föstudagur, maí 13

Ég get verið hræðileg manneskja þegar kemur að mínum hagsmunum

Í dag varð ég hálfpartinn valdur að því að maður í vinnunni minni var rekinn. Já, ég veit hvað þið hugsið. Hún er syndsamleg manneskja sem er sama um aðra og vill aðeins fá sínu framgengt. Að sumu leyti stemmir þessi ályktun en í þessu tilfelli í raun ekki. Hér var um að ræða mann sem vann hjá foreldrum mínum í fjölskyldufyrirtækinu, sem ég mun að endingu sennilega eignast að hluta. Maðurinnvar aðvitað að fá laun, en laun fyrir lélegt verk. Þetta var ég ekki sátt við og sérstaklega vegna þess að þessi umtalaði maður var með hærri laun en ég, ég sem er búin að fórna mér fyrir fyrirtækið í mörg ár frá blautu barnsbeini. Nei, þetta læt ég ekki viðgangast.
Og nú er maðurinn farinn.

miðvikudagur, maí 11

Dóra litla var eitt sinn klár en svo sofnaði heilinn.

Góðar fréttir og slæmar fréttir.

Ég er búin í prófum(jeij), en það er næstum því vika þangað til allir hinir klára prófin sín.

Ég er ekki búin að fá aðra vinnu en hjá mömmu og pabba sem ég hef mikið ógeð á.

Ég er ekki lengi kusa inni á síðunni hennar Ingu. Hjartað er enn að jafna sig.

Ég fékk þó að vera kusa inni á síðunni hennar Ingu, það eru ekki allir svo sérstakir.

Ég er fallin í stærðfræði, Haffi svindlaðist inn á kerfið og athugaði það. Æji.


Ég sem hélt að ég myndi aldrei falla, ég sem var svo klár.
Ég myndi sigra heiminn og flytja til Belgíu, en nú er það allt farið.
Farið til Ríó? Farið til Spánar, spyrjið þið.
Nei!
Ekkert bíður mín nema opinn sorpgámurinn, jú sem og dauðinn.
Mig langar að æla og heilinn ætlar út.
Heilinn, hvaða heili?



Þessi finnur svo greinilega til með mér.
En reyndar, reyndar er ég að fara til Frankfurtar.

sunnudagur, maí 8

Færsla, er eigi er væmin

Í dag er sunnudagur. Á morgun er mánudagur, þá tek ég lokapróf í dönsku 203. Það verður nú gaman. Svo kemur þriðjudagur og þá þarf ég að læra mikið fyrir íslenskupróf. Það tek ég á miðvikudaginn. Svo er ég búin í prófum. Þá fer ég kannski að vinna við símasölu. Kannski. Og þá mála ég líka herbergið mitt. Jeij.



Mynd af mér, ég er svo spennt fyrir ævintýrum.

Þetta er einnig mynd af mér, hér er ég í nöktu ævintýri, og er ljóshærð.

Ég var í mjög góðu skapi þennan dag.

Það er svo gaman að leita af sér á Google.


Lag: The Prodigy - Spitfire
Líkamshluti: Rassinn á Katrínu