þriðjudagur, apríl 18

Páskalok, - og byrjun

Ég er með svolítið kítl í maganum þar sem ég bæði hlakka til og kvíði því að hella mér niður í námsbækurnar til þess að bjarga önninni sem hefur ekki verið ein sú besta.
Því lengur sem ég bíð því meira verður úr síðari tilfinningunni.

Í gær kom ég heim og náði því bláendanum á íslenskum páskum. Ekki er ég líkleg til kvartanna þar sem ég hafði það sérlega gott.

Svo er bara spurning með sumarið..
Það verður nú eitthvað. Og ekki er ég líkleg til mikilla tekna heldur. Andskotinn.

Engin ummæli: