laugardagur, júní 17

Hæ hó og jibbý jeij*

Sælir allir íslenskir ríkisborgarar innanlands sem utan!
Í dag er 17. júní, sá dagur í íslenskri sögu sem breytti miklu fyrir land og þjóð og gerði okkur að öllu öðru en bara skeri undan Danmörku. Jú, við erum svo sannarlega sjálfstæð og stolt þjóð enda búum við á mikilli og glæsilegri náttúruperlu..

Ég gleymdi að það væri 17. júní í dag.

Í mikilli geðshræringu vegna gleymsku minnar ákveð ég að í dag skuli ég vera glöð af þessu tilefni enda býður dagurinn svo sannarlega upp á það;
1) Sala á ljúffengum lakkrís(margar bragðtegundir!) á Norwegian Wood, sem er tónlistarhátíð hér í Ósló.
2) Hengekøye-samkoma á kanínueyju í Óslóarfirðinum þar sem drukkinn verður dýrðlegur mjöður og slappað af í hengirúmi ásamt öðrum hengirúms-eigendum Óslóar/Noregs.
3) Sumargleði kvöldsins sem endast mun langt fram eftir öllum skikkanlegum háttatíma.

Lög dagsins:
Hæ hó og jibbý jeij
Bohemian Like You
Kokaloca

*Breyttur lagatitill færður í bloggtitil

Engin ummæli: