Ómerkilegur gírafi og fleira ósæmilegt hefur ákveðið að taka sér veggfestu á Klamedíuklósettbásnum. Vegna þessa hef ég ákveðið að láta umfjallanir um framvindu fiskimálsins, með öllu, vera.
Mig langar:
-Að sjá Woyzeck í Borgarleikhúsinu.
-Að sjá Charlie and the Chocolate Factory. !.
-Að sjá gömlu Charlie and the Chocolate Factory.
-Að lesa aftur bækur sem ég elskaði fyrir löngu og elska enn; Kalli og súkkulaðiverksmiðjan, Nornirnar og fjólubláu bókina Vampírusögur.
-Að fara í klippingu.
-Að vera í kórnum.
-Að fara á Antony and the Johnsons í desember.
-Að hafa tíma og fé til að framkvæma áðurnefnt.
Kreisí.
þriðjudagur, september 20
laugardagur, september 10
Hreinleiki, gleði
í sanngjörnum heimi myndu samskipti kynjanna fara fram með glervegg á milli sín og takka til að velja besta gripinn eftir þyngd, stærð, hagkvæmni og snoturleika. En heimurinn er ekki sanngjarn og maður þarf að leita sér maka eftir eðlisávísun, mannþekkingu, sjarma og öðru einskisnýtu rusli. Tengingar milli einstaklinga endast ekki nema í sekúnda eða hálfa kvöldstund og allt verður flókið, erfitt, pirrandi.
Deila er hægt um í hvern er varið og hvað sé heillandi við hvern og einn. Vesen, rugl. Eitt skal yfir alla ganga og skrá verður við fæðingu og kynþroska hvað sé vert að hugsa um í fari hvers og eins.
En hinsvegar ætla ég að sökkva mér í lestur, gerast einsetjukona á fjallstindi með geit, sem heitir Nansí.

mánudagur, september 5
Gamalt og nýtt af ofan
Um helgina hitti ég strák sem heitir Benni. Hann hefur mikinn áhuga á leiklist. Hann er í Kvennó. Hann er fæddur árið 1986.
Þegar ég var í sjöunda bekk eða 12 ára gömul, þá sá ég hann í fyrstu sýningunni hans. Hún fór fram í Grunnskólanum í Grindavík og þá var hann í níunda bekk. Og svo hitti ég hann aftur, núna 5 árum seinna, og er hann sokkinn í líf leiklistar og svínarís. Við höfum aldrei fyrr verið formlega kynnt.
Svona er lífið sniðugt og heimurinn smár.
Minnast má á nýjar upplýsingar sem staðfestar hafa verið af klamedíuklósettbásnum. Á hurðinni hefur lengi staðið eitt og sér: "It's ok to eat fish 'cos they don't have any feelings."
En svar hefur borist og andmælir nú fiskur þessari umsögn með setningunni: "I resent this statement!"
Ég bíð spennt frekari ummæla.
Í spilun: The Beatles - White Album

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)