laugardagur, apríl 15

Ósló

Hæ.

"One time and then I shower, and then we go out."

Það er sól. Perfekt. Í dag er vika frá því að ég kom og núna get ég líka haft séríslenska stafsetningu á blogginu mínu þökk sé download áráttu ákveðins aðila. Helt fint.

Ég er búin að fara á gönguskíði upp í sveit, mikið ofsalega var ég léleg í að skíða á þeim niður aftur, enda þurfti ég að fá far með snjógröfu svo ég kæmist einhvern tíma niður. Skíðasvæðið var líka löngu lokað, og ferðin búin að vera rúmir sex klukkutímar. Ég sá a.m.k. dauð hreindýr sem lentu í snjóflóði í febrúar. Bra tur.

Núna er ég að hlusta á Sigur Rós, ekki slæmt. Viðeigandi þar sem ég mun fara tónleika með þeim hérna handan hornsins 27. júni. Ekki slæmt það, og ekki slæm afmælisgjöf.

Bless.

Engin ummæli: