fimmtudagur, apríl 7

Kosningar á morgun? Nei nei.. Frankfurt

Allt í einu hverfa allar mínar pælingar. Allt er rólegt, þrátt fyrir komandi erfitt sögupróf og kosningar. Núna skiptir ekkert af því máli.. Það fer eins og það fer.

19. júlí verð ég stödd í Frankfurt ásamt góðu fólki á Sigur Rós tónleikum... óóó já

þriðjudagur, apríl 5

X-Zúúúber í listafélag MH

Góðan dag.

Ég heiti Dóra Björt Guðjónsdóttir og er nemandi í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Ég ásamt 5 öðrum duglegum og menntaðarfullum ungmennum er í framboði. Framboð í Listafélag MH.

1. Vilhjálmur Hilmar Sigurðarson eða Villi sem er núna á skólaárinu 2004-2005 starfandi í ráðinu Mímisbrunni sem sér Gettu Betur keppni framhaldsskólanna.
2. Tumi Karlsson sem er núna starfandi í Beneventumráði MH, skólablaðinu.
3. Sandra Ólafsdóttir sem starfar eins og er í Óðríki Algaula, ráðinu sem sér um lagasmíðakeppni og söngkeppni Í MH.
4. Zakarías Herman Gunnarsson.
5. Regína Mársudóttir.
6. Ég, Dóra Björt Guðjónsdóttir, sem starfa eins og er í stjórn Leikfélags Menntaskólans við Hamrahlíð.

Okkar helstu markmið byggjast á því að koma nýjum og ferskum anda í listalíf MH. Síðastliðið ár hefur verið starfandi virkt listafélag í MH en allt má bæta.

Við ætlum að halda uppi virkninni sem núverandi listafélag státar af. Við ætlum að einbeita okkar að því að framkvæma hugmyndir MH-inga og koma fleiri listgreinum að en hafa verið í hávegi undanfarið ár. Við ætlum að koma inn með fleiri gerðir af tónlist en metal og ætlum okkur t.d. að gefa út svokallaðan Listapésa sem mun innihalda umfjallanir um helstu menningar- og listaviðburði sem eru í gangi í Reykjavík og fá afslátt á þá viðburði fyrir MH-inga.

Við munum byrja á því að halda feita útitónleika fyrir utan MH, íssala, teppi, brekka og ljúft haustkvöld. Mhm, hlómar það ekki vel?
Við munum svo gefa út mánaðarlega Listapésa, eins og áður sagði.
Við munum halda 2 hiphop-kvöld á önn, enda hefur verið talsverð fyrirspurn eftir þeim þar sem þau hafa verið fá í ár.
Við munum halda Sull, Hairwawes og allt það sem okkur fannst heppnast vel á síðastliðnu ári ásamt því að koma með ferskleika og hlusta á og framkvæma góðar hugmyndir MH-inga með listakassanum.

Og fleira og fleira og fleira og fleira....


Við gefum ykkur hjartað okkar ef þið gefið okkur atkvæðið ykkar.
Með fyrirfram þökk, X-Zúúúber.

föstudagur, apríl 1

Verði ljós

Bjartsýnin og lífsþorstinn hafa yfirtekið hugann. Sólin skín og hjartað berst vegna tilhlökkunnar til lífsins. Já, lífið. Fingurgómarnir titra við og við og bros leikur um varirnar eins og fjallalækur dansar við smásteina.
Helstu ástæður munu vera frestun söguprófs um einn dag og frestun stærðfræðiprófs um heila viku. Ég get skrifað það og meinað, að í augnablikinu er lífið gott.

Í dag er föstudagur, ég er nýbúin að snæða ljúffenga víetnamska máltíð og aðeins einn skólatími skilur á milli mín og helgarinnar. Í kvöld mun ég njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða með vinum mínum, drekka gott öl og ræða mál hjartans. Ég get horft á það með blik í augum að ég hef heila viku til að vinna upp stærðfræðina og heila ævi til að njóta lífsins. Ef góður Guð leyfir mun ég nú í sumar eiga eitt besta sumar lífs míns, ef ég kemst inn í götuleikhúsið.






Lag: Nancy Sinatra - These Boots Are Made For Walkin'
Ástand: Gleði