Með nálgandi útskrift vex stress og annasemin. Ég er hætt að sofa almennilega á nóttunni og bíð því í staðinn eftir að vekjaraklukkan láti í sér heyra. En ég er samt vafin inn í blendnar tilfinningar sem fylgja þessum tímamótum. Þið vitið hvernig það er, þið útskrifuðu. Ef til vill. En hluti af mér gleðst yfir nýju upphafi, nýjum tímum.
Ég mun hafa margt til að minnast með bros á vör.
Kannski ekki þess að einhver helv**** aumingi hafi stolið veskinu mínu á meðan ég var í jóga í skólanum um daginn. Já, alls annars en þess. Einhvers annars en endalausra prófa, fyrirlestra og ógeðs. Já, Það lýsir tilfinningunni ekki alveg. Hvað með rektors? Tjah.. mögulega. Látanna inni á Matgarði? Hmmm.. Maurafullu sófanna í Norðurkjallara? Vafalaust. Margs er að minnast. Ég mun að minnsta kosti sakna Kents.
Það eru auðvitað enn hlutir sem láta mig hlæja og vera kát: Yohanna.
Ég þarf ekki að segja meira. Ég fæ kitl að innan við tilhugsunina. Ég veina innra með mér. Og tárast að utan. Óóó hvílík gleði sem sú stúlka færir mér.
Ég ræð mér ekki. Ég var rétt í þessu að lesa viðtal við hana í Fréttablaðinu. Ég er enn að vinna úr skammtinum. En ég get ekki beðið eftir næsta. Þetta er örugglega svipað og heróín. Eða ekstasí.
laugardagur, apríl 19
föstudagur, febrúar 8
Branda
Ó, hvað ég elska Bröndu. Ég og Branda erum sálufélagar.
Áðan fórum við mamma með hana til læknis í vítamínsprautu. Áður keyptum við tösku í dýrabúð til að hafa hana í á leiðinni. Þetta veður, það er varla bjóðandi 18 ára ketti. Og svo bílferð ofan á allt saman. Hún var ekki að fíla þetta.

laugardagur, febrúar 2
Kuldi
Kuldatíð. Innitíð. Áðan þurfti ég að stoppa úti í vegarkanti til að skafa aftur. Miðstöðin var eitthvað að bregðast mér svo ég var farin að zikk-zakka um götuna þar sem ég sá ekki boffs.
Í gær fórum við fjölskyldan á Brúðgumann og var það vel. Í kvöld förum við Ásdís svo á Ívanov.
Ég vil þakka þeim sem mættu á minningarstundina um Heath Ledger í Norðurkjallara á fimmtudaginn. Fullur kjallari af fólki, bakkelsi, gosi og nammi. Og svo horfðum við á Ten things I hate about you. Hvílík klassík.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)