laugardagur, mars 7

Dora the explorer

Þetta er eitthvað sem ég skrifaði í byrjun árs en láðist að birta:

Nýtt ár, nýjir draumar.
Samkvæmt mér meira vitandi er gullár hjá mér, ég mun vera indigo sem býr yfir kvenlegri næmni og heilun. Það er góðs viti.

Á daginn sinni ég stúlkum sem hver og ein er eins og moli úr Mackintosh boxi. Ég elska Mackintosh.

Annað:
Eftir rétt rúma viku held ég af stað í tveggja mánaða bakpokaför um Suður-Ameríku.
Mér þykir rétt að birta þetta hér þar sem margir minna vina sem ég hef e.t.v. lítil samskipti við í daglegu lífi vita þetta ekki.
Farið verður til New York, Perú, Chile, Bólivíu, Argentínu og Brasilíu.
Ég mun blogga um það hér og birta myndir.

Enn annað:
Bráðlega þarf ég að sækja um háskólanám í Noregi fyrir haustið.. ef einhver sem les þetta hefur góða hugmynd um hvað það ætti að vera má sá og hinn sami gjarnan skrifa þá hugmynd sem comment.

Kyss

Engin ummæli: