sunnudagur, febrúar 5

Efi

Í djúpu hafi náttúrufræðinnar og raungreinanna, sem ég hef svamlað um í bráðum tvö ár, mæti ég áfanganum fél103 sem p-áfanga þessa önnina, eða þ.e.a.s. utan skóla.
Á morgun er próf og áðan byrjaði ég rétt að glugga í bókina sem köld hefur fengið að liggja á gólfinu mínu frá upphafi annarinnar.

Áfallið ríður yfir þegar ég les nokkrar síður og sé að þetta er eitthvað sem er nokk svipað því sem ég les mér reglulega til gamans.

Og því er spurning dagsins þessi: eru áherslupunktar náms míns vitlaust staðsettir?

þriðjudagur, janúar 31

Porcelain

Ég finn sjálfa mig sitjandi í skólastofu með ljúfa tóna í hlustum, sem ná svo miklu lengra.
Ég verð klökk, hugsa um gleðina og hamingjuna. Og svo er ég líka.
Ég lít út um gluggann og horfi út í myrkrið sem gnæfir enn yfir borginni, en get ekki annað en brosað stórum.
Ég finn blóðið flæða sem á sér oft leið um hjartað og mér hlýnar allri að innan. Vöðvarnir eru upp spenntir og ég skín. Það hlýtur í það minnsta að vera. Fingurgómarnir eru næmir og ég vil helst teygja mig í allar áttir, og hlæja dátt. En ég geri það ekki.
Í stað þess faðma ég kollega minn, sem við hlið mér situr, innilega að mér. "Allt verður gott," hugsa ég með mér í stillingu, og yfir mér liggur allgjör og fullkmin ró.
"Allt er svo gott."

Mikið kann ég vel að meta svona stundir. Og fyrir utan það að finna sjálfa mig sitjandi einhversstaðar.

Hljómur: Moby - Porcelain

sunnudagur, janúar 29

Nei til driting

Gott kvöld, góðar stundir.

Ég hata;
-klisjur
-langanir
-að vera ein
-rigninguna
-að læra
-að vera
-að elska

Ég elska;
-klisjur
-langanir
-að vera ein
-rigninguna
-að læra
-að vera
-að elska

Mitt á milli;
það sem er mitt á milli.

hvað er mitt á milli?