laugardagur, janúar 7

Í mína heima

Ég er heima, auk þess sem ég er mun geisladiskaríkari en ég var þegar haldið var suður yfir höf. Aldrei hef ég áður komið til annarrar heimsálfu. En var Afríka gott val, þar sem ég hef eytt síðustu mánuðum í rækt við afródans.

Þegar ég steig á íslenska grundu fyrir utan Leifsstöð var ég slegin fast utan undir af íslenskum veruleika, og veðráttu. Kvelst landið svona mikið við heimkomu okkar?
Þegar ég yfirgaf Egyptaland voru þar 28° á celsíus. Ekki get ég sagt að ég sé mikið lituð af sólinni, þar sem ég gafst upp eftir fyrri vikuna og lét það meira eiga sig að vera í sólbaði. Auk þess sem þrír dagar fóru í borgarferðir, samanlagt.

Í kvöld fer ég á góða tónleika. Það er það eina sem er framundan fyrir utan langa skólaönn og upphaf þar sem mig verður hægt að finna, við að sleikja upp kennarana og biðja um einhverskonar vægð eftir tvo forfallaða daga.

Ég er tiltölulega bitur og full af tómarúmi sem verður ekki fyllt með keyptum vatnspípum, bongótrommum, geisladiskum og fötum.

Engin ummæli: