sunnudagur, mars 26

Óréttlæti heimsins

Það er eitthvað mikilfenglega stórskrítið í gangi þessa dagana í skemmu Loftkastalans þar sem sýningin Íslenski fjölskyldusirkusinn fer fram.
Sýningin í gær, 3. sýning, var alveg sérstök, en ég get ekki fundið neinar ástæður fyrir þessu né útskýrt hvað hafi verið það sem var svona sérstakt.
Tilfinningin var skrítin og andrúmsloftið þrungið einhverri dulúð.

Gemsinn hennar mömmu er týndur. Ég var með hann í láni af því að minn gemsi er týndur. Mig langar til að brotna saman í örmum einhvers þar sem undanfarið hefur verið talsvert þrýst á mig að kaupa nýjan síma svo móðir mín geti komist yfir sinn aftur, en þess í stað þarf ég e.t.v. að kaupa tvo. Óréttlæti heimsins.

Gleðilega ritgerðarsmíði, Dóra.

fimmtudagur, mars 23

Electronic Performers

Þú strýkur mér á vinstra herðarblaðinu og mér sýnist þú vera að þreytast. Í miðjum niðnum frá ólgandi gjörðum þeirra sem vita ekki vitum við.

Þú dregur mig á hárinu og ég öskra af gleði yfir að vera ekki tilfinningahömluð. Hlátur þinn hljómar um dalinn og öskrin mín dansa.

Og svo strýkur þú mér á vinstra herðarblaðinu og mér sýnist þú vera að þreytast.
Og við vitum.


Ef ég ætti eina ósk væri hún sú að þú myndir stundum nota neglurnar og klóra. Aðeins neðar.
Og neðar.
Og við vitum.














www.nfmh.is/ifs - Íslenski fjölskyldusirkúsinn fagnar þér!