fimmtudagur, febrúar 23

Miðvikudagskvöld

Liggjandi í heitum potti, með rokið og rigningardropana fyrir ofan sem leggja allt undir við að komast í gegnum ljósið sem liggur frá ljóskösturum og ljósastaurum í kring. Hlýtt vatnið gutlandi um og ánægt fólk sem finnst hressandi að skella sér í sund, og indælt. Eins og mér. Ein með sjálfri mér og hugsunum mínum og ókunnugu fólki.

Tvær litlar stelpur busla um pottinn, pabbinn fylgist með úr fjarlægð. Ganga lengra og lengra í ærslaganginum og standa upp á bakka og hoppa ofan í pottinn, skvetta á fólk, og hlæja. Sætar. Í skærgrænum sundbolum. Alveg eins.
Ein þeirra kemur til mín og fiktar í mér, potar, hlær og reynir að átta sig á mismunandi vexti fólksins í pottinum. Ég spyr hvað hún heiti og hvað hún sé gömul. "É heiti Vala, érr triggjárra." Vá, orðin svona stór. Systir hennar heitir Stína.

Dökk, stór augu eins og þúsund nætur fullar af ævintýrum. Falleg húð. Hátt enni og breitt nef, þykkar varir. Mjög þykkar. Svo fallegar, litlar, kolsvartar stelpur á Íslandi. Með pabba sínum.

"Bless, virrum að fara, hvað heitir þú?"
Ég heiti Dóra. Og þær vita það, og fara.

Ég hitti gamlan bekkjarfélaga og hlæ og minnist á litlu stelpurnar sem komu og sátu ofan á maganum mínum báðar í einu, og vildu fá að vita um allt og alla.

"Já, ógeðslegt, helvítis negrar. Ógeðslegt fólk." Segir hann, og ég vil ekki tala við hann meir í reiði minni.

Af hverju?

Engin ummæli: