Ég er dugleg.
Ég ER dugleg.
Í gær var ég uppi skóla frá klukkan átta um morguninn til tíu um kvöldið og kom miklu námi í verk. Fyrir kosningarnar í skólastjórnarfulltrúann hefði ég e.t.v. átt að nýta eftirfarandi sem slagorð.. "Dóra Björt - alltaf til staðar."
Enda er ég hálfgert nörd. Í upphafi alls grínaðist ég svolítið með að ég væri nörd en ég er eiginlega farin að horfast í augu við staðreyndir, ef ég hegða mér eins og nörd þá er ég nörd. Sem er ágætt.
Jæja, kæru vinir, hvað er að frétta af ykkur? ... Ekkert? Nú jæja.
Já af mér? Jújú ég get svosum alveg sagt ykkur það.
Próf nálgast og byrja eftir helgina, ég mun taka 7 próf enda nörd. Katrín kemur bráðum heim.
Jólin verða ekki einmannaleg þar sem ástin mun umvefja mig í þrjár vikur yfir bæði jól og áramót. Ó, hvað ég bíð.
Ég fór í prufu fyrir leikrit LFMH í ár á þriðjudaginn og fæ að vita í kvöld hvort ég sé ein af þeim 30(af 80) sem kemst í hópinn. En reyndar hef ég heyrt að æfingarnar í jólafríinu verði óhagstæðlega mikið á kvöldin. Jæja, við sjáum til hvernig fer.
Nóg í bili.
Kyssi kyssi
Engin ummæli:
Skrifa ummæli