Ég er komin inn í heimspeki og hugmyndasögu í háskólanum í Osló. Ég veit ekki hvort ég vil læra það næstu þrjú árin eða bæta einkunnirnar mínar og fara í læknisfræði.
Sem er gaman af því að ég þarf að svara á morgun. Vei.
Þetta sumar hefur líf mitt runnið í áður óhugsanlegar áttir. Ég hef nefnilega hafið það að fara út að hlaupa um Elliðaárdalinn með föður mínum oft í viku. Að fá D-vítamín úr sólinni og finna sætkrydduðu jurtalyktina allt í kring ásamt því að hrista uppsafnaða spennu úr líkamanum. Þetta eru orðnar mér dýrmætar stundir. Og svo spjöllum við pabbi um allt sem viðkemur lifanda lífi og dauðu og það er skemmtilegt.
Þessi gleði byrjaði eftir að ég uppgötvaði hlaupamátt minn í Kvennahlaupinu í sumar, ég hafði þá grætt meira en sálarró og víbrandi hamingju í afródansinum. Einnig þol!
Eftir að ég kom heim frá Suður-Ameríku hefur lífið verið þægilegt og ég hef notið mín. Ég kann vel við að vera heima með mömmu og pabba í ró, drekka te og lesa bók uppi í rúmi.
Enda hef ég aldeilis eignast glás af bókum undanfarnar vikur, og fer ég varla skrefi inn fyrir dyr Máls og menningar án þess að versla eitthvað sniðugt.
Nýendurútgefin Íslenskar lækningajurtir eftir Arnbjörgu Jóhannsdóttur, Birtingur eftir Voltaire í þýðingu Laxness, Tvískinna eftir Davíð Stefánsson og svo þær þrjár bækur sem ég átti eftir að komast höndum yfir í Twilight-seríunni, og hef ég full óþreyju beðið eftir að þær komi til landsins síðustu vikur. Hvílíka kátínu það veitti mér að taka þessar bækur heim með mér.
Eftir nokkrar vikur flyt ég til Noregs. Ég veit ekki nákvæmlega hvað ég er að fara að gera en það kemur í ljós á næstu dögum. Eitt er þó víst og það er að allir vinir mínir sem voga sínum fæti inn fyrir norsk landamörk eru velkomnir í heimsókn og öl í Oslóarborg! Ég býst sterklega við og stóla á að heimili vort verði fjölsótt íslenskt menningarsetur eins og heimili Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar frænku hans var í Danmörku í denn!
föstudagur, júlí 24
þriðjudagur, júlí 14
sunnudagur, júní 21
Síðasti viðkomustaðurinn
Við komuna til Rio eftir 26 tíma rútuferð vorum við búnar að eignast kunningja. Við höfðum plan um að fara á ódýrt hostel á Botafogo ströndinni sem átti að vera tiltölulega öruggur staður og skyldum halda okkur lengst frá Copacabana sem við höfðum verið margvaraðar við. Þar væru ræningjar frá favellunum fyrir ofan með hnífa og hver sekúnda sem eytt væri þar áhætta.
Við slaufuðum planinu okkar með öllu tilheyrandi og ákváðum að fara með nýja vini okkar, Nathan, til Copacabana á hostel sem hann var búinn að panta pláss á. Þar eyddum við svo rúmri viku og margri stundinni með Nathan og spöruðum til dæmis í matarkostnaði þar sem að við elduðum oftast þrjú saman á kvöldin. Öll vorum við að verða ansi blönk og eru veitingastaðir í Brazilíu ekki þeir ódýrustu. Svo þetta var tilvalið.
Hostelið okkar var partíhostel. Fyrir þá léttsvæfu var lítil hvíld og seinir háttatímar flest kvöld. En það var gaman. Á efstu hæð hostelsins var bar undir beru lofti og heitur pottur. Á barnum sameinuðust ferðalangar mörg kvöld í drykkju og spjalli, og var svo möguleiki á að færa stuðið á klúbbinn í kjallaranum við hliðina á hostelinu eftir lokun.
Á barnum byrjaði dagurinn í morgunmat og endaði oft þar sem þjónustuskvísur með jónur í munnvikinu dilluðu sér í magabolunum og skvettu í hressilega Caipirinhu.
Á daginn var gott að vera á ströndinni og leika sér í stórhættulegu öldunum eða lesa bók þegar flaggið "bannað að synda" var sett upp þar sem áhætta um drukknun var að verða of fyrirferðarmikil.
Við fórum að skoða Jesússtyttuna og fórum í favelluferð. Ég fór degi seinna en Á+N þar sem að drykkjan daginn áður hafði náð í rassinn á mér og sent mig í rúmið.
Á föstudagskvöldum var haldið til Lapa þar sem að kokteilblandarar stóðu með bása út um allar trissur milli Lapabrúnnar og klúbbalengjunnar, ásamt favellubarna sem toguðu í pilsfalda tómum augum í von um pening eða sölu á allskyns varningi.
Þegar Nathan skyldi heim halda til Englands eftir hálfs árs ferðamennsku um margar álfur, ákváðum við Ásdís að prófa Couchsurfing. Hún hét Nina Dubois sem var hostinn okkar, indæll kattaelskandi og silkiklútamálandi brazilísk stúlkukind með yfirmátar huggulega íbúð með þakútsýni yfir Rio.
Hjá henni dvöldum við í tvær nætur. Við fórum á hippamarkað á Ipanema, hittum norska vinkonu mína Gro og fórum með henni og Ninu út að borða á Austurlanda-fjær veitingastað ásamt því að kúra með hinum annars feimna ketti Mag og elda súpu með Ninu.
Svo eftir tíu daga veru í Rio fórum við heim. Það var bitursætt. Fyrst eyddum við einum degi í New York og sprönguðum um strætin þar ósofnar og illa til hafnar.
Og það var kalt að koma heim. En ljúft að fá knús.
Ég komst svo að því að kötturinn minn hún Branda, sálufélagi og gæludýr til nítján ára, hafði dáið viku áður en ég kom heim og ég grét lengi lengi og græt enn í hjartanu.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)