barn sem liggur undir sænginni og rígheldur í hana,
og það litla sem ég á eftir af nóttinni, á meðan mamma togast á við mig og reynir að rífa sængina af,
til þess að koma mér á fætur.
Það er kominn nýr dagur, og ég get ekki sætt mig við það.

miðvikudagur, febrúar 28
Ísland
Hvað er betra en árstíðir án sérstaks karakters?
Vetur án snæviþakinna fjalla og hamingjusams fólks eins og mín á skíðum, sumur án sólaryls og sólbaða.
Eða frekar; hvað er betra en land án árstíða?
Tja, það veit ég ekki.
En ef skjóta þyrfti væri kannski hægt að nefna þá staðreynd að ég mun líklegast eyða önn lengur í MH en planað var.
Flott.

mánudagur, febrúar 19
Júróvísjón þjóð
Yfir Júróvísjón hvílir ákveðin stemning, sérstaklega hjá okkur Íslendingum.
Ég fíla'ða!
Og ég fíla Eirík Hauksson, sem fer fyrir hönd okkar Íslendinga í ár.
Eiríkur Hauksson er uppáhalds-Júróvísjón fígúran mín.
Hann er bestur. Hann er svo kúl.
Eiríkur, þú ert maðurinn!

föstudagur, febrúar 9
Föstudagur
Í dag er föstudagur. Á föstudögum líður mér vel.
Hvað svo sem ég þarf að gera á föstudögum, og þó að það sé leiðinlegt, þá er það allt saman sveipað þessum ljúfa föstudagsblæ sem gerir hlutina, tja, aðeins betri.
Þrátt fyrir að ég sjái fram á tiltölulega stífan próflestur um helgina liggur ró yfir mér þar sem ég mun geta hvílt mig og gert eitthvað sem mun láta mér líða vel.
Eins og að drekka nýja jarðarberja- og hindberja teið mitt í næði, án alls stress.
Og að horfa á athyglisverða bíómynd. Og að fara í bað. Og að lesa.
Vonandi verður helgin ykkur góð.

fimmtudagur, febrúar 8
It's war.
Halló.
Mér finnst skemmtilegt að blogga. Og mér finnst skemmtilegt að skrifa.
Um þessar mundir á ég í stríði.
Ég á í stríði við sjálfa mig, en ég veit ekki fyllilega um hvað. Hægt er að kalla þetta stríð hugarstríð.
Mér líður eins og ég þurfi að taka einhverja ákvörðun, en ég geri mér ekki grein fyrir hver sú ákvörðun er.
Mér líður eins og það sé eitthvað sem mig langar til að gera, en ég veit ekki hvað. Ég bara veit ekki.
Ó, mig auma.
Mig langar svo til að njóta lífsins, frekar en að eyða dögum í skóla og vinnu, þó reyndar að ég fái að njóta hamingjustunda yfir lestri um lífræna efnafræði. Sem er dásamleg.
Mig langar til að gera það sem ég vil. Ég veit ekki hvað ég vil.
Nema hvað, að ég vil gera hluti á mínum forsendum.
Eiga minn eigin sófa sem ég get legið í, lesið lífræna efnafræði, málað hvítar tekrúsir og drukkið nýjar tegundir af tei að eilífu. Ásamt Ole, elsku Ole.

miðvikudagur, janúar 17
Lausn
Góðan dag.
Stórmerkir atburðir hafa gerst í mínu lífi undanfarnar vikur.
Eitthvað sem mun hafa áhrif á mig um alla framtíð og vonandi hjálpa mér í gegnum einmannalegar stundir og gefa mér hvíld frá erfiðleikum daglegra samskipta.
Ég er nefnilega búin að skrá mig á mæspeis og er 'URLið' www.myspace.com/dorabjort.
Já, ég veit, ég er veikburða sál sem sækir eingöngu í það að fylgja fjöldanum. Að vera ein af hinum fiskunum í sjónum, grá og jafnvel grárri en þeir hinir. Ósýnileg.
En endilega 'addið' mér og flytjum samskipti okkar yfir á netið. Að hafa samskipti við fólk andlit á móti andliti býður upp á svo marga ókosti; kvef, andfýlu, svipbrigði. Óþarfa hluti sem mega alveg hvíla sig enda þreyttir eftir mörg þúsund ára starfsemi.
Annað í augljósum fréttum.
Skólinn er byrjaður með upptekni(sem stafar reyndar einnig að stórum hluta af leikritinu sem frumsýnt verður næstu helgi) og þar af leiðandi skapsveiflum. Tilfinningalíf mitt hefur verið í hálfgerðu uppnámi undanfarið enda á ég erftt með mig undir álagi og fá þeir að finna fyrir því sem minnsta eiga sök.
Þetta leiðir aftur til þeirrar staðreyndar að samskipti í gegnum lýðnetið er langsamlega besti kosturinn enda laus við flestar flækjur og óþarfa tárafellingar.
Enda myndi slíkt fara illa með lyklaborðið.
Ég sendi ykkur mínar kveðjur hvar sem þið eruð, enda skiptir það ekki máli núna.
Við hittumst bara á mæspeis.

miðvikudagur, janúar 3
Godt nytt år, kjære venner!
Sælir kæru vinir.
Ég vil þakka fyrir liðið ár um leið og ég vil fagna því nýja.
Á þessu ári mun ég útskrifast.
-Tæknilega séð, þar sem ég gæti þurft að vera óútskrifuð til að fá að taka nokkra áfanga aftur, án þess að borga háar upphæðir fyrir.
Á þessu ári frumsýnir LFMH nýtt leikrit.
Á þessu ári mun ég eyða sumrinu í faðmi ástarinnar.
Á þessu ári verð ég 19 ára. (Vá.)
Á þessu ári ætla ég að klára að lesa tvær síðustu útgefnu Harry Potter bækurnar.
Til þessa árs hef ég engar væntingar, og er það góð tilfinning.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)