þriðjudagur, apríl 12

Lygar og ógeð

Gefum blóð!



Guð minn góður, á morgun mun ég láta lífið þegar blóðbíll Blóðbankans mætir í MH til að tappa af MH-ingum. Undirbúum okkur, látum blóðið fossa og nálarnar svamla í rauðu MH blóði. Blóðgjafir eru svo djúsí.


Kannski er þetta þó ekki jafn gott mál og áður var haldið?
Hvað hefur Blóðbankinn og varnarlausir blóðlitlir sjúklingar að gera við þetta blóð? Blóð skítkasts, lyga og ógeðs. Hvar er blóð jákvæðninnar og umburðalyndisins niðurkomið? Það er a.m.k. ekki nálægt Menntaskólanum við Hamrahlíð. Það er alveg á hreinu. MH-ingar skíta yfir aðra MH-inga, dæma fyrirfram og velta sér upp úr jafnvel minnstu göllum náungans. MH er orðinn jafnslæmur og Verzlunarskóli Íslands ef ekki verri, fólk á ekki séns. Allir verða að vera svo öðruvísi, allir eru eins.

Ef þú ert hress verður farið að skíta yfir sennilegar ástæður hressleika þíns.
Ef þú ert rólegur verðurðu ekki talinn nógu hress.
Ef þú ert artí eru of artí.
Ef þú ert ekki nógu artí ertu aumingi og skítapakk.
Ef þú ert ekki vinstri sinnaður ertu verra.

Í dag heyrði ég gott samtal. Þar skitu "1" og "2" svo illa yfir yfir manneskju, "X", að ég hef aldrei heyrt annað eins áður. Samtalið liggur kannski ekki alveg orðrétt í minni mínu en þó er hér smá hluti af því til sýningar á hroka í MH. Viðbjóður segi ég, ekkert nema. Sorglegt hvert heimurinn sem og álit ungs fólks stefna. Taki sá til sín sem veit upp á sig sökina. Ég var orðlaus og labbaði í burtu en sagði svo síðar skoðun mína.

Fyrst voru niðurrakkanir á persónuna X af hálfu 1 og 2 en svo var farið yfir í eitthvað sem mér finnst vera ekkert nema "cheap" og sorglegt. Það er í lagi að segja skoðun sína en þetta var hreinn viðbjóður.

1: ....Já, og X þykist oft vera svo mikið "kjútípæ" í tímum fyrir framan kennarana.

2: Hehe já, fáviti.. (segir eitthvað sem getur komið upp um hver X er, en hræðilega ljótt og niðrandi komment var það þó).

1: Það er svo fyndið miðað við hvað X er ógeðslega langt frá því að vera "kjútípæ" og er ljót manneskja.

2: Já, oj. Hehehehehehe.. (rosalega fyndið).

1: Og svo illa vaxin, X er bara ógeð, váá.

Fyrst töldu 1 og 2 eitthvað upp sem fer í taugarnar á 1 og 2 við X. Eitthvað sem getur svo sem alveg verið satt, en heyrir maður annað eins um manneskjur oft sagt. En svo er farið í það að rakka svo illilega niður útlit viðkomandi X að ég veit ekki hvað ég heiti. Ekki að það skipti máli, en persónulega finnst mér X frekar myndarleg manneskja og óþarfi að setja út á útlit X. Það að 1 og 2 skíti svo yfir líkamsvöxt X bendir til þess að 1 og 2 vilji hafa alla steypta í sama mót og nákvæmlega eins. Hér á ágætis frasi við, hversu lágt er hægt að leggjast?



Í MH eru allir meðteknir. Ég elska umburðarlyndi MH-inga margra hverja, allir fá að vera eins og þeir eru og í MH skiptir innihaldið mun meira máli heldur en annað, enda líkaminn bara hulstur um sálina. MH er svo rosalega líbó skóli.

Minn Guð hvað ég dái MH í dag. Þar er svo gott að vera, allir eru velkomnir.

Engin ummæli: