Hæ.
Ég viðhelst í Ósló og hef það gott. Lífið hér inniheldur sólina, bátsferðir á Óslóarfirðinum, brúðkaup, frisbí, mikið af trjám, nýja vini, Karl Johans gate, hengirúm, það sem er koselig, nydelig og trivelig,- og þess háttar.
Og svo atvinnuleysi, sem spilar stóru rullu og virðist hafa of mikil áhrif á allan fjandann og hef ég hafið dagdrykkju til að drekkja atvinnuleysissorgum mínum. Og svo á ég enga peninga, en það var svo sem við því að búast.
Ég vildi að einhver ætlaðist til þess að ég væri einhversstaðar að gera eitthvað.
En hér hef ég a.m.k. Ole, jú og sólina, og trén.
Mikið ætti ég að vera úti núna.
Eða kannski í sturtu?
Engin ummæli:
Skrifa ummæli