Þrátt fyrir hina dramatísku færslu gærdagsins heldur Hin Bjarta hnarreist áfram til móts við líf bloggheimanna. Hún ákveður að láta axlir sínar ekki hníga fyrir efasemdum sínum sem skjóta kollinum helst upp þegar hún má minnst við því. Hún er stolt. Hún er bloggari.
Skvett, skvett,
burtu andi!
Svífið þér ei' yfir mér.
Haldið þér í fjarlægð,
fjandi!
Elle'r slít ég þig í mél.
Eða eitthvað..
Engin ummæli:
Skrifa ummæli