þriðjudagur, janúar 24

Kühl

Hér sit ég þakin marblettum og köld eftir útiveru og svell. Svellin vilja mér illa og stöðugleikinn hefur allgjörlega snúið við mér bakinu.

Helgin einkenndist af mörgum og ónauðsynlegum lygum, þær voru yndislegar.

Lygar eru oft yndislegar og betri en margur sannleikur. Sannleikur getur líka verið ónauðsynlegur. Sjálfsblekking er orðið. Hún gerir þig að hamingjusömum einstaklingi.
Ég skil vel fólk sem hrærist í heimi sjálfsblekkinga, oft er það betra en að líta á innantómann hversdagsleikann og sjá hversu lítils virði við erum í raun. Miðað við það að við séum lifandi í u.þ.b. 85 ár, af öllum árum sem til munu vera í eilífðinni, þá skiptum við engu máli. Við erum bara komin, og farin, eins og húsflugurnar. Svo eyðum við megni lífs okkar í 9-5 vinnu og sjónvarp á kvöldin.

Við erum ekkert.

Ámóta þankagangur er óhollur, ef ekki er stillt í hóf.

Gleðilega kvöldstund!

Engin ummæli: