fimmtudagur, mars 25

Ljóð og kítl í maga

Mér finnst gaman að skrifa ljóð.
Þegar ég finn fyrir fiðringi í maganum eða mér finnast aðstæðurnar réttar skrifa ég.
Stundum af því að mér leiðist.
Stundum af því að ég er leið.
Stundum af því að ég upplifi augnablik þar sem mér finnst ég vera á tímamótum, jafnvel eins og ég standi á krossgötum og viti ekki hvert ég skal.
Þessi óvissutilfinning finnst mér góð, hún lætur mér finnast allt vera mögulegt.

Kannski er allt mögulegt?

Ég reyni stundum að trúa því. Sérstaklega þeirri hugsun að ég stjórni eigin lífi fullkomlega.
Sú hugsun lætur mig fá kítl í magann. Ég fékk í fyrsta sinn slíkt kítl í magann á fyrsta ári menntaskólans. Þá hugsaði ég: ég get í alvörunni verið hvar og hver sem ég vil. Engar reglur eða skólaskylda gátu breytt þeirri staðreynd.

Samt líður fólki oft eins og þetta sé ekki rétt. Eins og örlög okkar séu ráðin. Hvernig getur lífið eiginlega orðið hversdagslegt þegar við ráðum því sjálf? Við stöðnun: af hverju gerum við ekki eitthvað róttækt? Þorum við ekki? Við hvað erum við hrædd? Kannski dauðann. En dauðinn kemur hvort eð er, svo hverju höfum við að tapa?
Svona hugleiðingar láta mig fá kítl í magann.

Ég bý til ný plön fyrir framtíðina ansi oft. Ég reyni að búa þau til án þess að taka nokkurt tillit til núverandi aðstæðna, aðeins byggð á vilja mínum.
Nokkrir hlutir sem liggja ofarlega á "hvað ég vil gera- í alvöru talað" listanum mínum:
* fara til Afríku
* læra ljósmyndun
* fara til Asíu
* læra á selló
* taka önn í húsmæðraskólanum
* læra sálfræði
* læra meiri heimspeki
* gefa út ljóðabók

aðeins neðar koma:
* læra fallhlífastökk
* læra keramiksgerð

miðvikudagur, janúar 6

Nýtt ár, rautt ár

Síðasta ár var gullár og þetta er víst rautt, sem boðar komu breytinga. Ég finn þær í æðunum og bíð bara eftir þeim, hverjar svo sem þær verða.

Gullár. Byrjunarskref í könnun heimsins í Latnesku Emeríku ásamt óblóðskyldri systur minni Ásdísi og hjartavinkonu. Upphaf náms í sjálfri heimspekinni og þar með framhald á könnun heimsins í gegnum fræðina svo og á könnun mannsins og huga hans. Þar opnaðist mér nýr og ólgandi heimur, gjafmildur og innblásandi.
Nýr heimur opnaðist mér líka í sjálfu samfélagi Oslóarborgar og var það fræðandi heimur og yfirlitsvíkkandi. Nú hef ég komið mér í stöðu heimspekings Platóns í hellislíkingunni sem sér inn í tvo heima þar sem hann stendur í hellismunnanum. Eftir að sá síðari opnaðist honum reyndist honum erfitt að fella niður liti sína og setjast að í og venjast aftur þeim gamla.

Hvað mun gerast nú? Hvernig verður sumarið? Mun ég keyra um á mótórhjóli í Ítalíu eða safna peningi og ákveða að nú sé komið að Afríku?
Mun ég finna upp vængi, hverfa og sameinast hinum frjálsu öndum fuglanna?

Kemur í ljós, fylgist með í næsta þætti.

fimmtudagur, nóvember 26

Bráðum

byrja prófin, í næstu viku. Tvö fjögratímapróf og eitt lítið og á föstudagseftirmiðdegi er ég búin. Og svo á Ole afmæli daginn eftir.

fer ég á jólahlaðborð. Fjögur talsins: með vinnunni, með Norska-klassíska pöbbakórnum, með Uglubúi(stúdentakjallarapöbbinum) og með fjölskyldunni.

fer ég heim til Íslands til að leika við mömmu og pabba og Sigrúnu. Það verður gott.

koma jólin. Ég elska jólin.

koma áramótin. Á nýársnótt ætla ég að dansa á nælonsokkabuxunum með Gunnu frænku á sleipu gólfi eins og venjan er. Það verður gaman.

eigum við Ole fjögra ára sambandsafmæli. Fjögur ár. Vó.

byrjar næsta önn með nýjum fögum. Meiri rökfræði, meiri siðfræði, meiri gleði. Jeij. Það verður gaman og ég meina það.

ætla ég að setja inn myndir af Noregshausti.

Bráðum.