Í dag vinn ég. Ekki mikið, frá klukkan 11 til 17. En samt sem áður, þá er ég vinnandi, ég. Tekjur, svona smá. Jeij.
Árshátíðin var hrógeðslega(hræðilega/ógeðslega) fín. Ég beilaði reyndar á matnum, en það er ekki svo.. ég efast um að hafa misst af miklu. Svo var árshátíðarmyndin víst ekki mjög góð.. Svei segi ég, já sveiattan.
Ég kynntist líka honum Atla! Hann var hress, og er það vonandi líka núna.
Atli, ertu hress?
Ég er ekki viss um að ég birti þessa færslu, ég hef nefnilega ekkert markvert að segja. Ég er svo þreytt, svo dofin.. Enda dugleg. Að vinna. Jeij.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli