fimmtudagur, apríl 12

Páskarnir voru góðir. Ég fór á skíði og í dramatískar skíðagöngur upp á fjall. Og svo var mikið kúrt. Mamma og pabbi komu í heimsókn til okkar yfir páskahelgina, til Noregs. Því þar var ég.
Og er svo oft. Og verð í sumar. Kúri kúr.

Ég skil ekki af hverju kommentaðar eru meinigslausar hugleiðingar unglings á gelgjuskeiðinu á meðan sleppt er að kommenta vel teknar myndir af ástföngnu pari. Ég bara skil það ekki. Ég gerði tilraun til að láta myndirnar vera uppi sem efsta blogg nógu lengi, en engin viðbrögð. Hatið þið kannski ástina, bitra fólk?
Djók.

Ný stjórn var kosin í NFMH. Ég þurfti ekki að selja sálu mína fyrir atkvæði nemendafélaga til þess að halda áfram í stjórninni enda átti ég mitt pláss tryggt fram að næstu jólum. Ég hata líka kosningahösl, innihaldslaus loforð og hornahvísl.

Engin ummæli: