Sælir kæru vinir.
Ég vil þakka fyrir liðið ár um leið og ég vil fagna því nýja.
Á þessu ári mun ég útskrifast.
-Tæknilega séð, þar sem ég gæti þurft að vera óútskrifuð til að fá að taka nokkra áfanga aftur, án þess að borga háar upphæðir fyrir.
Á þessu ári frumsýnir LFMH nýtt leikrit.
Á þessu ári mun ég eyða sumrinu í faðmi ástarinnar.
Á þessu ári verð ég 19 ára. (Vá.)
Á þessu ári ætla ég að klára að lesa tvær síðustu útgefnu Harry Potter bækurnar.
Til þessa árs hef ég engar væntingar, og er það góð tilfinning.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli