Einn helsti sigur minn er unninn. Eftir dramatískar umræður og rifrildi sem og lýðræðislega kosningu með álitaskiptum og öðru næ ég orðinu "Ofursmáís" fram á Scrabble spilaborðið. Stolt, ég get ekki neitað því. Og ég sit með tvær rauðhærðar vinkonur báðum meginn við mig, á annarri sýður. Hin brosir krúttlega og er hæstánægð, enda með mér í liði. Um hömlurnar losnar og áður en við vitum af eru nokkur úrhrök mætt á borðið til viðbótar, úr öllum áttum. Alnördóðasaxaði, þorpað og ásbeð. Ég er sátt og dreg mig í hálfgert hlé, enda veit ég það jafnvel og aðrir meðspilendur. Sigur er löngu unninn.
Annað í hávegum. Tilhlökkunin sem fyllir andann og landann vegna þáverðandi tónleikahalds Sigur Rósar og Aminu í Laugardagshöll. Ég mæti, enda ekki annað hægt að gera eftir upplifun sumarsins. Við pabbi göngum að Laugardagshöll og búumst við einhverju stóru, enda eru þetta miklir menn sem á sviði munu standa.
Umgjörðin er svolítið skrítin. Troðningur, virðingarleysi, ósiðmenntun Íslendinga sem kunna sig ekki. Köll og hróp. Fólk sem er þarna aðeins upp á "kúlið," en vill sækja félagslega atburði og nýtir hvert tækifæri til að detta í það. Óprúðleiki. Sorglegar tilfinningar stúlku sem skilur ekki hversvegna fólk kann ekki að haga sér, og kann ekki að meta. Kann ekki að vera þegar maður þarf að vera. Og hafa hljótt.
þriðjudagur, nóvember 29
föstudagur, nóvember 25
Græðgi
Ég er orðin háð kvennablöðum; Nýju lífi, en þó mest Vikunni. Að sjálfsögðu hef ég ekkert betra að gera í vinnunni en að gægjast í nýjasta blaðið og taka persónuleikapróf eða skoða hverskonar bikiní verða í tísku í sumar. Mjög mikilvægt, viðheldur kvennleikanum og blæs lífi í sjálfsmynd mína. Því auðvitað er ég alltaf það besta og frábærasta sem hægt er að vera í persónuleikaprófunum.
Prófin nálgast og ég stressast. Enda mun ég eyða prófhelgum mínum í vinnunni. Peningagráðuga ég. Ég get ekki hætt, verð að eignast peninga þó ég hafi í raun allt af öllu til alls. Græðgi græðgi græðgi. Svona gerði velmegunin mig.
Mikið langar mig til að skreppa eitthvert út, í eina önn eða svo. Eða þá að fara sem skiptinemi til Asíu eða Afríku. En þá er ein önn víst eiginlega of stutt og yrði dvölin helst að vera ár til þess að njóta hennar sem best og mest.
Ég vildi að ég ætti ættingja úti í heimi sem ég gæti verið hjá.

þriðjudagur, nóvember 22
Kuldi. Ég sit í eldhúsinu og horfi út um gluggann. Pabbi eldar matinn og dimman liggur yfir klakanum. Yfir mig hellast æskuminningar frá fornum jólamánuðum og föndurtímum. Ég hugsa til Þorláksmessunnar og dangla fótunum lauslega í stólinn minn. Ég sakna löngu bráðnaðra snjókarla. Kvöldrölt í bænum með mömmu og pabba. Hönd í hönd, ég flýg á milli. Og kakó. Jólatilfinningin er besta tilfinningin.
Allt í einu hlakka ég mest af öllu til jólanna. Mig langar mest af öllu til að fara út að ganga í myrkrinu og sjá glaðleg andlit og vera glaðlegt andlit, með jólatónlist í heyrnatólunum mínum.
Nema það að ég á engin heyrnatól. Og svo verð ég í Egyptalandi um jólin.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)