mánudagur, september 18

Að vera of góður fyrir úlpuna sína

Að vera þrettán er kvöl á margan hátt enda hefur vinaflóðið þá sinn mátt.


Ung, hálfnakin stúlka í rigningu. Brosið frosið á vörum í samfloti með þeim hugleiðingum að einhver gæti verið að horfa. Þarna sést eins og einn nafli bregða fyrir og ofar er gæsahúð.
En einhver gæti verið að horfa.

Í útilegu, í fjallgöngu, í fótbolta. Í vetrarrökkvi og faðmi kuldabola. Enginn jakki, stuttar brækur. Svona eru þær. Þessar litlu dækjur.

Engin ummæli: