Ég hugsa...
um að selja Eyjamiðann minn, fara á Innipúkann um Verslunarmannahelgina og eiga þá auka 26 þúsund til útlanda eftir fjóra daga?
Auk mun meiri tilhlökkunar á næsta ári þegar Eyjaferðin kemur upp og án stressins í ár sem myndi fylgja því að koma heim á miðvikudagskvöldi úr átta daga útlandaferð og fara með Herjólfi til Eyja á fimmtudagskvöldi í 5 daga.
Hver styður?
Ég á miða með Herjólfi klukkan 19:30 á fimmtudeginum og heim kl. 8:15 á þriðjudeginum. (Hefur einhver áhuga?)
Hver styður?
fimmtudagur, júlí 14
þriðjudagur, júlí 12
Hugrenningar síðdegisins
Halló.
Það er ekki alltaf gott að vera reyndur því hættir maður að vera á verði.
Það er ekki alltaf gott að vinna mikið, því þá missir maður af öllu.
Það er ekki alltaf gott að sofa í tjaldi, því þá hættir manni að langa til Eyja.
Það er ekki alltaf gott að dansa drukkinn því þá týnir maður gemsum vina sinna og heyrnatólum.
Það er ekki alltaf gott að drekka appelsínusafa því þegar maður er aumur í hálsinum er það vont.
Það er ekki alltaf gott að eiga hulstur utan um iPod því þá nuddar það sandinum við hann og rispar.
Það er ekki alltaf gott að hafa lítið að gera í vinnunni því þá geymir maður fáu verkin til lokunar og þarf að vera þar í auka hálftíma.
Það er ekki alltaf gott að hafa viku til Frankfurtar því þá hefur maður bara viku til planlegginga.
Það er ekki alltaf gott að versla því þá klárast peningurinn.
Það er ekki alltaf gott að eiga vini,
eða jú.

miðvikudagur, júlí 6
Neyðin kennir naktri konu að spinna.
Ég er búin að vera í sveit á vestfjörðum er heitir Lambavatn í viku og hélt til heimkynna minna á mánudaginn.
Bloggleysið hefur fyllt tómið, af engu.
Nú sit ég hér vitandi að sumarið verður, þegar allt er liðið, gott.
Ég er bæði búin að festa mér átta daga ferð til feðranna þýska lands og ferð til Vestmannaeyja um verslunarmannahelgina. Ég er mikið útihátíðarbarn og hlakka því til.
Ég gæti bloggað talsvert um sveitina og það að
- ég er fjósakona í mér.
- ég er orðin sleip í malarakstri.
- ég gaf röndóttri kú nafnið Júlía.
Ég gæti líka bloggað um utanlandsferðina og það að
- ég og Katrín verðum fjórum dögum lengur en hinir og höfum hugsað okkur Parísarferð.
- á morgun verður fyrsti Frankfurtarfundurinn.
- við fáum kannski að fara baksviðs á Sigur Rós tónleikunum.
- ég er helvíti félaus.
- ég hlakka, ó, svo mikið til.
En ég held ég sleppi því.
Takk allir fyrir afmæliskveðjurnar.
Lifum heil og munum það að lífið gefur þér það sem þú gefur því.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)