sunnudagur, mars 29

Rutuferdin ogurlega

I Cusco skildu leidir vid Kristjan og eg og Asdis heldum til Puerto Maldonado/i frumskoginn med rutu sem tok 18 klukkutima.
Vid vorum bunar ad kaupa pakka af hosteleigandanum i Cusco og hann fylgdi okkur i rutuna.

Vid tokum fljott eftir tvi ad vid vorum einu hvitu manneskjurnar i rutunni, sem var fint. Agaett ad losna fra turismanum endrum og eins. Sudur-Ameriska tonlistin hljomadi og vid vorum gladar.
Fljotlega eftir ad vid heldum af stad las eg i Lonely Planet bokinni minni ad rutuleidin sem vid vorum a vaeri mjog haettuleg, serstaklega a regntimabilinu(sem er nuna), vegna mikillar ledju og sleipu a vegum. Vid heldum to ro okkar tar sem allt leit vel ut.
Eg tottist finna kukalykt i rutunni enda hef eg troad med mer ofurnaemt lyktarskyn i tessari ferd okkar, en Asdis hlo bara ad mer. Vid og vid heyrdum vid furdulegan barnsgrat sem kom framar ur rutunni. A timum hljomadi tetta mjog omannlega og trudum vid varla ad barn gaeti framkallar slikt vael, svo vid litum fra og saum pagagauk sitjandi a stolbaki!

Vid raeddum adeins vid par sem sat fyrir framan okkur og fengum ymsar upplysingar um ferdina, tar sem ad rututjonustustulkan kunni ekki ensku. Tetta var indaelt par sem samanstod af mexikonskum manni og stulku fra Cusco. Tau reyndust vera a somu ferd og vid, a leid a sama lodge i frumskoginum og alles! Tilviljun tad.
Vid sogdum teim fra pafagaukinum og ta sogdu tau ad tau hafi fylgst med tegar morgum dyrum var komid fyrir i farangursgeymslunni, medal annars svini og nokkrum hundum!
Tetta utskyrdi kukalykina sem eg tottist finna.

Um nottina for ad rigna. Flestir voru sofandi og rutan hristist til og fra a mjog svo slaemum fjallavegum. Ymindid ykkur ad keyra versta veg Islands i regni, i 18 klukkutima! Svoleidis var tetta. Eg vaknadi vid og vid tegar vid kostudumst orlitid upp i loft vid tad ad rutan keyrdu i holu.
Hapunktur ferdarinnar var to eftir. A einu augnabliki vaknadi eg vid ad eg fekk dropa i andlitid. Tessum dropa fylgdu fleiri og fleiri og eg leit i kringum mig og sa ad rutan lak a morgum stodum! Eg klaeddi mig i peysu og setti teppid upp ad hoku og hagraeddi mer svo ad bunan faeri ekki framan i mig heldur i teppid. Ta gat eg sofnad aftur.
Tegar tetta var i gangi var svo mikil rigning ad allir gluggar turftu ad vera lokadir. Rakinn i loftinu og filan var naestum yfirtyrmadi. Manni leid ekki serlega vel. Nokkurri stund sidar i svartamyrkri tegar folk var enn sofandi, svona um fimmleitid, stod tjonustustulkan upp, kveykti ljosin og sagdi "godan dag, herrar og frur!" Eg helt ad hun vaeri ad grinast. Klukkan var fimm um morgun og folk var ad stroggla vid ad lata timann lida i svefni og konan krafdist tess ad allir myndu vakna a okristilegum tima! Ekki nog med tad ad hun tilkynnti ad nu skyldi hun safna teppnum saman. Tetta var 5 timum fyrir endastod og konan aetladi ad svipta okkur einu vorn okkar gegn lekanum. Eg gat ekki annad en hlegid. Parid yndaela var buid ad bua til halfgert segl ur sinu teppi sem tau neitudu ad lata af hendi. Tau voru su einu sem stodu i harinu a tessum bleikklaedda brjalaedingi. Eg let kurteisilega en hissa fra mer teppid.

5 timum sidar komum vid til Puerto Maldonado og heldum med bati a stadinn sem vid yrdum naesta 4 daga. Nu erum vid komnar aftur til Puerto M. og bidum eftir 18 tima rutuferd til Puno og Lago Titicaca. Puno er i 4000 m haed svo vid losnum vid rakann en faum haedarveiki. Party!
Meira um frumskoginn sidar.

Ein breyting: I rutuferdinni var synd ein mynd. Tad var eitt sjonvarp sem virkadi fremst i rutunni en vid vorum nanast aftast svo tad eina sem vid fengum voru laetin ur hatolurunum rett hja okkur. Tetta var ekki svona feel good mynd til ad letta skapid, tetta var horror mynd med oskrum hvert a eftir odru! Hljodin voru eins og ur Hitchcock mynd. Vid gatum sett glitta i myndina og bornin sem morg voru um bord virtust hin spenntustu.

Engin ummæli: