miðvikudagur, janúar 6

Nýtt ár, rautt ár

Síðasta ár var gullár og þetta er víst rautt, sem boðar komu breytinga. Ég finn þær í æðunum og bíð bara eftir þeim, hverjar svo sem þær verða.

Gullár. Byrjunarskref í könnun heimsins í Latnesku Emeríku ásamt óblóðskyldri systur minni Ásdísi og hjartavinkonu. Upphaf náms í sjálfri heimspekinni og þar með framhald á könnun heimsins í gegnum fræðina svo og á könnun mannsins og huga hans. Þar opnaðist mér nýr og ólgandi heimur, gjafmildur og innblásandi.
Nýr heimur opnaðist mér líka í sjálfu samfélagi Oslóarborgar og var það fræðandi heimur og yfirlitsvíkkandi. Nú hef ég komið mér í stöðu heimspekings Platóns í hellislíkingunni sem sér inn í tvo heima þar sem hann stendur í hellismunnanum. Eftir að sá síðari opnaðist honum reyndist honum erfitt að fella niður liti sína og setjast að í og venjast aftur þeim gamla.

Hvað mun gerast nú? Hvernig verður sumarið? Mun ég keyra um á mótórhjóli í Ítalíu eða safna peningi og ákveða að nú sé komið að Afríku?
Mun ég finna upp vængi, hverfa og sameinast hinum frjálsu öndum fuglanna?

Kemur í ljós, fylgist með í næsta þætti.

fimmtudagur, nóvember 26

Bráðum

byrja prófin, í næstu viku. Tvö fjögratímapróf og eitt lítið og á föstudagseftirmiðdegi er ég búin. Og svo á Ole afmæli daginn eftir.

fer ég á jólahlaðborð. Fjögur talsins: með vinnunni, með Norska-klassíska pöbbakórnum, með Uglubúi(stúdentakjallarapöbbinum) og með fjölskyldunni.

fer ég heim til Íslands til að leika við mömmu og pabba og Sigrúnu. Það verður gott.

koma jólin. Ég elska jólin.

koma áramótin. Á nýársnótt ætla ég að dansa á nælonsokkabuxunum með Gunnu frænku á sleipu gólfi eins og venjan er. Það verður gaman.

eigum við Ole fjögra ára sambandsafmæli. Fjögur ár. Vó.

byrjar næsta önn með nýjum fögum. Meiri rökfræði, meiri siðfræði, meiri gleði. Jeij. Það verður gaman og ég meina það.

ætla ég að setja inn myndir af Noregshausti.

Bráðum.

sunnudagur, október 25

Ljóð

Frumskógarvísa III

Ég vil rífa þig á hol,
eins og ljónynja.
Japla á bitunum í skugganum.
Hlaupa svo út í sólskinið,
og gleyma.




Ole fannst gaman þegar ég hvíslaði þessu í eyrað á honum á meðan hann spilaði á gítarinn.
Og við kúrðum okkur saman í sófanum.