Ég er farin að meta klassíska tónlist mun betur en áður. Mér hefur reyndar alltaf fundist hún falleg en hef ekki komið mér til þess að hlusta á hana neitt af viti fyrr en nú. Ég, systir mín og faðir eyðum nú stundum saman inni í stofu við undirleik meistara Beethovens og Chopins. Ég kann þessum stundum afar vel og hef það í hyggju að hlusta meira á snillinga fyrri alda.
Í gær vann Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sigur í baráttu við Össur Skarphéðinsson um forustustöðu Samfylkingarinnar. Ekki veit ég hvort það sé eingöngu vegna þess að hún er kona en sennilega hefur það spilar stóran þátt í þessu máli. Þó efast ég ekki um að hún sé vel til þess fallin að gegna þessu embætti svo að ég gleðst, enda kaus ég hana. Hún er mjög hæfileikarík, ég kaus hana ekki vegna þess að hún er kona. Þó þykir mér slæmt mál ef konur eru ráðnar í stöður eingöngu vegna kynferðis þeirra, það er líka mismunun, en þó eigum við mikið inni þar sem á okkur hefur verið brotið í langan tíma. Margt er að breytast, kona er komin í embætti Háskólarektors og konur allmennt á uppleið en margt er enn ógert og er baráttan því nauðsynleg. En aumingja Össur, sama dag og hann tapar kosningum missir hann móður sína. Ég get ekki annað en vorkennt honum, nú samhryggist ég.
Það er samt sem áður slæm pólitík þegar fólk kemst áfram aðallega vegna kynferðis, litar eða þjóðernis. Ég varð t.d. rosalega pirruð þegar mamma gladdist yfir sigri Grikkja í Júróvísjón. "Grikkir eru svo skemmtileg þjóð með áhugaverða sögu." En mamma, hverju skiptir það í Júróvísjón?
Núna er það orðið svoleiðis að það skiptir ekki öllu máli þó að lög séu góð þegar þau eru kosin vegna stöðu og staðsetningar landanna í heiminum. Glatað. Einstaklingurinn á að komast áfram á dugnaði, krafti og hæfileikum sjálf síns, ekki vegna þess að hann er kona/karl, svartur/hvítur eða af einhverjum svipuðum ástæðum.. við verðum að geta treyst því að maður komist áfram á eigin ágætum og allir eigi sér von sem vilja og geta. Óréttlætið er svo mikið að mig svíður undan því.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli