fimmtudagur, október 27

Oui, du es sehr bon, oh yes, þú ert það svo sannarlega.

Það er kalt. Mér er kalt. Ég er köld. Ég er dáin.
Nei, veik.
Ég hósta og hósta og hósta og hósta, í þögn, í íslenskuverkefnum, í samræðum við leiksjórann Dag Kára. Og fleira.

Súkkulaði. Mig langar í súkkulaði. Ég er að drekka eitt slíkt og fékk mér eitt áðan. En ég er alveg til í meir.

Núna ætla ég að fjalla um tilgang lífsins.
Ég ætla að hafa þetta mjög langt.

Tilgang lífsins er hægt að greina niður í deildir eftir áhugsaviði hvers og eins, eða foreldra hvers og eins. Tilgangur veru minnar er ekki endilega tilgangur veru þinnar hér á jörðinni.
Eins og til dæmis bróðir Baldurs í Völuspá, Váli, hann fæddist nær eingöngu til þess að hefna bróður síns eins dags gamall eftir að hinn blindi Höður drepur Baldur óvart fyrir tilstilli Loka.
Djöfuls Loki. Hann er svo vondur.

Völuspá er skemmtileg, ég hlustaði á hana sungna af norskum kór um daginn. Það tók klukkutíma. Það var skemmtilegt.

Ég vil ekki að hafa þessa hræðilegu færslu lengri.

fimmtudagur, október 13

Sweet is the melody

Ég elska að njóta rólegra daga þar sem ég get einbeitt mér að hlutum sem skipta mig máli og láta mér að einhverju leyti, líða aðeins betur.
Slíka daga vil ég eiga sem flesta því þeir auka verðgildi alls sem ég geri og fá mig til að vilja halda áfram. Á þessum dögum sé ég hvað allt er dásamlegt og ef ég geng niður Laugarveginn með yndislega tónlist í eyrum, brosandi fram í heiminn án alls þess sem gæti bugað mig, verð ég ekki hamingjusamari.

Platan Takk... gleður mig.
Lífið gleður mig.

Og núna eru jólin strax farin að gleðja mig með nálægð sinni.

sunnudagur, október 2

Plús og mínus, mínus, mínus.

Ég hefði betur sleppt stórfélagsferðinni á föstudaginn sem einkenndist af mis ömurlegum hlutum;

°Fólki í sleik.
°Þessu sama fólki í sleik við aðra.
°Og þessum öðrum í sleik við hina.
°Jú og allt öðru fólki að skvetta vatni á sofandi fólk, þ.á.m. mig sem svaf í sakleysi mínu/biturleika í sófa.
°Og ekki má gleyma allt öðrum einstaklingi(sem reyndist áður vinur) sem fór að koma illa fram við ákveðna einstaklinga(tjah, mig). Hrinda og nöldra.
°Óþægilegum svefni.
°Frekum og leiðinlegum busum.
°Mun skárri busum.
°Hórubusum.
°Áfengisdauðu fólki.
°Eigingjörnu fólki sem getur ekki einu sinni tekið til eftir rassgatið á sjálfu sér.
°Pressu.
°Einmannaleika.
°Sora.

Áfram mætti telja.
Ljósu punktarnir voru ekki margir en nokkrir sem nefna má;
°Mjög dugleg og ábyrg stjórn, sem betur fer.
°Snotur húsakynni.
°Ágætis tónlist.
°Falleg dimma.
°Ástin virtist kvikna hjá einhverjum. Og þá er ég ekki að tala um fulla fólkið sem var í sleik.

Já, ég hef aldrei verið jafn bitur eftir stórfélagsferð.
Tímaeyðsla og peningaeyðsla.