mánudagur, janúar 16

Oh Very Young

Gott er að hvíla. Bæði í verkefnum, hlutverkum og hinni daglegu rútínu, alltaf er jafn gott að hvíla.

Skylduverkefni stundarinnar flokkast undir hið daglega amstur; lærdómur og þess háttar, sem undirrituð hefur á hillu látið hvíla í þó nokkurn tíma eða frá rótum annarinnar. Á miðvikudag verða fingur reknir úr fylgsnum letinnar. Og hvíldarinnar. Sem alltaf er þó svo ljúf, elsku hvíldin.

Strjúktu mér um kynn, vinur minn, ef elsku skaltu sýna mér og hjarta blítt. Því eftir þá stund áttu mig og mitt um eilífð og að enda.


Lag: Cat Stevens - Oh Very Young

Engin ummæli: